Morgunblaðið - 14.08.2012, Síða 1
Stofnað 1913 188. tölublað 100. árgangur
VESTURPORT
HEFUR MÖRG
JÁRN Í ELDINUM
ÞAKKAÐI FYRIR
SIG MEÐ MYND
AF BARNI
GETUM ÁGÆTLEGA
VIÐ UNAÐ EFTIR
ÓLYMPÍULEIKANA
COLLINGWOOD 13 ÞRJÚ ÍSLANDSMET ÍÞRÓTTIRSJÓNVARPSÞÆTTIR, KVIKMYND OG LEIKRIT 30
Jens Stolten-
berg, forsætis-
ráðherra Nor-
egs, sagði á
blaðamanna-
fundi í gær að
sér þætti mjög
miður að lög-
regluyfirvöld
skyldu ekki hafa
brugðist nógu
skjótt við hryðju-
verkunum í Ósló og Útey 22. júlí í
fyrra.
Á fundinum var Stoltenberg
ítrekað spurður hvort hann myndi
segja af sér vegna harðrar gagn-
rýni á lögregluna í nýrri skýrslu
um málið. Hann kvaðst bera
ábyrgð á því sem fór úrskeiðis en
telja réttara að hann sæti áfram til
að koma á þeim úrbótum sem nauð-
synlegar væru til að tryggja að slík
hryðjuverk yrðu ekki framin aftur.
»15 og forystugrein
Stoltenberg kveðst
ekki segja af sér
Jens
Stoltenberg
Viðar Guðjónsson
Hjörtur J. Guðmundsson
Árni Þór Sigurðsson, þingflokksfor-
maður Vinstri grænna og formaður
utanríkismálanefndar, segir „eðli-
legt“ að allir flokkar endurmeti af-
stöðu til Evrópusambandsaðildar í
ljósi umróts í Evrópu. Hann býst
við því að þingflokkur Vinstri
grænna komi saman á næstunni og
ræði aðildarferlið. Ekki sé þó hægt
að segja til um það á þessari stundu
hvort það leiði til einhverrar af-
stöðubreytingar til ferlisins í heild
eða um þann tímaramma sem unnið
er eftir í aðildarviðræðunum.
Þetta kom fram eftir fund utan-
ríkisnefndar sem kom saman í gær
og ræddi aðildarferlið.
Þurfa að hugsa ferlið öðruvísi
Árni Páll Árnason, einn þriggja
fulltrúa Samfylkingarinnar í utan-
ríkismálanefnd Alþingis, furðar sig á
því hvers vegna svo ríkur vilji sé hjá
sumum að vilja „skemma plan A
þegar plan B liggi ekki fyrir“. „Ís-
lendingar þurfa að hugsa ferlið
öðruvísi en hingað til. Við þurfum að
hugsa um það hvaða leiðir eru best-
ar fyrir okkur til að vera hluti af
hinu evrópska kerfi,“ segir Árni.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, situr í nefnd-
inni. Hann segir ljóst að viðræðum
við Evrópusambandið verði ekki
lokið á þessu kjörtímabili. „Þessum
viðræðum verður þess fyrir utan
aldrei lokið miðað við óbreyttar að-
stæður.“
Gunnar Bragi Sveinsson, Fram-
sóknarflokki, telur málið komið í
öngstræti og segir ljóst að því fari
fjarri að einhugur ríki um aðild hjá
VG. Sérstaklega í ljósi ummæla
tveggja ráðherra flokksins um liðna
helgi.
Með hangandi hendi
„Það er ekki heiðarlegt gagnvart
neinum að halda þessu áfram svona
með hangandi hendi. Það þýðir ekk-
ert að koma bara alltaf fram annað
slagið eins og vinstri grænir og
mótmæla einhverju en halda síðan
ferlinu bara áfram á fullri ferð eins
og áður,“ segir Gunnar Bragi.
Ekki heiðarlegt að halda áfram
Utanríkismálanefnd ræddi aðildarferlið í gær Tími til að endurmeta stöðuna,
segir formaður nefndarinnar Umræðum lýkur aldrei við óbreyttar aðstæður
MFlokkar endurmeti stöðuna »2
Þrátt fyrir þá meginstefnu Vega-
gerðarinnar að draga úr almennri
tækjaeign og bjóða verkin út eða
semja við fyrirtæki á almennum
markaði rekur stofnunin þrjá vinnu-
flokka og nokkuð af tækjum. Heldur
hefur dregið úr tækjaeign.
Tveir brúarvinnuflokkar og einn
merkingaflokkur taka til sín 450 til
650 milljónir kr. á ári sem er 2-3% af
þeim fjármunum sem Vegagerðin
hefur til vegagerðar. Hlutfallið
sveiflast aðeins á milli ára. Vega-
gerðin reynir að hafa verkefni fyrir
flokka sína og tæki og með lækkandi
framlögum til vegamála er hlutfallið
orðið hærra. Hreinn Haraldsson
vegamálastjóri segir að vinna eigin
vinnuflokka sé svo lágt hlutfall af
verkefnum Vegagerðarinnar að þau
skipti engu máli á markaðnum.
110 smábílar um allt land
Vegagerðin hefur losað sig við alla
vörubíla en á 110 smábíla og 15 þjón-
ustubíla. Þótt veghefum hafi verið
fækkað eykst notkun þeirra. Þannig
voru útseldir tímar heflanna tæplega
11.400 á síðasta ári, rúmum þúsund
tímum fleiri en á árinu á undan. »16
Þrír flokkar starfa
Færri vegheflar – aukin notkun
Þær brostu sínu blíðasta stöllurnar sem örkuðu
upp Bankastrætið síðdegis í gær og eflaust hafa
þær rætt lífsins gagn og nauðsynjar. Sumarið
sem verið hefur milt og bjart víðast hvar á land-
inu er lítið farið að gefa eftir og næstu daga gæti
hitinn sums staðar farið yfir 20 stigin.
Brosandi í blíðunni í borginni
Morgunblaðið/Eggert
Skeiða- og
Gnúpverjahrepp-
ur kostar lagn-
ingu ljósleiðara
heim á alla bæi
sveitarfélagsins.
Verið er að
plægja niður 145
kílómetra af ljós-
leiðara í þessu
skyni og teng-
ingar heimila
hefjast fljótlega. Allir íbúar sem
vilja verða komnir í betra samband
fyrir veturinn. »4
145 kílómetrar af
ljósleiðara í sveitinni
Ljósleiðari bætir
sambandið.
Á árunum 2006-2011 voru allt að
32% gæsluvarðhaldsúrskurða sem
Hæstiréttur staðfesti kveðin upp á
grundvelli almannahagsmuna.
Hæstaréttarlögmaður telur að um
ofnotkun sé að ræða og breyta þurfi
lögum.
Í innanríkisráðuneytinu er ekki
verið að skoða hvort breyta þurfi
skilyrðum fyrir gæsluvarðhaldi. »6
Margir inni vegna
almannahagsmuna
Þ R I Ð J U D A G U R 1 4. Á G Ú S T 2 0 1 2
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra
tilkynnti í gær fyrirhugaða hækkun á
virðisaukaskatti á hótel og gististaði úr
7% í 25,5%. Samtök ferðaþjónust-
unnar segja skattahækkunina „rot-
högg,“ fyrir atvinnugreinina. Oddný
segir að með þessu sé verið að afnema
„ívilnanir“ sem hótel og gistiþjónusta
hafi notið í formi lágs virðisaukaskatts.
„Það er ekki eins og gististaðirnir
séu að mala gull og því er þetta reið-
arslag. Ferðamenn eru að koma hér
vegna þess að krónan er veik og þetta
er markaður sem er mjög næmur fyr-
ir verðbreytingum,“ segir Snorri Vals-
son, hótelstjóri á HótelHolti en hann
situr í gistinefnd Samtaka ferðaþjón-
ustunnar.
Fyrirtæki hafa þegar gefið út
verðskrá auk þess sem sum þeirra eru
búin að selja gistingu 1-2 ár fram í tím-
ann. Að óbreyttu munu því þessi fyr-
irtæki ekki geta sett hækkun virð-
isaukaskatts yfir í verðlag á gistingu
fyrr en að nokkrum tíma liðnum. Því
þurfa hótel og gististaðir að bera
kostnaðinn alfarið.
Að sögn Oddnýjar verður settur á
fót starfshópur í samvinnu við rík-
isskattstjóra til að sporna við und-
anskotum í atvinnugreininni sem hún
segir mikil. Eins mun hann leita leiða
til þess að uppræta sölu einkaaðila á
gistingu til ferðamanna hafi þeir ekki
til þess leyfi.
Júlíus Vífill Ingvarsson borg-
arfulltrúi hyggst taka málið upp í
borgarráði og segir hagsmuni borg-
arinnar mikla af ferðaþjónustu. »2
Gististaðir eru ekki að mala gull
Morgunblaðið/Golli
Á Skólavörðuholti Erlendir ferða-
menn mynda við Hallgrímskirkju.