Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Í verkinu fæst ég við hugleiðingar
um minningar og hvernig minnið
virkar, hvað við munum og hvernig
við búum til nýjar minningar,“ segir
Þórgunnur Oddsdóttir, listamaður og
fréttakona. Um þessar mundir eru
myndskeið eftir Þórgunni til sýnis á
myndbandsinnsetningu Kling &
Bang í Listasafni Reykjavíkur á sýn-
ingu sem ber yfirskriftina Úr
skuggskjá en hún er í tengslum við
(I)ndependent People á vegum
Listahátíðar Reykjavíkur.
Tíminn og minnið
„Mér finnst tengsl ljósmynda og
minni mjög áhugaverð. Við tökum
bæði myndir til þess að muna og
munum líka það sem við eigum
myndir af. En svo geta tengsl líka
rofnað, t.d. þegar enginn man lengur
hvað er á tiltekinni mynd, hver tók
hana og í hvaða tilefni hún var tekin,“
segir Þórgunnur. „Þetta er mynd-
skeið sem ég tek upp, „slides“
myndasýning,“ segir Þórgunnur og
bætir við að upptökuvélin sjálf spili
einnig þátt í verkinu. „Mér fannst
áhugavert hvernig „slides“-mynda-
vélin virkar að vissu leyti svipað og
minnið, kallar fram eina mynd í einu.“
Á þann hátt verður miðillinn sem
Þórgunnur notast við einhverskonar
myndlíking fyrir minnið og sjónina.
„Bæði upptökuvélin og „slides“-
myndavélin virka að vissu leyti eins
og augað.“ En hvað gerist þegar
minnið, eða myndavélin, bregst? „Inn
á milli koma stundum auðir rammar,
og stundum eru ákveðnir hlutir sem
maður kýs að sýna eða muna ekki,“
segir Þórgunnur.
Hugleiðingar um tímann hafa einn-
ig hlutverk í verkinu. „Hljóðið í sýn-
ingarvélinni minnir örlítið á klukku,
það er tæki sem malar stanslaust
áfram í ákveðnum takti. Hljóðið er
bæði sefandi og á sama leyti verður
maður geðveikur ef maður hlustar of
lengi á það,“ segir Þórgunnur. „Pínu
notalegt en samt svolítið ógnvekjandi
til lengdar.“
„Alltaf einhver miðlun“
Í verkinu notar Þórgunnur myndir
úr eigin fjölskyldusafni en þrátt fyrir
það segir hún áhersluna í verkinu síð-
ur en svo vera á þessar ákveðnu
myndir. „Það skiptir ekki máli hvað-
an myndirnar koma, ég valdi mynd-
irnar frekar út frá því að þær minntu
á hefðbundnar og algengur senur úr
fjölskyldumyndaalbúmum.“
Ásamt því að vera listakona starfar
Þórgunnur einnig sem fréttakona hjá
RÚV. „Það er kannski svolítið skrýt-
ið. En samt ekki, því í raun snýst
þetta allt um einhverja tegund af
miðlun.“
Hverfult Minnið og tíminn er ráðgáta sem Þórgunnur fæst við í verkum sínum með ljósmyndun og myndskeiðum.
Hugleiðingar úr skuggsjá
minninganna og tímans
Þórgunnur „Í raun snýst þetta allt
um einhversskonar miðlun.“
„Pínu notalegt en samt svolítið ógnvekjandi til lengdar“
og döggin hélt stjörnunum kyrrum.
Þetta var góður staður til að deyja.
Hér sést reyndar algeng aðferð
Espmarks: Hann setur sig í spor
einhverrar persónu og talar fyrir
munn hennar, en heldur um leið
fjarlægð sinni. Þessi togstreita milli
innra og ytra, hins huglæga og hlut-
læga, ljær rödd hans ákveðinn
tregablæ, sem einnig kemur fram í
sjálfstæðum hugleiðingum hans um
dauðann, náttúruna og þau óljósu
tengsl milli vitundar og veruleika
sem opinberast í hinu lifandi tungu-
máli:
Eins lengi og þetta tungumál er talað
þarf enginn að greina sig frá skýjunum,
enga að slíta frá þeim sem hún elskar:
lifendur eiga sér enga gröf.
Frágangur bókarinnar er prýði-
legur. Pappír, letur og bókband eru í
góðu lagi og prentvillur fáar sem
engar. Það er hins vegar nokkur
galli á útgáfunni að ekki skuli vera
að finna neinn formála eða aðra um-
fjöllun um skáldið í bókinni.
Morgunblaðið/Golli
Menningarviti Sænska ljóðskáldið Kjell Espmark er jafnvígt á bókmennta-
fræði, menningarsögu, skáldsagnaritun og ljóðagerð.
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 10-18, LAUGARDAGA: LOKAÐ
MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM
SJÓNMÆLINGAR– LINSUMÁTANIR
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í YFIR 1
5 ÁR
T I L B O Ð
GLERAUGU
FRÁ 19.900,-
DAGLINSUR
FRÁ 2.500,-
PAKKINN