Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 206. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Fyrirsæta lofar Ísland í hástert
2. Þórarinn Sigurjónsson látinn
3. Birti nöfn árásarmanna á Twitter
4. Klein huggar Katie Holmes
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í dag fer fram þriðjudagsganga í
Viðey þar sem boðið verður upp á
leiðsögn með táknmálstúlkum. Gang-
an hefst kl. 19.30 og eru gestir hvatt-
ir til þess að klæða sig eftir veðri og
mæta í þægilegum skófatnaði.
Morgunblaðið/Ómar
Viðeyjarganga með
táknmálstúlki
Í tilefni af 50
ára afmæli og 30
ára söngafmæli
sínu heldur Sigga
Beinteins afmæl-
istónleika í Há-
skólabíói fimmtu-
daginn 26. júlí kl.
20. Fjöldi þekktra
tónlistarmanna
stígur á svið ásamt Siggu, m.a. Björg-
vin Halldórsson, Páll Óskar Hjálmtýs-
son, Grétar Örvarsson og Regína Ósk
Óskarsdóttir. » 30
Afmælistónleikar
Siggu Beinteins
Kammerkórinn Schola cantorum
syngur á hádegistónleikum í Hall-
grímskirkju á morgun kl. 12, en tón-
leikarnir eru í samstarfi við Al-
þjóðlegt orgelsumar
kirkjunnar. Kórinn
fagnar einnig út-
gáfu nýrrar hljóm-
plötu sem nefnist
Foldarskart sem
inniheldur ís-
lensk lög af
efnisskrá sum-
artónleikanna.
Kammerkórtónleikar
í Hallgrímskirkju
Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og
föstudag Hæglætisveður, úrkomulítið og bjart með köfl-
um. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í uppsveitum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg breytileg átt eða hafgola og
víða léttskýjað. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum.
VEÐUR
Það er óhætt að segja að ís-
lenska landsliðið í hand-
knattleik karla fari lemstrað
til London á Ólympíuleikana.
Margir lykilleikmenn liðsins
eru tæpir og sumir hreinlega
meiddir. Áhyggjuefni Guð-
mundar Þórðar Guðmunds-
sonar landsliðsþjálfara
hlýtur því að vera meiðsl-
in og hvort þeir leik-
menn sem glíma við þau
geti hreinlega haldið út
langt og erfitt mót. »1
Lemstrað lið á
leið til London
Badmintondrottningin Ragna Ing-
ólfsdóttir getur verið ánægð með rið-
ilinn sem hún leikur í á Ólympíu-
leikunum í London sem hefjast um
helgina. Hún dróst gegn einum af lök-
ustu keppendunum úr fyrsta styrk-
leikaflokki og síðan gegn andstæð-
ingi sem Ragna þekkir vel og hefur
ávallt sigrað. »4
Ragna heppin með riðil
á Ólympíuleikunum
Eyjamenn unnu sjötta leik sinn í röð í
Pepsi-deild karla í fótbolta í gærkvöld
þrátt fyrir að þeir væru manni færri
gegn Selfyssingum frá fyrstu mínútu.
Fylkismenn koma áfram á óvart og eru
í fimmta sæti eftir sigur í Keflavík.
Mikil dramatík var í lokin þegar ÍA og
Breiðablik skildu jöfn, 1:1, og aðalfjörið
í sigri Fram á Val var á tveimur mín-
útum um miðjan síðari hálfleik. »2-4
Tíu Eyjamenn með
sjötta sigurinn í röð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
„Þetta er ofsalega spennandi og
stór draumur að rætast hjá mér,“
segir Emilía Benedikta Gísladóttir
dansari en hún fékk á dögunum inn-
göngu í einn stærsta dansflokk
Spánar, Compañía Nacional de
Danza.
Að sögn Emilíu átti hún ekki von
á að komast inn, en inntökuferlið er
afar strangt og margir um hituna.
„Fyrst þurfti ég að sækja um þátt-
töku í prufunni. Þá sendi ég út fer-
ilskrána mína og myndir. Síðan
voru dansarar valdir úr þessum um-
sóknum og ég fékk boð um að koma
í prufuna, en alls var 350 dönsurum
boðið í prufur. Eftir fyrsta dag kom-
ust 60 áfram og svo var smátt og
smátt skorið niður. Að lokum kom-
ust svo sjö stelpur og sjö strákar
inn í flokkinn,“ segir Emilía.
Fékk frí frá golfinu
Spurð hvað hafi kveikt áhuga
hennar á að ganga til liðs við flokk-
inn segir hún sýningu með honum
hafa haft mikil áhrif á sig. „Ég sá
þennan dansflokk fyrir nákvæmlega
ári en þá var ég stödd í fjöl-
skyldufríi. Flestir voru uppteknir
við að spila golf alla daga og mig
langaði að verja einum degi í áhuga-
málin mín og keypti mér miða á
sýningu með flokknum. Ég varð þá
alveg ástfangin af honum og hugs-
aði með mér að þetta væri nokkuð
sem ég vildi gera. Mig hefur alla tíð
langað að spreyta mig í erlendum
dansflokki og núna líður mér eins
og ég sé tilbúin í það,“ segir Em-
ilía. Flokkurinn takmarkar sig
ekki við eina dansstefnu. „Verkin
sem flokkurinn setur upp eru ým-
ist klassísk eða módern en ég er
ráðin sem móderndansari,“
segir Emilía en hún hefur
starfað hjá Íslenska dans-
flokknum síðan árið 2005. Hún
hefur náð miklum árangri á
sínu sviði og hlaut meðal annars
Grímuverðlaunin árið 2008 sem
besti dansari ársins.
Hún fær ekki mikinn tíma til að
flytjast búferlum milli landa. „Pruf-
urnar voru um síðustu helgi og ég
hef störf í byrjun september svo
fyrirvarinn er stuttur. Í ágúst mun-
um við fjölskyldan flytja til Madr-
ídar, og þá þarf að byrja á að finna
leikskólapláss og koma sér fyrir,“
segir Emilía en hún flytur út ásamt
tveggja ára syni sínum og kærasta,
Herði Sigurjóni Bjarnasyni.
„Flokkurinn er nokkuð stór en í
honum eru um 40 dansarar sem eru
meðal annars frá Ítalíu, Bandaríkj-
unum og Kóreu en að mér vitandi er
enginn annar frá Norðurlönd-
unum,“ segir Emilía.
Áhorfandi í fyrra, dansari í ár
Ein örfárra sem
komust inn í dans-
flokk í Madríd
Ævintýri „Mig hefur alla tíð langað að spreyta mig í erlendum dansflokki og núna líður mér eins og ég sé tilbúin í
það,“ segir Emilía Benedikta sem síðustu ár hefur dansað með Íslenska dansflokknum.
Emilía segir muninn á Compañía
Nacional de Danza og Íslenska
dansflokknum aðallega fel-
ast í stærðinni. „Hjá Dans-
flokknum eru yfirleitt í
kringum 10 dansarar í
hverri sýningu en þarna eru
40 dansarar. Þar ríkir
meiri samkeppni, maður
þarf að fara í prufu fyrir
hvert einasta verk,“
segir Emilía. „Flokk-
urinn er ekki bundinn við neitt
leikhús heldur ferðast um allan
Spán og sýnir mjög víða sem mér
finnst ofsalega skemmtilegt,“ seg-
ir hún. „Það verður gaman að
kynnast landinu frá þessu sjón-
arhorni.“
Aðspurð segist hún hlakka til að
fara í spænskunám af fullum
krafti, „ég lærði tungumálið í
menntaskóla og hef ágætis grunn
sem ég ætla mér að byggja á“.
Ferðast um gervallan Spán
DÝRMÆTT TÆKIFÆRI TIL AÐ KYNNAST LANDINU
Emilía Benedikta
Gísladóttir