Morgunblaðið - 24.07.2012, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Poppdrottningin
Madonna er iðu-
lega á milli tann-
anna á fólki sök-
um djarfrar
framkomu. Nú
síðast olli hún
fjaðrafoki eftir
að hafa mundað
skotvopn á tón-
leikum sínum í
Skotlandi. Þar-
lend yfirvöld hugðust stoppa tón-
leika hennar ef hún drægi upp
vopnin. Gæslumenn skárust þó ekki
í leikinn og söngkonan dillaði sér
um sviðið með AK47 hríðskotariffil
og skammbyssur, áhorfendum til
ómældrar ánægju.
Með byssur á sviði
Umdeild Söng-
konan vígaleg.
Fyrsta lagið af
nýju plötu Snoop
Dogg, Reincarnat-
ed, er komið í spil-
un en á plötunni
má einungis finna
reggí-lög. Rappar-
inn kennir sig ekki
lengur við hund
heldur titlar hann
sig ljón. Snoop
Lion fær dygga að-
stoð frá Diplo, sem margir þekkja úr
Major Lazer, á nýju plötunni en sá
síðarnefndi hefur meðal annars unn-
ið með Beyoncé og M.I.A.
Hundur orðinn ljón
Breyttur Snoop
Dogg spilar reggí.
Bandaríska
sveitin The Kill-
ers er með nýja
plötu í bígerð og
er áætlað að hún
komi út 17. sept-
ember næstkom-
andi. Söngvari
hljómsveit-
arinnar, Brand-
on Flowers, hef-
ur lýst því yfir
að lögin á nýju
plötunni verði frábrugðin því sem
hafi áður heyrst frá sveitinni. Eitt
lag af plötunni er nú þegar komið í
spilun en það er lagið Runaways.
Flowers segist vera afar stoltur af
laginu og að fleiri lög í svipuðum
dúr sé að finna á plötunni.
Nýir straumar frá
The Killers
Sveitin Tónleika-
bandið hefur notið
mikilla vinsælda.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Þetta leggst mjög vel í mig og verður
rosalega skemmtilegt. Við erum búin
að vera að æfa á fullu. Hljómsveitin er
stór, átta manna, margar raddir og
fullt af gestum sem stíga á svið. Það
eru nokkrar æfingar eftir og svo er
bara komið að stóru stundinni. Þetta
er bara yndislegt,“ segir Sigga Bein-
teins, glöð í bragði.
Hún er hrærð yfir öllu því góða
fólki sem stendur að tónleikahaldinu
með henni.
„Það er svo stórgott tónlistarfólk í
kringum mig að ég fæ bara tár í aug-
un. Strákarnir sem spila með mér eru
frábærir og ég er ekki með verstu
bakraddir í heimi heldur. Þetta er al-
veg framlínan sem ég er með: Erna
Hrönn, Friðrik Ómar, Regína Ósk.“
Auk þeirra mun Björgvin Hall-
dórsson og Páll Óskar Hjálmtýsson
stíga á stokk auk fjölda annarra.
Leynimakk vinanna
Sigga fær þó ekki að vita um allt
sem fram fer á tónleikunum. Ljóst er
að eitthvert leynimakk er á meðal
vina hennar.
„Ég held að Friðrik Ómar sé eitt-
hvað að plotta og er kominn með
ennþá fleiri söngvara til liðs við sig.
Ég veit ekkert hverjir þeir eru en
þekktir eru þeir, ég held að þeir komi
fram í kór, án þess að ég viti nokkuð.“
Góður vinskapur er milli Friðriks
Ómars og Siggu. „Friðrik atti mér út í
þetta. Ég ætlaði ekki að gera þetta
fyrr en í haust en ég sé eiginlega ekki
eftir því. Þetta hefur verið yndislegur
tími og gaman að halda tónleikana á
sjálfan afmælisdaginn.
Friðrik Ómar er búinn að grafa upp
allskyns vídeómyndir sem ég má alls
ekki sjá. Hann hlær bara þegar ég
spyr hvað hann sé með og segir: „þú
sérð það bara seinna.““
Greina má mikla tilhlökkun í rödd-
inni þó Sigga reyni að dylja hana.
Óvæntar uppákomur og sannkallaðir
stórtónleikar eru í uppsiglingu.
Mikill metnaður hefur verið lagður
í tónleikadagskrána sem spannar all-
an söngferil Siggu. Myndir og gamlar
vídeóupptökur koma til með að setja
lifandi svip á tónleikana.
„Friðrik hefur hjálpað mér mikið
og er mjög duglegur og ákaflega
flinkur í tónleikauppsetningu,“ segir
Sigga.
Aðspurð um uppáhaldslög gerir
hún ekki upp á milli þeirra. „Ég tek
öll lög sem mér finnst uppáhalds.
Farið verður í gegnum allan ferilinn.
Eurovision og Stjórnin eiga stóran
þátt í mínum ferli auk sólóferilsins.
Fyrsta lagið mitt sem kom út, „Vertu
ekki að plata mig“ fær að hljóma. Auk
þekktra laga með Stjórninni og að
sjálfsögðu verður Eurovision lagið
„Eitt lag enn“ tekið.
Öll lögin eru hrist saman eins og í
góðum kokteil.
Við keyrum þetta upp á hressum
lögum í bland við rólegri. Þetta verður
rosalega skemmtilegt, sumarlegt og
létt.“
Talið berst að hljómsveitinni
Stjórninni sem hún var aðalsöngkon-
an í á níunda og tíunda áratugnum.
„Draumurinn var að koma Stjórn-
inni saman í fyrsta skipti í mörg ár en
það tókst ekki í þetta skiptið að
minnsta kosti. Margir eru úti en við
komum vonandi saman öll seinna.
Grétar Örvarsson kemur að sjálf-
sögðu fram með mér á afmælis-
daginn.“
Fjörugir tvíburar
Sigga og sambýliskona hennar,
Birna María Björnsdóttir, eiga saman
fimmtán mánaða gamla tvíbura, Alex-
öndru Líf og Viktor Beintein.
Hún hefur í nægu að snúast að
samræma barnauppeldi og erilsamt
starf tónlistarmannsins.
„Það hefur orðið mikil breyting á
mínum högum eftir að þeir komu, að
sjálfsögðu til hins betra. Það er mikil
vinna að setja saman tónleika eins og
þessa, æfingaplan og annað þess
háttar. Annars gengur mjög vel að
samræma þetta en við eigum líka
góða að. Það er mikil vinna að vera
með tvö lítil á sama aldri. Lítill svefn
hefur verið undanfarið og aðeins
svefnóregla á þeim. Á þessum aldri,
rúmlega eins árs eru allir fjörugir, út-
um allt og uppi á öllu. Maður þarf oft
að velja hvor er í meiri hættu, þá
hleypur maður þangað,“ segir Sigga
þakklát og glöð í bragði.
Sigga Beinteins á fullu
Söngkonan fagnar 50 ára afmæli og 30 ára söngafmæli 26. júlí og heldur veg-
lega tónleika í Háskólabíói Óvæntir gestir og gömul myndbrot líta dagsins ljós
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tvöfalt afmæli „Öll lögin eru hrist saman eins og í góðum kokteil. Við keyrum þetta upp á hressum lögum í bland
við rólegri. Þetta verður rosalega skemmtilegt, sumarlegt og létt,“ segir Sigga Beinteins.
Kjell Espmark (f. 1930) ermenningarviti í besta ogfyllsta skilningi þessorðs. Hann er jafnvígur á
bókmenntafræði, menningarsögu,
skáldsagnaritun og ljóðagerð, og
nýtur slíkrar virðingar í heimalandi
sínu að síðan 1981 hefur hann verið í
Sænsku akademíunni, þeim útvalda
hópi sem útdeilir bókmenntaverð-
launum Nóbels.
Þetta ljóðaúrval í fagmannlegri og
lipurri þýðingu Njarðar P. Njarðvík
inniheldur efni úr öllum 13 ljóðabók-
um Espmarks og gefur því gott yfir-
lit yfir þróun skáldlistar hans. Það
verður þó að segjast að almennt eru
nýjustu ljóð hans jafnframt þau
bestu – þar finnur hann sína réttu
rödd sem skáld og tjáir sig af bæði
öryggi og yfirvegaðri nákvæmni. Ef
til vill hefði því verið betra að tak-
marka úrvalið við síðustu sex ljóða-
bækurnar, og sleppa þeim sjö fyrstu.
Ef skáld eru steinar, þá er Esp-
mark svört basaltperla af Djúpa-
lónssandi. Hann glitrar ekki, og
hann hefur hvorki hvassar brúnir né
margbrotna lögun, en engu að síður
vekur hið slétta og fágaða yfirborð
ljóða hans hljóð-
láta en jafnframt
sérstæða nautn
með lesendanum.
Baksvið
margra ljóðanna
er sótt úr sögu
evrópskrar
menningar, þar
sem valdbeiting
og mannleg reisn
takast á. Espmark laumar oft inn til-
vísunum í sögulegar persónur eða
bókmenntaverk, sem lesandinn þarf
að vera nokkuð vel upplýstur til að
geta gripið. Ef það tekst ljá þær hins
vegar ljóðunum aukna dýpt. Áhuga-
vert dæmi um þetta er tilvísun í
Gunnar á Hlíðarenda í ljóðinu „Nor-
egsfarið beið óþolinmótt“, sem Ís-
lendingar skilja strax, en sem búast
má við að hafi farið fyrir ofan garð
og neðan hjá flestum sænskum
lesendum:
En á brottfararstundu
stóð ég orðlaus við rætur fjallsins.
Hlíðin var grænni en frelsið
Lifendur eiga
sér enga gröf
Kjell Espmark - Skrifað í skýin
bbbmn
Kjell Espmark: Skrifað í skýin. Ljóðaúr-
val. Njörður P. Njarðvík íslenskaði.
Reykjavík, Uppheimar, 2012. 152 bls.
BALDUR
KRISTINSSON
BÆKUR
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
VANDAÐUR
REGNFATNAÐ
UR
FYRIR ALLA!