Morgunblaðið - 14.08.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Árni Þór Sigurðsson, þingflokks-
formaður Vinstri grænna og for-
maður utanríkisnefndar, telur eðli-
legt að allir þingflokkar endurmeti
afstöðu til aðildarumsóknar til Evr-
ópusambandsins. Pólitískar að-
stæður hér á landi og í innan Evr-
ópusambandsins geri það að
verkum.
Árni Páll Árnason, fulltrúi Sam-
fylkingar, í nefndinni telur engan
hafa komið með trúverðuga hug-
mynd um það hvað skuli gera til
þess að tryggja aðkomu Íslands að
sameiginlegum Evrópumarkaði
nema með Evrópusambandsaðild.
Eðlilegt að fara yfir
aðildarviðræður
Utanríkismálanefnd kom saman
í gær og ræddi umsóknarferlið.
Árni Þór segir þróun mála í Evr-
ópusambandinu meðal annars hafa
verið rædda. „Auðvitað var farið lít-
illega yfir þá stöðu sem kominn er
upp í pólitíkinni. Bæði innanlands
og í Evrópusambandinu,“ segir
Árni.
,,Ég er þeirrar skoðunar að það
sé eðlilegt og sjálfsagt að fara yfir
aðildarviðræðurnar í ljósi þeirrar
þróunar sem hefur verið í efnahags-
og peningamálum í Evrópu og er
fyrirsjáanlegur á næstunni. Eins í
ljósi þess að okkur hefur enn ekki
tekist að ræða um mikilvæga flokka
aðildarferlisins eins og sjávarút-
vegsmálin. Hvort það leiði til nýrra
ákvarðana varðandi tímarammann
sem við höfum gefið okkur eða
hvort það leiði til nýrra ákvarðana
um ferlið sjálft er of snemmt að
segja til um núna,“ segir Árni.
Hann segir að þingflokkur
Vinstri grænna muni koma saman á
næstunni og endurmeta aðildarferl-
ið. „Mér finnst eðlilegt að allir
flokkar geri það á þessum tíma-
punkti,“ segir Árni.
Hvert er plan B?
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Framsóknarflokks,
situr fyrir flokkinn í nefndinni.
„Eftir þessa fundi er málið bara að
mínu viti í öngstræti. Það er ljóst að
það er margra, margra mánaða
vinna eftir í þessu ferli. Það er ljóst
að það eru fleiri að hlaupast frá
verkefninu en áður. Þannig að það
hlýtur einfaldlega að vera skýr
krafa að þetta verði stöðvað núna
og farið yfir málin upp á nýtt,“ segir
Gunnar Bragi.
Árni Páll Árnason, Samfylkingu,
telur að ekki sé hyggilegt að hverfa
frá aðildarumsókn. „Þó að það séu
vandamál í Evrópu breytir það ekki
heildarmyndinni. Við fórum ekki í
aðildarviðræður til þess að þóknast
Evrópusambandinu. Við fórum í
þær því við teljum íslenskum þjóð-
arhagsmunum best borgið með að-
ild,“ segir Árni. „Stundarhagsmun-
Flokkar endurmeti stöðuna
Þingflokksformaður VG telur eðlilegt að flokkar endurmeti afstöðu til
aðildarferlis Skrítið að vilja skemma „plan A“ segir Árni Páll Árnason
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fundahöld Utanríkismálanefnd kom saman í gær og var umsóknarferlið til umræðu og staðan í viðræðunum.
Tveir hælisleitendur,
annar frá Marokkó og
hinn frá Alsír, voru
handteknir á hafn-
arsvæðinu við Grundar-
tanga í gær.
Um er að ræða unga
karlmenn, sem áður
hafa ítrekað reynt að
komast um borð í milli-
landaskip og hefur ann-
ar þeirra m.a. reynt að
komast inn á hafnarsvæðið á Grundartanga
áður.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni
í Borgarfirði og Dölum er talið að menn-
irnir hafi farið inn á lokað hafnarsvæðið í
fyrrinótt en þeirra varð vart í eftirlitskerfi
Faxaflóahafna um hádegisbil í gær. Var
lögreglan þá kölluð til.
Ekki liggur fyrir með hvaða skipi menn-
irnir tveir ætluðu að reyna að komast og
hvert för þeirra var heitið.
Reyndu að
komast um
borð í skip
Tveir hælisleitendur
handteknir á Grundartanga
Skip í Grundar-
tangahöfn.
Norðlenskir bændur
tóku vel boði Slát-
urhúss KVH á
Hvammstanga um að
hefja sumarslátrun
viku fyrr en venju-
lega. Í gær var slátr-
að þar 530 lömbum og
verður kjötið sent
ófrosið til Bandaríkj-
anna til að lengja
sölutímann í versl-
unum Whole Foods.
Magnús Freyr Jónsson, framkvæmda-
stjóri sláturhússins, segist hafa rennt blint
í sjóinn en undirtektir verið vonum fram-
ar. Ætlunin var að slátra 500 lömbum að
þessu sinni og skilaði það sér og aðeins
meira til.
Bændur fá 140 króna álag á dilk fyrir að
leggja þetta snemma inn.
Féð er misjafnt á milli bæja, enda hafa
þurrkar leikið bændur grátt í sumar.
Ætlunin er að slátra enn fleira fé næstu
tvo mánudaga. helgi@mbl.is
Sumarslátrun á
Hvammstanga
Lambakjöti pakkað.
„Það er fyrir það fyrsta ljóst að
viðræðunum við Evrópusam-
bandið verður ekki lokið á þessu
kjörtímabili og þær munu fara
langt inn á það næsta verði þeim
haldið áfram. Þessum viðræðum
verður þess utan aldrei lokið
miðað við óbreyttar aðstæður.
Það er einfaldlega ekki hægt
þegar það er ekki skýr vilji meiri-
hluta þingsins og ríkisstjórn-
arinnar að ljúka samningum og
styðja niðurstöðuna,“ segir
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins. Hann segir
það vera ljóst eins og málin
standa í dag
að það sé ekki
meirihluti fyr-
ir því á Al-
þingi að halda
umsókninni
um inngöngu
í Evrópusam-
bandið til
streitu.
Aðsendar
greinar um Evrópumálin eftir
Bjarna Benediktsson og Jón
Bjarnason, þingmann VG, eru á
bls. 17 í Morgunblaðinu í dag.
hjorturj@mbl.is
Ekki meirihluti fyrir málinu
FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Bjarni
Benediktsson
Árni Þór
Sigurðsson
Árni Páll
Árnason
ir í pólitík hér á
landi ættu ekki
að breyta af-
stöðu manna til
aðildarferilsins.“
Hann segir
engan hafa kom-
ið með trúverð-
uga lausn sem
þjóni íslenskum
þjóðarhags-
munum betur aðild að Evrópusam-
bandinu. „Íslendingar þurfa að
hugsa ferlið öðruvísi en hingað til.
Við þurfum að hugsa um það hvaða
leiðir eru bestar fyrir okkur til að
vera hluti af hinu evrópska kerfi.
Við þurfum ekkert á því að halda að
loka neinum dyrum strax. Það er
svolítið skrítið að þeir sem ekki hafa
plan B keppist við að skemma plan
A,“ segir Árni.
Gunnar Bragi
Sveinsson
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Áætlað er að hækkun á virðisauka-
skatti á gistinætur á hótelum muni
skila ríkissjóði um þremur og hálf-
um milljarði króna í ríkissjóð á árs-
grundvelli. Svo segir Oddný Harð-
ardóttir fjármálaráðherra en
tilkynnt var í gær að virðisauka-
skattur á gistinætur myndi hækka
um 18,5%, úr 7% í 25,5%.
Að sögn Oddnýjar voru sjónarmið
Samtaka ferðaþjónustunnar tekin til
athugunar á fundi í gær. Þar kom
fram að fyrirtæki í ferðaþjónustu
hafa mörg hver selt gistinætur eitt
til tvö ár fram í tímann auk þess sem
þau eru flest búin að gefa út
verðskrá fyrir næsta ár. Fyrir vikið
er ekki hægt að velta skattahækk-
uninni út í verðlag. Gististaðirnir
munu því bera allan kostnað af
skattahækkuninni. Áætlað er að
verð á gistinóttum hækki um 17,3%
við þessa hækkun að sögn Ernu
Hauksdóttur, formanns samtaka
ferðaþjónustunnar.
Erna segir að margir gististaðir
séu að rétta úr kútnum með aukinni
ferðamennsku yfir vetrartímann, en
enginn þeirra geti tekið við þessari
hækkun. „Úti um allt land eru gisti-
staðir sem eru að skapa tekjur í
sinni heimabyggð og þeir skaffa
vinnu. En þeir myndu aldrei þola að
taka þetta á sig.“
Datt ekki í hug að
mönnum væri alvara
Hún segir þessar hugmyndir
koma ferðaþjónustufólki á óvart.
„Okkur datt ekki í hug að mönnum
væri alvara. Að taka grein sem er á
góðri siglingu og veita henni svona
rothögg,“ segir Erna.
Oddný segir ferðaþjónustuna hafa
fengið „ívilnun“ fram til þessa í
formi lágs virðisaukaskatts.
„Í mars 2007 var virðisauka-
skattur lækkaður úr 14% í 7%. Það
var ívilnun fyrir atvinnugreinina,“
segir Oddný.
,,Við funduðum með hagsmuna-
aðilum í dag og ákveðið var að halda
aftur fund til að skoða alla þætti bet-
ur. Við söfnum gögnum á milli funda
og fundum svo aftur,“ segir Oddný.
Snorri Valsson, hótelstjóri á Hótel
Holti, á sæti í gististaðanefnd Sam-
taka ferðaþjónustunnar. „ Mark-
aðurinn er mjög næmur fyrir verð-
breytingum. Þetta er ekki mjólk og
eða önnur nauðsynjavara. Fólk mun
hætta að koma ef verðið hækkar því
það hefur aðra valkosti annars stað-
ar. Vöxtur ferðaþjónustunnar mun
ekki halda áfram endalaust,“ segir
Snorri.
Uppræta á leyfislausa gistingu
Á fundinum var meðal annars
ákveðið að setja saman starfshóp
með ríkisskattstjóra og hags-
munaðilum til að fara yfir lagaum-
hverfi greinarinnar. Hlutverk hóps-
ins verður að kanna það hvernig
hægt verði að koma í veg fyrir und-
anskot. ,,Þau eru mjög mikil nú þeg-
ar og menn hafa áhyggjur af því
þegar virðisaukaskatturinn hækkar
muni undanskot aukast enn meira,“
segir Oddný Harðardóttir.
Hlutverk hópsins verður einnig að
uppræta starfsemi fólks sem býður
upp á gistingu í leyfisleysi. „Það er
margt fólk að bjóða upp á gistingu
án þess að borga neinn skatt. Maður
sér það á erlendum heimasíðum að
fólk er að bjóða gistingu og við vilj-
um uppræta það með skipulögðum
hætti,“ segir Oddný.
Skili þremur og hálfum milljarði
Virðisaukaskattur hækkar um
18,5% Uppræta á leyfislausa sölu
„Ég mun taka málið upp á næsta
fundi borgarráðs og tel það vera
skyldu borgarstjórnar að beita sér
af fullum þunga í þessu máli. Flest
hótel landsins eru í Reykjavík og því
hefur þetta gríðarleg áhrif á at-
vinnulífið í borginni og þá um leið
hag borgarbúa,“ segir Júlíus Vífill
Ingvarsson borgarfulltrúi.
Júlíus Vífill tekur undir sjónar-
mið hagsmunaaðila í ferðaþjónustu
sem segja hækkun virðisauka-
skatts jafngilda rothöggi fyrir
ferðaþjónustu í landinu. „Það er
náttúrlega alveg ferlegt að þegar
ríkisstjórnin sér vonarglóð í at-
vinnulífinu þá
þurfi hún að
hlaupa til og
slökkva hana.
Svo er eftir-
tektarvert að
borgarstjóri og
formaður borg-
arráðs tjá sig ekki
um málið en velja
frekar að vera
undirlægjur ríkisstjórnarinnar þeg-
ar vegið er að svo mikilvægri at-
vinnugrein í borginni,“ segir Júlíus.
Ekki náðist í Jón Gnarr borgar-
stjóra í gærkvöldi. pfe@mbl.is
Óhyggilegt að hækka skatt
AUKIN SKATTHEIMTA RÆDD Í BORGARRÁÐI
Júlíus Vífill
Ingvarsson