Kjarninn - 07.08.2014, Blaðsíða 5
02/03 leiðari
fréttatilkynningu frá Isavia á dögunum. Til þess að bregðast
við sprengingunni hefur Isavia ráðist í ýmsar framkvæmdir
undanfarið. Nýverið var lokið við tvöföldun á afkastagetu
farangursflokkunarkerfisins og þessi dægrin er unnið að því
að steypa sökkul að fimm þúsund fermetra viðbyggingu við
suðurhluta flugstöðvarinnar sem gert er ráð fyrir að taka í
notkun árið 2016.
viðrekstrar og olnbogaskot
Á sama tíma og alþjóðaflugvöllurinn
okkar er svo gott sem sprunginn ríkir
kraðaksástand á helstu ferðamanna-
stöðum landsins, með tilheyrandi við-
rekstrum og olnbogaskotum, samfara
ört hækkandi verði á súkkulaðitertu-
sneiðum, vondu kaffi og snakkpokum. Á
meðan brugðist er við vegna hriktandi
innviða á Keflavíkurflugvelli eru aðrir innviðir látnir reka
á reiðanum. Það blasir við að stóraukinn fjöldi ferðamanna
hefur sömuleiðis áhrif á aðra innviði samfélagsins, svo sem
vegakerfið og heilbrigðiskerfið. Þar hlýtur óneitanlega að
hrikta líka í stoðum.
Biðraðir við helstu ferðamannastaði landsins eru orðnar
daglegt brauð og á þeim er farið að sjá. Algjört stefnuleysi
virðist ríkja varðandi ágang á íslenskar náttúruperlur.
Sprenging í komu ferðamanna til landsins hefur margar
afleiðingar, og alls ekki bara slæmar. Verslunarrekstur
blómstrar til að mynda við Laugaveginn, litlar búðir með
sérhæfðan varning spretta upp eins og gorkúlur og töluvert
líf hefur færst í minni bæjarfélög úti á landi, sem áður máttu
muna sinn fífil fegurri. Á sama tíma hlaðast ný hótel upp,
sem margir efast um að muni nokkurn tímann standa undir
sér. Gullæðið er í algleymingi.
tjaldað til einnar nætur eins og venjulega
Þó svo að ferðaþjónustan sé nú orðin ein helsta tekjustoð
þjóðarbúsins má gera miklu betur. Í tengslum við boðaðan
„Viljum við að
Ísland verði eins og
heildsöluverslun, með
malbikaða vegi fyrir
Yaris bílaleigubíla með
ótakmarkað framboð
af vörum fyrir alla?“