Morgunblaðið - 24.07.2012, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Ætli ég verði ekki að mestu rólegur. Vinur minn og mikillFramari, Magnús Gústafsson, sem býr í Bandaríkjunumkíkir venjulega á mig á afmælisdaginn og ég von á því að
hann geri það á morgun,“ segir Haraldur Sturlaugsson, en hann er
63 ára í dag.
Haraldur er fyrrverandi forstjóri Haraldar Böðvarssonar á Akra-
nesi, en hann hætti störfum hjá fyrirtækinu fyrir nokkrum árum.
„Ég hef verið í ýmsu síðan ég hætti að vinna og reyni að hjálpa til í
alls konar samfélagslegum verkefnum á Skaganum. Ég hef m.a.
verið að safna heimildum og myndum úr 130 ára atvinnu- og
íþróttasögu Skagamanna,“ segir Haraldur.
Haraldur Sturlaugsson varð nokkrum sinnum Íslandsmeistari í
fótbolta og spilaði 141 leik í meistaraflokki ÍA liðsins allt til ársins
1975 þegar hann lagði skóna á hilluna, en hann fylgist mikið með
fótbolta og er heiðursfélagi í KFÍA. „Ég var nú bara að koma af
knattspyrnumóti fyrir norðan þar sem ég var að fylgjast með barna-
börnum mínum. Það mætti kalla mig afkomendaþjón í dag,“ segir
Haraldur í léttum tón.
Haraldur hyggur ekki á ferðalög út fyrir landsteinana í sumar og
ætlar að njóta sumarsins á Íslandi. „Við höfum viljað vera heima á
Íslandi á sumrin. Þá er besti tíminn til að vera hér,“ segir hann.
pfe@mbl.is
Haraldur Sturlaugsson er 63 ára í dag
Knattspyrnumót Haraldur ásamt barnabörnum sínum og alnafna
þeim Haraldi Sturlaugssyni og Ingibjörgu Birtu Pálmadóttur.
Ætlar að halda sér
á Íslandi í sumar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Fanndís Eva fæddist 8.
október. Hún vó 3.930 g og var 53 cm
á lengd. Foreldrar hennar eru Kristín
Bjarnadóttir og Gísli Harðarson.
Nýr borgari
Vinirnir Andri Hrafn Vilhelmsson 11
ára og Vignir Berg Pálsson 9 ára söfn-
uðu dóti með því að ganga í hús. Þeir
héldu tombólu fyrir utan Nettó í
Grindavík og seldu fyrir 3.700 kr. sem
þeir gáfu til Rauða krossins.
Hlutavelta
E
lsa fæddist við Grett-
isgötuna í Reykjavík
og átti þar heima
fyrstu fjögur árin er
fjölskyldan flutti í Ár-
bæjarhverfið. Þau voru síðan búsett
í Mosfellsbænum. Elsa hóf sjálf sinn
búskap í Mosfellsbænum en býr nú í
Hlíðunum.
Elsa var í Árbæjarskóla, lauk
stúdentsprófi frá VÍ 2002, hóf nám í
þjóðfræði við HÍ 2005, lauk BA-prófi
í þjóðfræði 2009 og lýkur MA-prófi í
sömu grein nú í haust. Þá tekur hún
þátt í þriggja ára rannsóknarverk-
efni með fræðimönnum um Sigurð
Guðmundsson málara og Kvöld-
félagsmenn um miðja 19. öldina.
Þjóðhátíðin í Eyjum er frá 1874
BA-ritgerð Elsu hefur vakið tölu-
verða athygli en hún fjallar um sögu,
eðli og þróun Þjóðhátíðarinnar í
Elsa Ósk Alfreðsdóttir, meistaranemi í þjóðfræði, 30 ára
Þjóðhátíð Blys og flugeldar í Vestmannaeyjum. Samkvæmt BA-ritgerð Elsu Óskar er þessi hátíð karnivalhátíð.
Sérfræðingur í
þjóðhátíð í Eyjum
Elsa og börnin Elsa Ósk með Sigurði Frey og Guðrúnu Kötlu.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Sérsmíðaðar állausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir í
álprófílum. Við bjóðum upp
á sérsmíðaðar skápahurðir,
rennihurðir, borð, skápa
o.m.fl.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit
yfir það sem er í boði.
Auk þess bjóðum við alla
velkomna í Vatnagarða
12 þar sem fagfólk veitir
góða þjónustu og allar þær
upplýsingar sem þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
SYSTEM STANDEX®
Álprófílar
Glerslípun & Speglagerð ehf.