Morgunblaðið - 24.07.2012, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver ættingi þinn bankar upp á
og er stútfullur af nýjum og spennandi frétt-
um.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér líður eins og tilfinningabrunnur
þinn sé á þrotum. Hættu því að snúa upp á
þig og komdu til móts við þá sem eru reiðu-
búnir til sátta.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að venja þig á að flytja
mál þitt með þeim hætti, að viðmælendur
þínir viti upp á hár, hvert þú ert að fara. Leit-
aðu leiða til að stuðla að því að þetta gangi
eftir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu að stofna til nýrra viðskipta-
sambanda því að þau gömlu eru orðin nokk-
uð þreytt og gætu gefist upp á árinu. Eyddu
kvöldinu í góðra vina hópi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Allt sem viðkemur fjármunum og
reiðufé er í óvissu í dag. Vertu raunsær.
Leggðu þig fram við að líta vel út þannig að
þér líði betur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst einhvern veginn allt rekast
á annars horn. Minnstu allra góðu stund-
anna með viðkomandi og láttu þær létta þér
lífið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ómögulegt að segja hvaða vand-
ræði dagsins eru það besta sem hafa fyrir
þig komið, en ein þeirra eru það. Horfðu
framhjá því sem sagt er.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þennan dag ætti að nota til
þess að skipuleggja ferðir með fjölskyldunni.
Leggðu inn í gleðibankann líka. Hafðu bara
hægt um þig þar til öldurnar lægir og ræddu
þá málið við yfirmann þinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að reyna að útiloka þig
frá öllum óþarfa truflunum svo þú getir ein-
beitt þér að því sem máli skiptir. Vertu léttur
við fólk og haltu leið þinni áfram.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sá tími sem listirnar taka er dýr-
mætur. Ekki slá á framrétta hönd þess, sem
vill veita þér aðstoð í viðkvæmu vandamáli.
Það verður að leysa það farsællega.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú gætir fundið til óvæntrar löng-
unar til að sýna einhverjum ókunnugum
góðvild í dag. Eins er komið fyrir mannfólk-
inu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er mikil hætta á átökum og því
ættirðu að forðast að lenda í deilum við lög-
reglu, yfirmenn þína eða foreldra. Breytingar
sem þú leggur til mæta mikilli andstöðu.
Karlinn á Laugaveginum var aðkoma úr Dómkirkjunni, þegar
ég sá hann á sunnudaginn, því að
hann er kirkjurækinn. Við gengum
meðfram alþingishúsinu og hann
benti mér á grjóthnullung gráan á
flötinni við Kirkjustræti og sagði:
Mælti Brynjólfur bóndi á Felli:
„Mér blöskrar í hárri elli
þetta útlenda dót
þetta drasl, þetta grjót
þessi della á Austurvelli.“
Og síðan settist hann á bekkinn
með kumpánum sínum og fékk sér
Egil sterka.
Ég fékk góðan netpóst frá Frið-
geiri Einari, sem bar þessa yf-
irskrift: „Bónorðið: Ást er einstök.
Hjónaband er allt annað“:
Að ljúga og mæla satt í senn
er snilld,
villa öðrum sýn og viti menn
að vild.
Maður daufheyrðist í denn
fordild
og hættir til þess aftur og enn
ást mild
Við leiðumst fagra fröken
í fylgd
svo hvarfstu á braut og ég brenn
brottsigld.
Að ljúga og mæla satt í senn
var snilld.
Einsamall fór villt og viti menn
að vild.
Jón Bergmann orti:
Ástin blind er lífsins lind
– leiftur skyndivega –
hún er mynd af sælu og synd,
samræmd yndislega.
Og enn orti hann:
Ástin heilög heillar mig,
hún er Drottins líki.
Meðan einhver elskar þig
áttu himnaríki.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ást er einstök
– hjónaband er allt annað
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
SÆL
KRAKKAR
ÞAÐ ER
KOMINN
TÍMI TIL AÐ...
...HITTA
DANSANDI
HEILA-
DINGULINN
ÉG
ÞOLI EKKI
FRÆÐSLUÞÆTTI
ÞETTA
FÓR
EKKI
VEL
AF
HVERJU
GETURÐU EKKI
GERT NEITT
RÉTT?
VEGNA
ÞESS AÐ ÞÚ ÞARFT
EKKI AÐ BORGA
MÉR MIKIÐ?
AF HVERJU SÆTTI
ÉG MIG VIÐ ÞAÐ AÐ ÞÚ
KLÚÐRIR ALLTAF ÖLLU SEM
ÞÚ TEKUR ÞÉR FYRIR
HENDUR?
HVAR ER
VINUR
ÞINN,
HANN
NONNI
NAUT?
HANN ER
EKKI NAUT
LENGUR. EFTIR
AÐ ÞEIR
BREYTTU
STJÖRNU-
MERKJUNUM
ÞÁ ER HANN
ORÐINN
STEINGEIT
HMMM...
STEINGEIT, ERU
ÞÆR EKKI MIKLU
VIÐKVÆMARI EN
NAUT? HEFURÐU
TEKIÐ EFTIR
EINHVERJUM
BREYTINGUM Í
FARI HANS
NEI, ÉG
GET EKKI
SAGT ÞAÐ
Víkverji kom víða við í sum-arfríinu og naut þess sem ís-
lensk ferðaþjónusta hefur upp á að
bjóða. Ekki vantaði að nær daglega
komu freistandi tilboð í pósthólfið
frá flugfélögunum um hoppferðir til
útlanda. Til hvers að fara út, hugs-
aði Víkverji með sér. Brakandi sól
og blíða upp á hvern dag á meðan
fregnir bárust utan úr heimi um
flóð, fellibylji, skógarelda og þess
háttar óveður og náttúruhamfarir.
Nei, við þessar aðstæður er betur
heima á Fróni setið en af stað farið.
x x x
Eitt af því sem gladdi Víkverja ífríinu var að uppgötva hvað
mikið er um hreint ágætis golfvelli
víða um land. Meðal þeirra valla
sem komu skemmtilega á óvart var
Reykholtsdalsvöllur á bænum Nesi
í Reykholti í Borgarfirði, skammt
frá kirkjustaðnum. Þar ráða ríkjum
Bjarni Guðráðsson og Sigrún Ein-
arsdóttir sem á fáum árum hafa
byggt upp völl sem stenst sam-
anburð við marga á suðvesturhorn-
inu og í stærra þéttbýli en Reyk-
holtsdalur er. Völlurinn er
hannaður af Hannesi Þorsteinssyni
golfvallaarkitekt og hefur honum
tekist að hanna nokkrar skemmti-
legar en um leið erfiðar brautir fyr-
ir jafn lélegan kylfing og Víkverji
er! Á vellinum er ein lengsta par 5
hola landsins, um 540 metrar, og
það þarf að taka upp kíki á teignum
til að sjá fánann við enda braut-
arinnar.
x x x
Fyrir sumarfríið fjárfesti Víkverji íGolfkortinu og sér ekki eftir því.
Stórsniðug hugmynd fyrir kylfinga
með fjölskylduna á ferðalagi og þeir
kynnast betur þeirri flóru sem golf-
vellir landsins hafa upp á að bjóða.
Af fleiri stöðum getur Víkverji einn-
ig nefnt Þórisstaði í Svínadal. Þar
er skemmtilegur golfvöllur og einn-
ig mikið og gott tjaldstæði, ásamt
ýmissi annarri afþreyingu fyrir
ferðafólk. Er óhætt að mæla með
smákrók af þjóðveginum í Leir-
ársveit, inn með Hvalfirði og yfir
hálsinn hjá Ferstiklu. Þá blasir við
útivistarparadís. Eða bara sleppa
göngunum og aka fyrir Hvalfjörð-
inn, þar hefur kviknað blómlegt líf
„eftir göngin“. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Hver, sem gjörir vilja
Guðs, sá er bróðir minn, systir og móð-
ir. (Mk. 3, 35.)
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 & Strandgata 25 • Akureyri • sími 456 1185 • www.tonastodin.is
Tónastöðin
býður upp á mikið úrval
hljóðfæra og nótnabóka
fyrir allar tegundir tónlistar
og leggur áherslu á góða
og persónulega þjónustu.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is