Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 12
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Stundakennara við guðfræðideild
Háskóla Íslands var gert að víkja úr
starfi í vor eftir að í ljós kom að
hann hafði ekki doktorspróf eins og
hann sjálfur hafði alltaf haldið fram.
Kennarinn hafði kennt við
deildina í nokkur ár og vitað var að
hann hafði verið í doktorsnámi. Þeg-
ar hann sagðist hafa lokið því var
hann tekinn trúanlegur. Við eftir-
grennslan kom hins vegar í ljós að
hann hafði aldrei lokið prófinu og
gekkst kennarinn strax við því að
hafa gefið rangar upplýsingar. RÚV
greindi frá þessu á föstudaginn.
Sólveig Anna Bóasdóttir, for-
seti guðfræði- og trúarbragða-
fræðideildar Háskóla Íslands, segir
að gengið hafi verið frá þessu máli
fyrir sumarleyfi og umræddur kenn-
ari snúi ekki aftur til starfa. „Hann
mun ekki verða beðinn um að kenna
áfram við deildina vegna trún-
aðarbrests,“ segir Sólveig.
Spurð hvort þetta mál gjaldfelli
á einhvern hátt þau námskeið sem
hann kenndi segir hún það ekki
vera. „Þetta fjallar aðeins um hans
formlegu hæfni. Hann kenndi nám-
skeið sem gekk mjög vel.“
Sólveig hefur verið forseti
deildarinnar í tvö ár og segir hún að
á þeim tíma hafi allir stundakenn-
arar sem eru að koma inn nýir þurft
að skila sínum gráðum. „Það eru
verklagsreglur í gildi um þetta og
það þarf að skerpa á þeim.“
Fastir kennarar við háskólann
þurfa að framvísa prófskírteinum en
ekki er því alltaf eins farið með
stundakennara.
Samningar í ólestri
Stefán Pálsson, varaformaður
Hagstundar, félags stundakennara
á háskólastigi, segir að þeir samn-
ingar sem gerðir eru við stunda-
kennara séu í ólestri. „Við höfum
bent á það að utanumhald í þessum
málum er ekki nógu gott. Samning-
arnir sem eru gerðir við stunda-
kennara geta varla staðið undir því
nafni. Þetta er lítið meira en blað
með reikningsnúmerinu sem á að
greiða inn á,“ segir Stefán. „Við höf-
um bent á það mjög lengi að það
væri æskilegt fyrir háskólann að
standa betur að þessu, til að mynd
að það væru gerðir samningar þar
sem réttindi og skyldur stundakenn-
ara væru tilteknar. Við höfum sagt
að það væri ekki síður til hagsbóta
fyrir háskólann en stundakennarana
að koma skikki á þessi mál.“
Um tvö þúsund stundakenn-
arar eru við Háskóla Íslands og
sinna þeir um 30% af kennslunni.
Kjaramál þeirra hafa nokkuð verið í
umræðunni en tímakaup stunda-
kennara eru frá rúmum þúsund
krónum á tímann upp í 1.900 kr. sem
kennarar með doktorsgráðu fá.
Stefán segir að launin hækki um 300
kr. á tímann frá meistaragráðu í
doktor, úr 1.600 kr. í 1900 kr.
Stundakennarinn í umræddu máli
bauðst til að endurgreiða ofgreidd
laun vegna doktorsprófsins sem
hann hafði ekki.
Morgunblaðið/Kristinn
Háskóli Íslands Stundakennara við guðfræðideild var gert að hætta eftir
að í ljós kom að hann hafði ekki doktorspróf eins og hann hélt sjálfur fram.
Þarf að koma
skikki á mál
stundakennara
Félag stundakennara kærði
Háskóla Íslands til Umboðs-
manns Alþingis fyrir það með-
al annars að ráðningasamn-
ingar við stundakennara væru
í ólestri. „Umboðsmaður er
búinn að senda ítarlegan
spurningalista til háskólans
og ég held að það ætti að
þrýsta enn frekar á að háskól-
inn taki til í þessum málum.
Við bíðum mjög spennt eftir
svörunum við bréfi umboðs-
manns því við teljum að þar
hafi verið spurt stórra og
áleitinna spurninga og HÍ
hljóti að taka það alvarlega,“
segir Stefán Pálsson.
Kæra hjá um-
boðsmanni
FÉLAG STUNDAKENNARA
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli.
Nicotinell lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín (nikótínpólacrillín). Nicotinell lyfjatyggigúmmí er notað til að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum nikótíns hjá einstaklingum sem eru háðir nikótíni. Þannig getur það auðveldað
reykingafólki sem vill hætta að reykja að hætta eða að draga úr reykingum. Ekki má nota fleiri en 25 stk. 2 mg lyfjatyggigúmmí eða meira en 15 stk. 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Ef þú ert með ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðrum
innihaldsefnum eða reykir ekki má ekki nota Nicotinell lyfjatyggigúmmí. Ráðfærðu þig við lækninn eða lyfjafræðing ef þú hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp - ert með hjartasjúkdóma, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan
skjaldkirtil, ofvirkar nýrnahettur, alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða magasár. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti máttu einungis nota lyfið í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára nema í samráði
við lækni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.