Morgunblaðið - 14.08.2012, Síða 22

Morgunblaðið - 14.08.2012, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012 ✝ Ómar Hafliða-son fæddist 11. mars 1943 í Reykja- vík og ólst upp í Vesturbænum. Hann lést á heimili sínu hinn 3. ágúst 2012 eftir stutt veik- indi. Foreldrar hans voru Hafliði Jóns- son, fæddur á Hvilft í Önundarfirði, f. 13.3. 1897, d. 9.5. 1951, og Krist- jana Guðfinnsdóttir, fædd á Laug- arbóli í Ögur, f. 17.9. 1900, d. 22.3. 1992. Ómar átti fjögur systkini: Guðfinnur Jón Hafliðason, f. 1921, d. 1924, Hörður Hafliðason, f. 1923, d. 1982, sem giftur var Ingi- björgu Árnadóttur, f. 1924. Auður Hafliðadóttir, f. 1924, d. 1926. Haukur Hafliðason, f. 1929, giftur Guðrúnu Margréti Friðbjarn- ardóttur, f. 1928. Hálfbróðir hans var Hjörleifur Hafliðason, f. 1920, d. 2008. Hinn 9.3. 1968 kvæntist Ómar Ingibjörgu Jakobsdóttur, f. 23.4. 1945, og hófu þau búskap í Reykjavík og bjuggu síðustu árin í Húsalind í Kópavogi. Foreldrar Ingibjargar eru Jakob Jóhann Sigurðsson, f. 6.8. 1923, d. 6.12. 1995, og Gyða Gísladóttir, f. 2.9. 1924. Börn þeirra eru: 1) Jóhann, viðskiptafræðingur, f. 16.9. 1967, giftur Fríðu Björk Sveinsdóttur, viðskiptafræðingi, f. 21.5. 1966. Börn: Sveinn, f. 1986, unnusta hans er Þóra Björk Bjart- marz, f. 1988, og eiga þau soninn Sindra Snæ, f. 2011; Ómar Sindri, f. 1995, Atli Snær, f. 1998, og Inga Dís, f. 2004. 2) Linda Björk, hár- snyrtimeistari, f. 5.8. 1972, gift Tryggva Þór Gunnarssyni, viðskiptafræð- ingi, f. 20.9. 1972. Synir: Ingi Már, f. 1997, og Gunnar Már, f. 2004. Áður eignaðist Tryggvi dótturina Önnu Dóru, f. 1995. 3) Hafliði Hörður,nemi í blikksmíði, f. 18.5. 1984, unnusta hans er Heiðbjört Unnur Gylfadóttir, hársnyrt- isveinn, f. 11.11. 1985 og eiga þau dótturina Birtu Karen, f. 2011. Ómar ólst upp á Ásvallagötu og hóf snemma störf tengd bifreið- um og akstri, lengst af hjá Guð- mundi Jónassyni og síðar Kynn- isferðum. Hann ferðaðist mikið um hálendi Íslands með Guð- mundi Jónassyni, fjölskyldu og vinum og kunni hann nöfn og sög- ur af nær hverri þúfu landsins. Hann unni ferðalögum innan- lands og erlendis en hvergi undi hann sér þó betur en heima í faðmi fjölskyldu og vina. Útför hans fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 14. ágúst 2012, kl. 15. Með hlýhug og þakklæti í hjarta kveðjum við þig, elsku besti pabbi. Guð gaf mér engil sem ég hef hér á jörð. Hann stendur mér hjá og heldur um mig vörð. Hann stýrir mér í gegnum lífið með ljósi sínu. Ég er svo þakklát að hafa hann í lífi mínu. Ég vona að hann viti að hann er mér kær. Allar mínar bestu hugsanir hann fær. Hans gleði og viska við alla kemur. Við flestalla honum vel semur. Hann stendur mér hjá þegar illa liggur við. Hann víkur ekki frá minni hlið. Nema sé þess viss að allt sé í lagi. Fer þá að vesenast í málarastússi af ýmsu tagi. Hann er vandvirkur og iðinn, hann sinnir alltaf sínu vel, hann segir það aðalatriðin, sem er rétt, það ég tel. Hann hefur kennt mér að vera þolinmóð og sterk hvetur mig áfram að stunda mín dags- verk „þú skalt alltaf standa á þínu“, hann ávallt hefur sagt mikla áherslu á það lagt Þótt svo hann segi ekki við mann oft mikið Þá meinar hann alltaf margt Hann getur aldrei neinn svikið það getur hann ekki á neinn lagt Hann er bara þannig maður. Hann er bara þannig sál. Hann er aldrei með neitt þvaður. Hann meinar allt sitt mál Hann sýnir mér svo mikla ást. Hann vill aldrei sjá neinn þjást. Hann er minn klettur og hann er mín trú. Hann er minn besti pabbi, staðreyndin er sú! (Katrín Ruth) Þín börn, Jóhann, Linda og Hafliði. Hvað á að segja? Hvar á að byrja? Hvernig kveður maður svona höfðingja? Þú varst mér svo miklu meira en bara góður tengdafaðir og afi barna minna. Þú kenndir mér svo margt, bæði varðandi ferðamennsku og náttúru en ekki síður um lífið sjálft og gildi þess að vanda til verka og frágangs. Þú varst með eindæmum bóngóður, ávallt tilbú- inn að aðstoða á allan þann hátt sem mögulegt var. Ég gleymi aldrei fyrstu ferð- inni með þér inn í Jökulheima árið 1998, þangað hafði ég aldrei kom- ið. Á leiðinni inn úr sagðir þú frá öllum örnefnum og fullt af skemmtilegum ferðasögum frá fyrri tíð. Mér er sérstaklega minn- isstætt þegar þú sagðir: „Sérðu, hérna er Þóristindur 822,“ en allt- af þegar minnst var á fjöll þá var fyrst sagt nafnið á fjallinu og síðan fylgdi hæðin. Ég man að mér þótti áhugi þinn á þessum Þóristindi skrítinn því þegar við keyrðum meðfram honum var hann eins og hvert annað fjall en þegar innar dró og ég leit til baka skildi ég í hverju áhuginn fólst. Þannig líður mér núna. Margir hlutir sem voru svo hversdagslegir en eru svo mikils virði núna. Mig langar að gefa þér þetta vísukorn sem ég hnoðaði saman og ég veit að þú fyrirgefur mér þótt það sé ekki kórrétt samkvæmt almennum braghætti. Þú varst drengur góður um landið varstu fróður, þú varst stoð mín og stytta, og stöðugt að einhverju að dytta, í gegnum þykkt og þunnt, varstu til staðar eins og þér var unnt. Takk fyrir mig og mína. Takk fyrir allan þinn tíma. Þinn tengdasonur, Tryggvi Þór. Elskulegur tengdapabbi minn er fallinn frá, allt of skyndilega og allt of ungur. Á svona stundu er margs að minnast og yfir mann hrúgast minningar um góðan og skemmtilegan mann, sem laðaði að sér allar manngerðir og var vinsæll hvar sem hann fór. Mikið söknum við þín Ómar minn, við sem ætluðum að gera svo miklu meira með þér. Ég er þó svo ánægð með þær frábæru stundir sem við fengum með þér, hvort sem það var í hversdagslíf- inu eða á ferðalögum okkar um Ís- land eða erlendis. Ótal minningar og skemmtisögur eigum við frá samverustundum með þér, hér heima sem og á Spáni, í New York, Róm, París eða frábærum dögum í Noregi í vetur. Þú ætl- aðist aldrei til neins af neinum, varst alltaf boðinn og búinn að hjálpa okkur öllum, bjargaðir veikindadögum hjá afabörnunum, varst alltaf svo greiðvikinn og allt- af fyrstur á staðinn til að hjálpa. Ég mun bíða við skype eftir nær daglegu samtali okkar sem byrj- aði oftast með sama hætti: „Jæja, hvernig er veðrið?“ Ég var ótrúlega heppin að eign- ast tengdapabba eins og þig og börnin mín svona góðan afa, sem við eigum eftir að sakna mikið, minningin er góð og hún mun lifa. Fjölskyldan var þér allt og mun- um við áfram halda henni þétt saman. Ég veit að þú ert í góðum höndum og vakir yfir okkur öllum. Þín tengdadóttir, Fríða Björk. Elsku hjartans afi minn. Nú friðinn ég finn þá kveð ég þig um sinn og kyssi þína kinn. – – – Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín afabörn, Ingi Már, Gunnar Már og Birta Karen. Elsku afi. Við kveðjum þig í dag, elsku afi. Þú hefur alltaf verið svo skemmti- legur og góður, svo mjúkur og varst alltaf að grínast í okkur. Bumba og falskar tennur hafa endalaust látið okkur hlæja og síð- an fengum við knúsið þitt góða. Þú verður áfram með okkur og núna getur þú komið oftar til okkar til Noregs. Okkur líður eins og þú sért farinn í ferðalag og komir fljótlega aftur. Við eigum eftir að sakna þín óendanlega mikið. Við elskum þig að eilífu. Þín afabörn, Inga Dís og Atli Snær. Elskulegur föðurbróðir okkar, Ómar, er fallinn frá. Það kom eins og reiðarslag yfir okkur bræðra- börn og fjölskyldur þegar við fréttum fyrir tæpum hálfum mán- uði að hann ætti skammt ólifað. Kallið kom allt of fljótt og óvænt en Ómar dó heima í faðmi fjöl- skyldunnar. Ómar var yngstur fimm barna ömmu og afa en tvö börn létust í barnæsku, þau Auður og Guðfinn- ur, en upp komust Hörður og Haukur auk Ómars. Þá áttu þeir hálfbróður samfeðra, Hjörleif, sem ólst upp á Akureyri. Föður sinn misstu bræðurnir þegar Ómar var aðeins átta ára gamall. Hann var langyngstur þeirra bræðra en fór snemma að fylgja eldri bræðrum sínum eftir. Ungur að árum hóf hann að fara með þeim í Jósefsdal, skíðaskála Ármanns, þar sem þeir voru löngum stundum við skíðaiðkun og útivist. Síðar þegar aldur leyfði fylgdi hann þeim í Jöklarannsókn- arfélagið og Flugbjörgunarsveit- ina. Það var honum mikið áfall þegar faðir okkar lést fyrir aldur fram fyrir rétt tæpum 30 árum, þótt aldursmunur væri mikill voru þeir alla tíð miklir félagar. Við systkinin minnumst skemmtilegra stunda þegar for- eldrar okkar og Ómar komu heim eftir vel heppnaða jöklaferð og sest var við eldhúsborðið þar sem þeir bræður sögðu kryddaðar sög- ur úr ferðunum. Það var skemmti- legt og mikið hlegið. Gamansemi Ómars var græskulaus og frá- sagnarlistin með eindæmum góð og engan þekkjum við systkinin sem sagði eins skemmtilega frá. Ómar var manna fróðastur um óbyggðir landsins og þekkti þar hverja þúfu og örnefni en hann starfaði lengst af sem fjallabíl- stjóri hjá Guðmundi Jónassyni sem hann kynntist í gegnum jöklaferðirnar. Mikill kærleikur var milli þeirra Ómars og Guð- mundar alla tíð. Hann bjó með ömmu á Ásvalla- götunni og þangað lögðum við systkinin oft leið okkar. Alltaf tók Ómar okkur vel, stríddi okkur á skemmtilegan hátt og var alltaf í góðu skapi. Ómar og amma voru með okk- ur á stórhátíðum og munum við vel flottu gjafirnar frá Ómari frænda. Við eldri systurnar fylgd- umst svo með þegar Ingibjörg og Ómar hófu að draga sig saman. En Ómar var mikill gæfumaður í einkalífinu. Hann og kona hans Ingibjörg voru alla tíð samstiga og miklir félagar. Börnin þeirra Jóhann, Linda Björk og Hafliði Hörður ásamt tengdabörnum og barnabörnum hafa myndað ein- staklega skemmtilega og sam- rýnda fjölskyldu. Ómar var stolt- ur af fjölskyldu sinni enda eru þau öll vel gerð og kunnu svo sann- arlega að meta þennan mikla húmorista og öðling sem alltaf var tilbúinn að rétta hjálparhönd. Við höfum átt því láni að fagna að fara með honum og fjölskyld- unni í Jökulheima undanfarin ár þar sem Ómar hefur mætt með gamla góða Willy’s-jeppann og verið með ökuskóla Ómars, sagt okkur sögur og bent á kennileiti. Þessar ferðir eru okkur nú ómet- anlegur fjársjóður. Að leiðarlokum er okkur efst í huga þakklæti fyrir góða sam- fylgd sem aldrei bar skugga á. Við viljum trúa því að þeir bræður hittist aftur eftir langan aðskilnað og haldi nú af stað í enn einn óbyggðatúrinn. Hjá Ingibjörgu og fjölskyldu er hugur okkar í þeirra harmi. Auður, Guðrún, Kristjana, Björk og Bárður Harðarbörn. Elsku Ómar frændi er látinn eftir mjög stutt en erfið veikindi. Lífið getur stundum komið okkur óþægilega á óvart. Ómar frændi var eiginmaður Ingibjargar, systur pabba míns. Ómar var einstakur maður, ég veit ekki um neinn eins og hann. Alltaf brosandi, að grínast eitt- hvað og umfram allt góður maður. Ómar fékk alla til að brosa, hann hafði eitthvert blik í augunum, og öllum leið vel í návist hans. Allir sem þekktu Ómar elskuðu hann. Alltaf þegar við hittumst fékk ég gott faðmlag og koss, hann gaf öllum svo mikið af sér, ég á eftir að sakna þess mikið. Hann gat talað við alla, hann heillaði öll börn upp úr skónum, já ég held að hann hafi bara heillað alla, gamla og unga, konur og karla. Oft grínaðist Ómar með það að ég væri eins og ung Ingibjörg, eig- inkona hans, og að við Geiri, eig- inmaður minn, værum eins og ung Ingibjörg og Ómar. Fannst mér þetta bæði skemmtilegt og ekki síst mikill heiður, ekki leiðum að líkjast. Ómar og Geiri náðu vel saman, Ómar vissi að hann gæti fengið smá í nefið hjá Geira og áttu þeir margar ógleymanlegar stundir saman og mikið grín í kringum þá. Það verður ekki eins að koma á næsta ættarmót hjá stórfjölskyld- unni þar sem Ómar hefur alltaf haft stórt hlutverk. Er mér minn- isstætt síðasta ættarmót sem var núna í vor hve Ómar var skemmti- legur, eins og alltaf. Honum tókst m.a.s. að gera bingó ótrúlega skemmtilegt. Hann vann nokkr- um sinnum og alltaf hlógum við jafnmikið með honum þegar hann sótti vinningana, grínaðist og var í essinu sínu. Og þegar hann var að reka okkur upp úr lauginni því það væri komið kaffi, í gríni, og við hlógum. Þegar hann var að segja okkur frá læknisheimsókn sem hann fór í, eins og hann sagði frá, var það skemmtilegt. Hann var alltaf svo yndislegur og mikið hlegið í kringum hann. Hann var gleðigjafi mikill. Missir allra við brotthvarf Óm- ars er mikill en þó er það fjöl- skylda hans sem hefur misst mest. Misst yndislegan eiginmann, pabba, tengdapabba, afa og lang- afa. Elsku Ingibjörg, Jóhann, Linda, Hafliði, Fríða, Tryggvi, Heiðbjört, afabörn og langafa- barn, við viljum votta ykkur okkar dýpstu samúð og megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar og varðveita. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Takk fyrir ferðalagið elsku Óm- ar frændi. Drottinn blessi minn- ingu Ómars Hafliðasonar. Gyða Hrönn og Ásgeir. Elsku Ómar. Ég man eftir rútunni þinni og þegar þú leyfðir mér að skipta um gíra þegar ég var lítil. Ég man eftir ókeypis rútuferð- um í Bláfjöll þegar þú varst á rútuvaktinni Ég man eftir hlátrinum þínum og gleði. Ég man eftir jeppanum þínum honum Ófeigi og þegar við fórum í bíltúr í Ártúnsholtið ásamt vin- konum mínum. Ég man eftir þegar ég var alltaf að spyrja þig þegar ég var lítil hvers vegna þú varst með svona stóran maga. Ég man eftir matarboðunum sem þið buðuð okkur í þegar við bjuggum erlendis Ég man eftir öllum skemmtilegu sögunum sem þú sagðir okkur. Ég man eftir að það var svo gaman að vera í kringum ykkur Ingibjörgu. Ég man eftir vinsemd þinni og væntumþykju. Ég mun aldrei gleyma þér elsku Ómar, þú ert og verður allt- af besti frændi minn. Þín frænka, Edda Dröfn. Það fara hlýir straumar um mann þegar maður minnist Óm- ars Hafliðasonar. Ef hans hefði ekki notið við væri minn áhugi á skíðamennsku og útivist lítill sem enginn. Hann sá til þess að farið var í fjöllin og kenndi undirstöðu- atriðin. Hann fór einnig með okk- ur í gönguferðir um fjöll og firn- indi, þar á meðal að gömlum flugvélaflökum, sem var ævintýri fyrir litla gutta og örnefni voru honum eins og í blóð borin, Ómar bara vissi allt. Gleðin og galsinn sem fylgdu honum gerðu öllum gott og eiginleiki hans að segja sögur á sér fáar hliðstæður. Ég minnist ferðanna sem við fórum í inn í Holtsdal og drauga- sagnanna sem hann hafði gott lag á að segja og gerðu mann ótta- sleginn en styrktu mann samtím- is. Ómar gaf sér alltaf tíma fyrir alla og bar hag allra fyrir brjósti og gaf sér alltaf tíma til að ræða málin. Ég minnist Ómars með glettnina að leiðarljósi og með galsa við börnin. Það elska allir Ómar, alltaf. Ég bið þann sem yfir okkur vakir að gefa Ingibjörgu, Jóa, Lindu, Hafliða og öllum í fjöl- skyldunni styrk á þessum sorgar- tímum. Gunnar Valur. Elsku Ómar frændi eins og þú varst alltaf kallaður þrátt fyrir að vera ekki frændi heldur giftur Ingibjörgu frænku, þú ert nú far- inn frá okkur og það alltof fljótt og snöggt. Maður er ennþá að reyna að átta sig á þessu. Í æskuminningunum varst þú alltaf mesti sprellikallinn og grín- aðist með allt. Þú plataðir okkur krakkana líka oft og það sem lifði lengst var þegar við spurðum hvort þú værir með barn í mag- anum en þá sagðir þú: „Nei ég er bara með hvolpa í maganum“ og auðvitað trúði maður því og beið lengi vel eftir hvolpunum. Einnig minnumst við líka allra ferðanna í fjöllin, þar sem þú þrammaðir um á gönguskíðunum þínum og lékst við okkur krakkana í snjónum, ótrúlega skemmtilegir tímar. Þú varst og hefur alltaf verið hress- asti maðurinn á svæðinu. Ef orða- tiltækið hláturinn lengir lífið er rétt þá hefur þú svo sannarlega lengt líf okkar um mörg ár, með öllum hlátursköstunum af uppá- tækjum þínum og húmor. Þú ert líka eitt mesta ljúfmenni sem við höfum kynnst og hjartað þitt svo sannarlega búið til úr gulli, þú hafðir notalega nærveru og öll börn elskuðu Ómar. Það var bara fyrir tveim mánuðum síðan sem við fórum í okkar árlegu Kobba- fjölskylduútilegu sem við gerum á hverju ári og allir skemmtu sér svo ótrúlega vel saman. Þú svo hress og kátur eins og alltaf og við sjáum það núna hvað það er stutt á milli lífs og dauða. Við þökkum samt svo sannarlega fyrir það að þessi fjölskylduútilega er á hverju ári og hvað við erum dugleg að hittast. Við þökkum fyrir þann tíma sem við áttum með þér og mun hann lifa í minningu okkar allra. Á næsta ári munum við svo sannarlega skála fyrir þér og kannski, bara kannski, kveikja í vindli bara fyrir þig. Elsku Ómar, þín verður sárt saknað en góða minningin um þig mun lifa lengi í hjörtum okkar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V.Briem.) Elsku Ingibjörg, Jói og Fríða, Linda og Tryggvi, Halli og Heiða og barnabörn. Okkar dýpstu samúðarkveðjur til ykkar. Megi guð gefa ykkur ljósið í myrkrinu. Anna Gyða og Inga Birna. Ómar Hafliðason  Fleiri minningargreinar um Ómar Hafliðason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN S. SIGURÐARDÓTTIR frá Gvendareyjum, Suðurlandsbraut 60, Reykjavík, lést á Landspítalanum föstudaginn 3. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Unnur Ragnar, Auðólfur Gunnarsson, Gunnar Auðólfsson, Sigríður Másdóttir, Þórir J. Auðólfsson, Stefán Á. Auðólfsson, Þórhildur Ó. Helgadóttir og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.