Morgunblaðið - 14.08.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Dreymir þig nýtt eldhús!
Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús
og allar innréttingar sem hugurinn girnist.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Fjallganga í vondu veðrihreinsar sannarlega hug-ann, því það kemst ekk-ert annað að en að kom-
ast áfram og lifa þetta af,“ segir
Áslaug Rut Kristinsdóttir og hlær
hin kátasta, en hún ásamt tveimur
vinkonum sínum er nýkomin úr
göngu yfir Fimmvörðuháls, þar sem
allan tímann var kolvitlaust veður,
hávaðarok og úrhellisrigning.
„Þetta var ganga á vegum
Ferðafélags Íslands og hópurinn
var fjórtán manns sem við Þórhild-
ur Þórdísardóttir og Eva Sæland
vorum í. Við lögðum af stað úr
bænum á föstudagsmorgni og
vissulega var grenjandi rigning all-
an tímann sem við vorum að keyra
austur, en okkur datt samt ekkert í
hug að hætta við. Við búum á Ís-
landi og vitum alveg að allra veðra
er von. Við hófum gönguna við
Skóga og þá var veðrið ekki sérlega
árennilegt, en það var engan bilbug
að finna á þessum hópi, við létum
bara vaða. Seinna fréttum við að
fólkinu sem ætlaði á sama tíma að
ganga þessa leið frá hinum end-
anum, Þórsmörkinni, hefði verið
snúið frá, þeim var hreinlega bann-
að að leggja af stað.“
Leið um tíma eins og hún
væri úti í geimnum
Áslaug segir að vissulega hafi
þær vinkonurnar ekki frekar en
aðrir í gönguhópnum, notið hins
fagra útsýnis sem allir þekkja sem
gengið hafa Fimmvörðuháls í
björtu veðri. „Við misstum óhjá-
kvæmilega af því öllu saman og ein-
Hressandi var hún
viðbjóðsgangan
Ekki er hægt að stóla á bongóblíðu í hvert sinn sem fólk heldur til fjalla á Íslandi
og þær fengu heldur betur að reyna það vinkonurnar Áslaug, Eva og Þórhildur
sem gengu Fimmvörðuháls um nýliðna helgi í hávaðaroki og grenjandi rigningu.
Skyggnið var ekkert og þær misstu því af öllum fögru fossunum og útsýninu.
Á jökli Áslaug í blíðskaparveðri á Snæfellsjökli í sumar.
Vel veðraðar Alsælar að göngu lokinni, komnar í Langadalsskálann.
Stundum hefur maður lítinn tíma og
vill drífa líkamsræktina af ef svo má
segja. Þó má ekki gleyma að öll æfing
er af hinu góða sama hvort þú ferð í
púltíma í ræktinni í klukkutíma, ferð
út að ganga rösklega í hálftíma eða
jafnvel skemur. Allt er í raun betra en
kyrrseta allan daginn. Á vefsíðunni
chatelaine.com er að finna sniðugar
hugmyndir að æfingaprógrammi sem
tekur ekki nema um tíu mínútur að
gera. Sniðugt er að bæta slíku pró-
grammi við skokk eða göngu og þá
getur þú gefið þér hálftíma í líkams-
ræktina á annasömum degi. Meðal
æfinganna eru æfingar sem hægt er
að gera úti við. Þarf þá ýmist engin
tól eða tæki eða nýta má bekki í sum-
ar þeirra og eins er sums staðar að
finna æfingasvæði á útisvæðum sem
má nýta sér. Með þessum æfingum
getur þú búið til þitt eigið æfinga-
prógramm sem hentar þér vel og nýtt
hvað best þann tíma sem þú hefur.
Svo má skiptast á og hafa æfinguna
stutta eða langa til skiptis.
Vefsíðan www.chatelaine.com
Líkamsrækt Það er fínt að nýta náttúruna til æfinga og halda út í fríska loftið.
Góðar æfingar utandyra
Morgunblaðið/Eggert
Þá styttist í aðra formlegu þríþraut
3N – Þríþrautardeild UMFN en hún
verður haldin 25. ágúst næstkom-
andi í Vatnaveröld í Reykjanesbæ.
Þar verður keppt í sprettþraut og
fjölskylduþríþraut liðakeppni.
Sundið fer fram í Vatnaveröld í
Reykjanesbæ í 50 metra laug.
Brautirnar eru 6 og verða mest 5
manns á braut. Ef þátttakendur eru
fleiri en 30 er gert ráð fyrir að ræst
verði í tveimur lotum.
Hjólaleiðin er 2,5 km hringur sem
leiðir þátttakendur framhjá Vatna-
veröld í hverjum hring. Farið er út
frá skiptisvæði inn á Skólaveg,
beygt til vinstri inn á Flugvallarveg
og aftur vinstri inn á Hringbraut
síðan vinstri inn á Skólaveg. Að lok-
um er beygt inn að Vatnaveröld
(Sunnubraut) og farið inn á sama
skiptisvæðið aftur.
Hjólaleiðin er nokkuð greið og
ætti að vera hægt að ná góðum
hraða á leiðinni. Ljúka þarf fjórum
hringjum áður en snúið er inn á
skiptisvæði.
Hlaupið
Í sprettþrautinni er hlaupið sömu
leið og á hjólinu. Um er að ræða 2,5
km hring eins og lýst er hér að ofan.
Endað er við Vatnaveröld.
Í fjölskylduþríþrautinni verður
hlaupin 2 km leið og endað við mark-
línu við Vatnaveröld. Nánari upplýs-
ingar má nálgast á www.hlaup.is.
Endilega…
…takið þátt í
þríþraut
Morgunblaðið/Golli
Hasar Í þríþraut er synt, hlaupið og
hjólað.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hollt kjúklingasalat er auðvelt að búa
til og hægt að steikja bringurnar í
salatið eða grilla. Í þetta salat þarf:
250 g aspas
2 kjúklingabringur
klípa af chillíflögum
25 g söxuð steinselja
200 g hrein jógúrt
1 matskeið olía
1 niðurskorið avókadó
100 g spínat
50 g klettasalat
2 matskeiðar hampfræ
Sjóðið aspasinn í nokkrar mínútur
og skerið síðan í helminga. Nuddið
chillíflögunum á bringurnar og steik-
ið eða grillið. Blandið öllu saman og
notið steinseljuna, jógúrt og krydd að
eigin vali til að búa til dressingu.
Uppskrift fengin af ivillage.com.
Kjúklingasalat með aspas og avókadó
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjúklingasalat Fljótleg máltíð.
Fljótlegt og gott