Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 27
Vestmannaeyjum. En er hægt að
skrifa fræðiritgerð um úthátíð?
„Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum
er ekki bara einhver útihátíð. Hún er
stómerkilegt menningarfyrirbrigði
sem á rætur að rekja til þúsund ára
afmælis byggðar í landinu, árið 1874.
Slíkar hátíðir voru þá haldnar í
Reykjavík og víða um land en lögð-
ust svo fljótlega af, nema í Eyjum.
Þar hefur hún verið árlegur við-
burður frá aldamótunum 1900 utan
eins skiptis, 1914. Í gosinu var hátíð-
in svo færð til. Að öðru leyti hafa
Eyjamenn haldið í þessa hefð sem er
vel til fundið enda fékk Alþingi lög-
gjafarvald árið 1874.“
Þjóðhátíðin er karnival
Hver er sérstaða hátíðarinnar?
„Hún var upphaflega hátíðlegur
íþróttaviðburður eins og hátíðin í
Reykjavík og mörg héraðsmótin, en
síðan kemur tónlistin í stað
íþróttanna og þjóðhátíðin breytist í
raun í karnival, þó enginn hafi í
sjálfri sér skipulagt það meðvitað.
Hátíðarsvæðið er afmarkað og þar
verður til nýtt samfélag með nýjar
reglur og viðmið. Innan hátíðar-
svæðisins leyfist ýmislegt sem ekki
er leyfilegt í hinu hversdagslega lífi.
Bæjarstjórinn má klæða sig í kjól,
börnin fá að vaka frameftir, karl-
arnir staupa sig og það er eldað,
borðað, drukkið, spilað og sungið
fram á rauða nótt.
Það er einnig athyglisverður mun-
ur á Eyjamönnum og aðkomnum á
þessari hátíð. Þegar komið er inn á
svæðið eru kúlutjöld gesta vinstra
megin en hin hvítu tjöld heima-
manna hægra megin. Og það eru
engin venjuleg tjöld heldur sér-
sniðin, stór tjöld með innbúi. Varð-
eldurinn og flugeldasýningin undir-
strika líka karnivalstemminguna en
Brekkusöngurinn undirstrikar það
að söngurinn og gleðin úr hverju
tjaldi fyrir sig sameinast síðan á ein-
um stað, í Brekkusöngnum.
Eftir gos varð Þjóðhátíðin svo
einnig að nokkurs konar sigurhátíð
yfir því að byggðin hélst í Eyjum,
fólk flutti aftur út og að hin vikur-
svarta Eyja varð aftur græn.“
Elsa var vinnukona í sveit að Seli í
Grímsnesi er hún var þrettán til
fimmtán ára, stundaði síðan versl-
unarstörf í ýmsum verslunum og
hefur sinnt stundakennslu og að-
stoðarkennslu við HÍ sl. eitt og hálft
ár. MA-ritgerð hennar fjallar um
grasalækningahefðina hér á landi og
hvernig hún hefur þróast til
nútímans.
Fjölskylda
Fyrrv. maður Elsu er Ásgeir Sig-
urðsson, f. 24.5. 1978, bifvélavirki.
Börn Elsu og Ásgeirs eru Sig-
urður Freyr Ásgeirsson, f. 10.5.
2005; Guðrún Katla Ásgeirsdóttir, f.
6.3. 2008.
Unnusti Elsu er Jóhann Gunnar
Sigurðsson, f. 7.4. 1974, rafvirki í
Noregi.
Stjúpsonur Elsu og sonur Jó-
hanns Gunnars er Aron Goði
Jóhannsson, f. 30.8. 2002.
Bræður Elsu eru Matthías Svavar
Alfreðsson, f. 26.5. 1986, nemi í líf-
fræði við HÍ; Sigurður Björn Al-
freðsson, f. 23.8. 1992, nýstúdent.
Foreldrar Elsu eru Alfreð Svavar
Erlingsson, f. 28.4. 1958, for-
stöðumaður hjá Fjársýslu ríkisins,
og Guðrún Sigurðardóttir, f. 10.3.
1961, leiðbeinandi við leikskóla.
Úr frændgarði Elsu Óskar Alfreðsdóttur
Björn Kjartansson
b. í Seli í Grímsnesi
Unnur Sigurðardóttir
húsfr. í Seli
Óskar Áskelsson
b. í Skarði í Bjarnarfirði
á Ströndum
Jóhanna Elíasdóttir
húsfr. í Skarði
Ingiríður Kristín Helgadóttir
ljósm. á Ketilsstöðum
Alfreð Búason
verslunarm. í Rvík.
Svava Marjónsdóttir
húsfr. í Rvík.
Elsa Ósk
Alfreðsdóttir
Alfreðs Svavar Erlingsson
forstöðum. hjá Fjársýslu
ríkisins
Guðrún Sigurðardóttir
leikbeinandi við leikskóla
Elsa Óskarsdóttir
f. fyrrv. kirkjuvörður
Sigurður B. Björnsson
húsasmíðam. og kennari
Elsa Haidy
húsfr.
Erlingur Hansson
deildarstjóri við ríkisbókhaldið
Hans Kristjánsson
búfræðingur að
Ketilsstöðum í Dölum
Afmælisbarnið Elsa Ósk.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Ditlev Thomsen, kaupmaður íReykjavík og síðar í Kaup-mannahöfn, fæddist í
Reykjavík 24.7. 1867. Foreldrar
hans voru H.Th.A. Thomsen, kaup-
maður í Reykjavík, og k.h., Anna
Christine Sörensen.
Afi Ditlevs var Ditlev Thomsen,
umsvifamikill kaupmaður í Reykja-
vík og bæjarfulltrúi þar frá 1852 en
hann fórst með póstskipinu Sölöven
undir Svörtuloftum 1857.
Ditlev yngri ólst upp í Reykjavík
fyrstu fjögur árin en síðan í Kaup-
mannahöfn þar sem hann var í lat-
ínuskóla. Hann kom síðan aftur til
Íslands, vann við verslun á Eyr-
arbakka og síðan við verslun föður
síns í Reykjavík frá 1895. Hann tók
alfarið við verslunarrekstrinum í
Reykjavík, árið 1899, og bar þá
Thomsen Magazin höfuð og herðar
yfir önnur verslunarfyrirtæki lands-
ins, með aðsetur í fjölda húsa austast
við Hafnarstræti. Versluninni var
skipt niður í margvíslegar deildir, þ.
á m. vindlaverksmiðju, áfeng-
isútsölu, nýlenduvörudeild og álna-
vörudeild.
Jón Trausti rithöfundur orti mik-
inn brag til þessa umsvifamikla fyr-
irtækis í tilefni af einhverju merk-
isafmæli þess og er það líklega
skemmtilegasta heimildin um þessa
„Bónusverslun“ fyrri tíma.
Jón Trausti gerði töluvert af því
að yrkja erfiljóð og tækifærisljóð af
ýmsum toga og er nú líklega fæst af
því talið merkilegur skáldskapur.
Ekki er ólíklegt að Thomsens-
verslun og Ditlev séu að einhverju
leyti fyrirmyndir að Gúdmundsen
kaupmanni og verslun hans í
Brekkukotsannál Halldórs Laxness.
En Ditlev var engu að síður talinn
vel gefinn, framfarasinnaður og fjöl-
fróður. Hann flutti til landsins fyrstu
íslensku bifreiðina og samdi m.a.
leikrit.
Árið 1915 flutti hann til Kaup-
mannahafnar og varð þar stór-
kaupmaður.
Kona Ditlevs var Ágústa, dóttir
Hallgríms Sveinssonar biskups en
synir þeirra voru Hallgrímur lög-
fræðingur og Knud kaupmaður.
Ditlev lést þann 12.2. 1935.
Merkir Íslendingar
Ditlev
Thomsen
95 ára
Guðrún Sigurðardóttir
Lára Dagbjartsdóttir
90 ára
Guðrún Árnadóttir
Þorbjörn Einarsson
85 ára
Eiríkur Þorgeirsson
Tryggvi Gunnarsson
Þorgils Stefánsson
Þorvarður Þorvarðsson
80 ára
Grétar Óttar Gíslason
Kristín Pálsdóttir
Kristín Sólborg Árnadóttir
Þóra Ágústsdóttir
75 ára
Ásta Erla Antonsdóttir
Kristján Þórðarson
Margrét Hermannsdóttir
Rósa Jónsdóttir
70 ára
Auður Theódórs
Birgir Sævar Kristjánsson
Íris Sigurjónsdóttir
Ragnheiður F. Lárusdóttir
Tómas Zoëga
60 ára
Dóra Guðmundsdóttir
Guðjón Sigþór Jensson
Klængur Stefánsson
Kristín Kristjánsdóttir
Kristján Hermannsson
Þorgrímur Óli Sigurðsson
50 ára
Albert Axelsson
Anna Margrjet Þ. Ólafs-
dóttir
Ásgeir Heimir
Guðmundsson
Berglind Jóna Carlsen
Bergþór Guðmundur
Jónsson
Dorthe Möller Þorleifsson
Friðrik Már Bergsveinsson
Guðríður Ragnarsdóttir
Hannes Valbergsson
Helgi Laustsen
Hrönn Hafsteinsdóttir
Jón Jakob Jakobsson
Ólafía Kristín Jensdóttir
Sigríður Hermannsdóttir
Sigurður Bragi Sigurðsson
Sigurjón Þór Guðjónsson
Vala Lárusdóttir
Örnólfur Kristjánsson
40 ára
Andrejs Fomicevs
Árni Haukur Árnason
Árni Magnússon
Guðbjörg Íris Atladóttir
Guðmundur Hafsteinsson
Hanna Dóra Jóhannesdóttir
Júlíana Þóra Magnúsdóttir
Karitas Sóley Haesler
Lovísa Sveinsdóttir
Sigríður Björnsdóttir
Sigríður María Eyþórsdóttir
Sigríður Valgerður
Jónsdóttir
Steinar Immanúel
Sörensson
Steindór Stefán
Guðmundsson
Svanur Sævar Lárusson
Þröstur Karelsson
30 ára
Anna Lilja Sigurðardóttir
Anný Rós Guðmundsdóttir
Arnþór Haukur Birgisson
Gunnar Sigvaldi
Hilmarsson
Kjartan Kjartansson
Kristinn Bjarnason
Marcin Lukawski
Oddur Kristjánsson
Til hamingju með daginn
30 ára Lilja fæddist á
Höfn, lauk BA-prófi frá
HA, MBA-prófi frá Evr-
ópska háskólanum í
Barcelona og starfar hjá
Iceland Pelagic á Höfn.
Sonur: Aðalsteinn, f.
2009.
Foreldrar: Aðalsteinn Að-
alsteinsson, f. 1955, skrif-
stofumaður hjá Skinney
Þingnes á Höfn, og Elísa-
bet Einarsdóttir, f. 1957,
sjúkraliði við Hjúkrunar-
heimilið á Höfn.
Lilja Rós
Aðalsteinsdóttir
30 ára Ari ólst upp á
Hellu, lauk kjötiðn-
aðarprófi frá Hótel- og
matvælaskólanum og
starfar við sorphirðu hjá
Reykjavíkurborg.
Maki: Inga Þóra Magn-
úsdóttir, f. 1985, nemi.
Dóttir: Stella Björk Ara-
dóttir, f. 2011.
Foreldrar: Örn Hauksson,
f. 1960, múraram. og
kjötiðnaðarmaður, og Elín
Ágústsdóttir, f. 1957,
starfsm. hjá Ríkisskattstj.
Ari
Arnarson
30 ára Bjarki lauk námi í
húsasmíði við FSU 1999
og starfar nú sjálfstætt.
Maki: Ingibjörg B. Hregg-
viðsdóttir, f. 1985, húsm.
Börn: Amelía Rán, f.
2006; Aron Rafael, f.
2008, og Anton Rökkvi, f.
2011.
Foreldrar: Áskell Gunn-
laugsson, f. 1948,
húsasmíðam,, og Sesselja
Sólveig Óskarsdóttir, f.
1950, starfsm. við Ljós-
heima.
Bjarki
Áskelsson
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
GOTT AÐ GRILLA
Fjölbreytt úrval fiskrétta