Morgunblaðið - 14.08.2012, Side 11
hverjir sögðu að við yrðum að
ganga þetta aftur í góðu veðri því
við sáum ekkert af fossunum fögru
sem varða þessa leið og engin var
fjalla- og jöklasýnin. Skyggnið var
ekkert allan tímann. Mér leið á ein-
hverjum tímapunkti eins og ég væri
úti í geimnum, þegar ekki sáust
handaskil vegna þoku og rigningar
og við gengum í gljúpri ösku sem
gerði nánasta umhverfi framandi.
Þegar við vorum komin á Morens-
heiðina og nálguðumst Bása í Þórs-
mörk fór aðeins að létta til og við
fengum loksins að sjá svolítið af
dýrðinni. Þar fyrir utan var þetta
algjört brjálæði og ég hélt um tíma
að ég væri að deyja svei mér þá,“
segir Áslaug og bætir við að slíkur
hafi veðurhamurinn verið að ekki
var nokkur leið að taka myndir.
Alsælar að hafa klárað
„Það var ekkert sérstaklega
notalegt að vera gegndrepa allan
tímann, eiginlega var það frekar
svakalegt og fyrir vikið köllum við
þetta að gamni okkar viðbjóðsferð-
ina. En við erum samt alsælar að
hafa klárað og ánægðar með okkur,
enda var þetta þónokkurt þrekvirki.
Það var ekki stætt á köflum, til
dæmis þegar hluti hópsins fór upp
að nýja gosgígnum Móða, þá beið
ég þar sem ég stóð í brekku og
vindurinn var slíkur að ég átti fullt
í fangi með að halda mér á löpp-
unum. En þetta var samt rosagam-
an og heldur betur eftirminnilegt. Í
hita leiksins vorum við vissulega
stundum pirraðar yfir aðstæðunum,
til dæmis var aldrei hægt að stopp-
að nema mjög stutt í einu af því
fólki varð strax jökulkalt.
Maður var bara kýldur áfram, í
hverju stoppi rak leiðsögumaðurinn
okkur áfram eftir minna en tíu mín-
útur, enda ekkert annað í boði en
að keyra þetta áfram. Í fyrstu
brekkunni eftir að við stöldruðum
við í Baldvinsskála leist mér ekki á
blikuna þar sem ég stóð í allri þess-
ari ösku með risastóra brekku,
skelfilega bratta, framundan. Sú
uppganga tók verulega á og ég sá
ekki glóru. Ég hélt að það væri
mitt síðasta.“
Einn hélt áfram enn lengra
„Þetta var sannkölluð heljar-
ganga því við vorum öll gegnblaut,
bakpokarnir og allt, því þó að yfir-
hafnir eigi að heita vatnsheldar
standa þær svona veður ekki af sér
og rokið þrýstir bleytunni niður
hálsmál, ofan í skó og inn um allar
smugur. Það var ekkert sérlega
huggulegt að fara Heljarkamb og
Kattarhrygg í þessu veðri, ég var
fegin að vera ekki mjög lofthrædd
þá. Á þessum sama degi var hundr-
að og fimmtíu manna hópur frá
Landsbankanum að ganga þessa
leið en hluti af því fólki treysti sér
ekki alla leið og fór með trukkum
til baka frá Baldvinsskálanum,“
segir Áslaug og bætir við að sem
betur fer sé leiðin frá Skógum í
Þórsmörk aðeins dagleið og þau
hafi því ekki þurft að ganga aftur
að morgni í blautum göngufötum.
„Við gengum samfellt í átta og hálf-
an tíma og við gistum að göngu lok-
inni í Langadal í Þórsmörk. Við
fengum dýrindis grillað lambalæri
um kvöldið og eftir þá máltíð vorum
við næstum búnar að gleyma því
hvernig veðrið hafði verið. Við vor-
um svo sótt þangað í rútu um
morguninn og héldum heim. En
einn í hópnum okkar var ekki búinn
að fá nóg þegar ferðinni lauk, hann
ákvað að halda áfram og ganga
Laugaveginn allan. Við hin gáfum
honum afgangana af nestinu okkar
til að hafa með sér.“
Jómfrúarferðin var söguleg
Áslaug segir að gönguferðin á
Fimmvörðuhálsinn hafi komið
þannig til að Eva, sem er búsett í
London, hafi átt gjafabréf frá
Ferðafélaginu. Eva ákvað að hóa í
okkur Þórhildi og nýta gjafabréfið.
Hún sá líka að þetta væri góð leið
fyrir okkur stelpurnar til að vera
saman, enda erfitt að finna vin-
kvennastundir þegar ein býr í út-
löndum, önnur á Akranesi, sú
þriðja í Reykjavík og nokkur lítil
börn hafa bæst í hópinn sem bindur
fólk heima. Við fórum því glaðar af
stað og erum allar í ágætu göngu-
formi, Þórhildur gengur mikið á
fjöll, ég held að hún hlaupi upp og
niður Akrafjallið daglega, enda var
hún ævinlega fremst í flokki á
Fimmvörðuhálsinum, hún fann ekki
fyrir þessu. Eva stundar hlaup af
krafti og sjálf fer ég í nokkurra
daga gönguferð með manninum
mínum og fjölskyldunni á hverju ári
í gönguhóp sem kallar sig Handan
við hæðina. Við fórum í sumar á
Snæfellsnesið og dóttir okkar sem
er ellefu mánaða og átta ára sonur
voru með í för. Þetta var söguleg
ganga hjá okkur vinkonunum, sann-
kölluð jómfrúarganga, því héðan í
frá ætlum við að hittast einu sinni á
hverju ári sérstaklega til að fara í
góða göngu, hvernig sem viðrar.“
Garpar Þær voru hressar og til í slaginn við upphaf ferðar hjá Skógum og óraði ekki fyrir veðrinu sem beið þeirra.
Það var ekkert sérlega
huggulegt að fara
Heljarkamb og Kattar-
hrygg í þessu veðri, ég
var fegin að vera ekki
mjög lofthrædd þá.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð
ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA