Morgunblaðið - 14.08.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Íbúar Skeiða- og Gnúpverjahrepps fá ljósleið-
ara heim til sín á næstu vikum, á kostnað sveit-
arfélagsins. Þeir ættu því að vera komnir í
fyrsta flokks samband fyrir tölvur sínar, síma
og sjónvarp.
„Við teljum fjarskiptamál ákaflega mikils
virði í því að bæta búsetuskilyrði fólks í sveit-
arfélaginu. Við sjáum ekki að símafyrirtækin
geri þetta og næstunni og ákváðum að gera
þetta sjálfir,“ segir Gunnar Örn Marteinsson,
oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, um fram-
kvæmdina. Hann bendir á að fjarskipta-
samband sé lélegt, ekki síst netsamband. „Við
munum fá efnið á skjá tölvunnar um leið og við
ýtum á takkann,“ segir oddvitinn og bætir því
við að svo hafi ekki verið til þessa.
Kostar 180 milljónir
Einhver sveitarfélög og byggðarlög í
dreifbýli hafa áður ráðist í lagningu ljósleiðara
og Gunnar Örn segir að fleiri séu að athuga
möguleikana.
sveitarfélaginu eiga kost á ljósleiðarastreng
gegn því að borga heimtaugina sjálfir. Gunnar
segir að undirtektir íbúa hafi verið jákvæðar
og aðeins tvö eða þrjú heimili hafi afþakkað að
fá strenginn til sín.
Kostnaður sveitarfélagsins er áætlaður
180 milljónir kr. Gunnar Örn segir að fram-
kvæmdin muni ekki raska fjárhagsstöðu sveit-
arfélagsins. Í þetta verkefni séu meðal annars
notaðir fjármunir sem til voru frá því hlutur
sveitarfélagsins í Límtré var seldur á sínum
tíma. Þá muni tekjur fyrir notkun ljósleiðarans
standa undir lánum vegna framkvæmdarinn-
ar.
Skuldbinding í tvö ár
Þeir sem tengjast ljósleiðaranum skuld-
binda sig til að nota hann næstu tvö árin og
greiða fyrir 2.800 krónur á mánuði. Gunnar
bendir á að fólk greiði almennt meira en tvö-
falt þetta gjald í dag, til símafélaganna. Þá
muni símafyrirtækin væntanlega nýta þessa
þjónustu. Reiknað er með að fyrstu húsin verði
tengd upp úr mánaðamótum og öll heimili í
sveitarfélaginu áður fyrir lok nóvember.
að veggjum heimila þar sem fólk er með lög-
heimili. Auk þess munu sumarbústaðaeigend-
ur og jarðaeigendur sem ekki hafa lögheimili í
Ljósleiðarinn verður 145 kílómetrar að
lengd og er verið að plægja hann í jörð þessar
vikurnar. Ljósleiðarinn fer heim á alla bæi og
Ljósleiðari lagður á alla bæi
Skeiða- og Gnúpverjahreppur bætir fjarskiptasambandið á eigin kostnað Kostar 180 milljónir
króna Ljósleiðarinn er alls 145 kílómetra langur Fyrstu húsin tengd um mánaðamót
www.mats.is
Árnes Ljósleiðarinn fer á alla bæi í hinu dreifða sveitarfélagi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Súðavíkurhreppur hyggst leita til
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga með að
fá framlag upp í kostnað af slökkvi-
starfi vegna sinueldanna við Hrafna-
björg í Laugardal. Þar voru enn
glæður hér og þar í gær og slökkvi-
starfi ekki formlega lokið. Eldurinn
kom fyrst upp föstudaginn 3. ágúst
og hefur því geisað í 11 daga. Um 10
hektarar lands hafa brunnið, sem
jafngildir um 13 fótboltavöllum í
fullri stærð.
Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í
Súðavík, segir kostnað af slökkvi-
starfi kominn í um sjö milljónir
króna, eða um 10% af árlegum skatt-
tekjum sveitarfélagsins. Auk
slökkviliðs frá Súðavík hafa starfs-
bræður þeirra frá Ísafirði og Bol-
ungarvík komið til aðstoðar, einnig
þyrla Landhelgisgæslunnar, bænd-
ur með haugsugur og fleiri lagt lið.
„Við munum láta á reyna hvort við
fáum fjármagn upp í kostnaðinn,
sem telst verulega íþyngjandi fyrir
allan okkar rekstur,“ segir Ómar en
hann vísar í 11. grein reglugerðar
um jöfnunarsjóðinn. Þar sé heimild
fyrir framlögum til sérstakra og
íþyngjandi verkefna sveitarfélaga.
Mun sveitarfélagið fyrst leita til
jöfnunarsjóðsins, aðrir sjóðir eins og
Bjargráðasjóður geti frekar komið
landeigendum til aðstoðar við að
dekka þeirra tjón. „Þó að þetta sé
ekki ræktað land þá hafa landeig-
endur orðið fyrir tjóni. Þetta verður
ekki beitiland í bráð,“ segir Ómar.
Hjá Bjargráðasjóði fengust þær
upplýsingar í gær að málið í Laug-
ardal yrði að sjálfsögðu skoðað ef
það kæmi á borð sjóðsins. En til að fá
tjón bætt þyrftu landeigendur að
vera sjóðfélagar og greiða iðgjöld.
Mörgum er í fersku minni Mýrar-
eldarnir svonefndu í Borgarfirði árið
2006, þegar sinueldar geisuðu í
nokkra daga á Mýrunum. Kostnaður
sveitarfélagsins Borgarbyggðar við
slökkvistarf var um fjórar milljónir
króna. Páll S. Brynjarsson sveitar-
stjóri segir Borgarbyggð hafa setið
uppi með þann kostnað að lang-
stærstum hluta. Ekki var þá leitað til
jöfnunarsjóðs eða annarra opinberra
sjóða. Þeir aðilar sem Borgarbyggð
leitaði til með aðstoð við slökkvistarf
brugðust einnig vel við og gáfu góð-
an afslátt, m.a. þyrlufyrirtæki sem
aðstoðaði heimamenn. Bjargráða-
sjóður greiddi tjón sem landeigend-
ur urðu fyrir vegna girðinga sem
eyðilögðust í eldunum.
Súðavík leitar til jöfnunarsjóðsins
Laugardalur Slökkvistarfi að ljúka.
Sinueldar í Laugardal kostað Súðavíkurhrepp um sjö milljónir króna Samsvarar 10% af skatt-
tekjum sveitarfélagsins Íþyngjandi fyrir reksturinn Landeigandi getur leitað til Bjargráðasjóðs
Fossinn Hverfandi á yfirfallinu við vestari enda Kára-
hnjúkastíflu myndast þegar Hálslón fyllist. Það gerðist
óvenju snemma að þessu sinni. Tignarleg sjón er að sjá
fossinn við ýmis veðurskilyrði, þar sem jökulvatnið
steypist 90-100 metra niður í Hafrahvammagljúfur.
Fossinn er svo aflmikill að jafna má við Dettifoss.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Fossinn sem hverfur
Kraftur í jökulvatninu sem steypist fram af Kárahnjúkastíflu
Til stendur að færa
gangbrautina á
Hringbraut við Þjóð-
minjasafn Íslands of-
ar í götuna. Gang-
brautarljósin verða
endurnýjuð í vikunni
og verða þau í leið-
inni færð nokkra
metra í átt að hring-
torginu við Suð-
urgötu til að falla
betur að aðliggjandi
gönguleiðum sam-
kvæmt því sem fram
kemur á vef Reykja-
víkurborgar.
Gangbrautin brúar
bilið milli Háskóla Ís-
lands og miðborg-
arinnar og er mikil umferð um hana
á skrifstofutíma.
Áætlað er að framkvæmdir hefj-
ist á miðvikudagskvöld eftir kl. 20
og verður unnið eitthvað fram eftir
nóttu. Mikil áhersla er lögð á að
vinna verkið á þeim tíma sem það
skapar minnsta truflun fyrir um-
ferð.
Náist ekki að vinna verkið á mið-
vikudagskvöld verður haldið áfram
á fimmtudagskvöld.
Reykjavíkurborg vekur athygli
ökumanna á því að lokað verður fyr-
ir umferð um hluta Hringbrautar á
ofangreindum tímum og henni vísað
á hjáleiðir um Suðurgötu, Skot-
húsveg, Sóleyjargötu og Bjark-
argötu, sem verður tímabundið
breytt í einstefnuakstursgötu.
Gangbraut við Há-
skólann færð til
Færð nokkra metra ofar í götuna
Umferð Hin fjölfarna gangbraut við Háskóla Íslands
verður færð nær hringtorginu við Suðurgötu.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Slökkvistarfi í Laugardal er ekki
endanlega lokið. Enn lifði í
glæðum hér og þar í gær. Segir
Ómar Már glæðurnar vera á af-
mörkuðu svæði og lítil hætta
talin á að eldurinn breiðist frek-
ar út. Enginn var við slökkvi-
starf í gær en tækjabúnaður er
á svæðinu sem hægt er að grípa
til ef með þarf. Vindar eru hag-
stæðir til fimmtudags, skv.
spám, og vonast er til að náttúr-
an muni sjá um síðustu glæð-
urnar fyrir þann tíma.
Enn glæður
SLÖKKVISTARFIÐ