Morgunblaðið - 14.08.2012, Side 6

Morgunblaðið - 14.08.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Bað og sturta! NAPOLI hitastýrt sturtusett 26.900,- SAFIR sturtusett 1.995,- 11.990,- NAPOLI hitastýrð utrutsriryfikætranudnölb NAPOLI hitastýrð blöndunartæki fyrir baðkar 14.900,- einnig fáanlegt með áföstu sturtusetti ADE-15752204 AGI-167-1B AGI-160 AGI-167-1C Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar- lögmaður telur að breyta þurfi lög- um til að dómstólar hér á landi hætti að ofnota heimild til að úrskurða grunaða menn í gæsluvarðhald á grundvelli al- mannahagsmuna. Ragnar og Fann- ey Hrund Hilm- arsdóttir, lög- maður, rita grein í nýjasta hefti Úlfljóts, tímarit laganema við Há- skóla Íslands, þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að íslenskir dóm- stólar misbeiti heimild til að úr- skurða í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Heimildin sé of- notuð, rökstuðningur fyrir beitingu hennar sé á engan hátt fullnægjandi og túlkun íslenska dómstóla sé ekki í samræmi við túlkun Mannréttinda- dómstóls Evrópu. Í lögum um meðferð sakamála er mælt fyrir um skilyrði gæsluvarð- halds og eru þau rakin í ramma hér til hliðar. Sé ekkert þeirra uppfyllt má úrskurða í gæsluvarðhald „ef sterkur grunur leikur á“ að viðkom- andi hafi framið afbrot sem getur varðað tíu ára fangelsi „enda sé brotið þess eðlis að ætla megi varð- hald nauðsynlegt með tilliti til al- mannahagsmuna.“ Í greininni er vakin athygli á hversu hátt hlutfall gæsluvarðhalds- úrskurða sem kærðir eru til Hæsta- réttar byggist á þessum grunni. Árið 2006 var hlutfallið 29%, árið 2007 var hlutfallið 25%, árið 2008 var hlut- fallið 19%, árið 2009 var hlutfallið 16%, árið 2010 var það 22% og rauk upp í 32% árið 2011. Fæst voru til- vikin árið 2008 eða 20 en flest árið 2011 eða 37. Stöðlun er freistandi Í grein Ragnars og Fanneyjar Hrundar kemur fram að norskir fræðimenn hafi talið heimild til gæsluvarðhalds á grundvelli al- mannahagsmuna hafa verið ofnot- aða þar í landi á árunum 1998-2000. Og hversu oft skyldi henni hafa verið beitt? Alls 24 sinnum á þessu tíma- bili, eftir því sem segir í Úlfljóts- greininni. Árið 2003 þrengdu Norð- menn þessa heimild með laga- breytingu. Í samtali við Morgunblaðið sagði Ragnar að upphaflega hefðu orðið einhver mistök sem hefðu valdið því að í lögunum væri vísað í almanna- hagsmuni en ekki í almannafrið. Síð- an hefðu dómstólar farið að nota staðlaðar skýringar þegar þeir beiti ákvæðinu, í stað þess að rökstyðja notkun þess. „Það er svo freistandi að grípa til staðlaðra setninga, því þá þarf maður ekki að hugsa málið í botn,“ sagði hann. Aðeins einn dómari Hæstaréttar hefði áttað sig á að heimildinni væri ekki hægt að beita með þessum hætti en hann hefði engar und- irtektir fengið hjá réttinum. „Og það held ég að knýi á um að gerð verði lagabreyting,“ sagði Ragnar. Ragnar sagði að breyta yrði orða- lagi laganna þannig að í stað al- mannahagsmuna yrði talað um al- mannafrið. Beita ætti heimild til gæsluvarðhalds á grunvelli al- mannahagsmuna í undantekningar- tilfellum, þá aðeins ef það myndi skapa óróa í samfélaginu ef hinn grunaði sæti ekki í gæsluvarðhaldi um tíma. Sá væri skilningur Mann- réttindadómstóls Evrópu og hann hefði verið innleiddur í Noregi og Danmörku. Eftir breytingu sem þessa yrðu ákvæði um gæsluvarðhald sambæri- leg og í Noregi og Danmörku, ákvæðunum yrði hins vegar beitt með öðrum hætti en áður. Morgunblaðið/Júlíus Gæsla Í innanríkisráðuneytinu er verið að skoða heimildir vegna símhlustunar og hvort skýra þurfi nánar og veita frekari leiðbeiningar um hvað í almannahagsmunum felist. Heimildir til gæsluvarðhalds eru ekki til skoðunar. Breyta þarf lögum til að ofnotkuninni linni  Einn dómari hefur áttað sig  Fær ekki undirtektir Skilyrði varðhalds » Eitthvert eftirtalinna skil- yrða verður að vera fyrir hendi ef úrskurða á í gæsluvarðhald: » Sakborningur muni torvelda rannsókn. » Sakborningur reyni að kom- ast úr landi. » Sakborningur muni halda áfram brotum. » Verja þurfi aðra fyrir árásum sakbornings eða hann sjálfan fyrir árásum annarra. » Einnig má úrskurða í gæslu- varðhald á grundvelli almanna- hagsmuna, þótt ekkert þess- ara skilyrða sé fyrir hendi. Ragnar Aðalsteinsson Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Búið er að fella um 180 hreindýr það sem af er veiðitímabilinu, þar af um 140 tarfa og 40 kýr. Hrein- dýraveiðimenn eiga því töluvert enn langt í land með að ná kvóta tímabilsins, sem er 1.009 dýr. Veiði á törfum gat hafist 15. júlí sl. og 1. ágúst á kúm. Hægt er að veiða tarfana til 15. september nk. og kýrnar til 20. september. Hlýtt hefur verið í veðri austanlands að undanförnu og hreindýrin haldið sig það ofarlega á hálendinu að erf- iðara hefur verið að ná til þeirra. Jóhann G. Gunnarsson, starfs- maður Umhverfisstofnunar á Egils- stöðum, segir þetta geta verið með- al skýringa á að ekki sé búið að veiða nema 180 dýr. Búast megi við kipp eftir 20. ágúst þegar gæsa- veiðitímabilið hefst en þá sameini margir veiðimenn þessar ferðir. Þegar kólnar í veðri muni hrein- dýrin einnig leita neðar í byggð og geti veiðin orðið auðveldari. Enn verið að úthluta Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu var mörgum leyfum til hreindýraveiða skilað að þessu sinni, sem einkum er rakið til þess að gerð var krafa um að veiðimenn og hreindýraleiðsögumenn und- irgengjust verklegt skotpróf. Vegna þessa er enn verið að út- hluta hreindýraveiðileyfum og Jó- hann segir þetta taka sinn tíma. Hringja þurfi í þá sem voru á bið- listum og þurfa þeir minnst viku fyrirvara, m.a. til að komast í skot- próf hafi það ekki verið gert. „Þegar leyfi koma inn svona seint á sumrin geta menn verið bún- ir að verja sínu sumarfríi í annað þannig að það er tafsamara að koma leyfunum út,“ segir Jóhann. Skotveiðifélög víða um land hafa tekið að sér að framkvæma prófin. Að sögn Jóhanns hafa mörg félög verið endurvakin vegna þessa og aðgengi að skotprófunum ætti því að vera gott víðast hvar á landinu. Um 180 hreindýr af 1.009 verið felld  Enn verið að úthluta veiðileyfum  Skotprófin gætu hafa fælt menn frá Morgunblaðið/Eggert Hreindýr Veiðin fer hægt af stað. Vinsælt Menningarhúsið Hof hefur sitt þriðja starfsár í haust. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir gudrunsoley@mbl.is Rúmlega 300.000 gestir hafa heim- sótt menningarhúsið Hof á Akureyri frá opnun þess og skilaði reksturinn 1,5 milljóna króna rekstrarafgangi eftir síðasta starfsár. Hof var opnað árið 2010 og er því þriðja starfsár hússins að hefjast í haust. Innt eftir skýringu á velgengni Hofs segir Ingibjörg Ösp Stefáns- dóttir, framkvæmdastjóri Hofs, að margir þættir hafi spilað inn í. „Áætlanagerðin var ansi nákvæm og ítarleg og síðan gekk einfaldlega allt upp í rekstrinum,“ segir hún og þakkar velgengnina sterkum starfs- mannahópi og áhuga almennings. „Heldur meiri aðsókn var en við höfðum gert ráð fyrir, bæði meðal gesta og viðburðahaldara og það hafði mikið að segja,“ segir Ingi- björg Ösp og bætir við að gríðarlegt aðhald í rekstrinum hafi einnig skil- að sínu. Ársvelta Hofs er um 110 milljónir og forsvarsmenn Menningarfélags- ins Hofs ses. sem sér um rekstur hússins hafa ákveðið að skila einnar og hálfrar milljónar króna rekstrar- afgangi til Akureyrarbæjar. „Við erum stolt af því að skila starfseminni með rekstrarafgangi og þykir rétt að skila honum aftur til bæjarins. Samhliða því skorum við á bæjaryfirvöld að sjá til þess að fjár- magnið verði nýtt í framleiðslu list- viðburða á svæðinu,“ segir Ingi- björg. Eftirspurn eykst eftir kreppu Að sögn Ingibjargar hafði skapast mikil eftirspurn þegar menningar- húsið hóf rekstur og síaukin aðsókn endurspegli það. „Eftirspurnin hafði safnast upp og ef hægt er að tala um jákvæðar afleiðingar kreppunnar eru þær aukin meðvitund er um að njóta, að fjölskyldan fari saman í leikhús og á tónleika og nýti það menningarframboð sem sé til stað- ar,“ segir Ingibjörg. Fjölbreytt starfsemi er í Hofi, en Tónlistarskólinn á Akureyri, Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands, Akureyr- arstofa og Upplýsingamiðstöð ferða- manna eru þar til húsa. „Þetta fyrirkomulag skapar daglegan um- gang í húsinu, tónlistarskólinn starf- ar alla virka daga yfir vetrartímann með 500 nemendur og 50 starfs- menn, svo er mikið flæði fólks í tengslum við Sinfóníuna, Akureyrar- stofu og Upplýsingamiðstöðina. Í raun er aldrei dauð stund í húsinu og hér er mjög líflegt andrúmsloft,“ segir Ingibjörg. Í rekstri Hofs er lögð áhersla á fjölbreytta dagskrá. „Fjölbreytileiki framboðsins er vel þeginn og það var ákveðin þörf á starfsemi með breidd af þessu tagi,“ segir Ingibjörg. Starf- seminni verður haldið áfram á svip- uðum nótum. „Við munum bæta að- eins í, þónokkuð er um nýjungar á vetrardagskránni en við munum halda í grunngildi Hofs,“ segir Ingi- björg en vetrardagskráin verður kynnt hinn 20. ágúst. 1,5 milljóna króna afgangur hjá Hofi  Menningarhúsið skilar rekstrarafgangi  Skora á bæjaryfirvöld að nýta fjármagnið í listviðburði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.