Morgunblaðið - 14.08.2012, Page 28

Morgunblaðið - 14.08.2012, Page 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012 VERKFÆRIN FYRIR SKÓLANA FÁST Í BRYNJU Lykilverslun við Laugaveginn frá 1919 Áratuga þekking og reynsla Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is | opið virka daga frá 9-18 og lau frá 10-16 HEFILBEKKIR, HVERFISTEINAR, BRÝNI, TÁLGUHNÍFAR, SMÁFRÆSARAR, ÚTSKURÐAR- OG RENNIJÁRN Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú finnur til eirðarleysis og þyrstir eftir gleði og ævintýrum í lífi þínu. Kannski að þú eigir að einsetja þér að skemmta þér dálítið. 20. apríl - 20. maí  Naut Mikill áhugi þinn á vissu málefni er mis- skilinn sem áhugi á persónu sem veit mikið um málefnið. Haltu bara þínu striki og komdu honum í skilning um hvaða álit þú hefur á málum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ættir kannski að segja frá því sem þú vilt helst halda fyrir sjálfan þig. Láttu það eftir þér að kaupa þér eitthvað fallegt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Fólk tekur eftir þér í vinnunni og spurt er eftir þér með nafni. Ef þú lumar á góðri hugmynd um það hvernig þú getir aflað fjár þá er þetta rétti dagurinn til að reyna hana. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Allir þurfa hvatningu endrum og sinnum og nú er komið að þér. En suma daga, eins og í dag, virðist enginn taka eftir þér. Gefðu þér nægan tíma til þess að skoða málið frá nýjum hliðum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Viðskipti geta verið varasöm, þegar ekkert tillit er tekið til aðstæðna. Hafðu samt engar áhyggjur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú myndir gefa allt til að fá sönnun fyrir því að þú sért á réttri leið, og verðir betri manneskja. Reyndu samt að halda þínu striki hvað sem tautar og raular. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Dagurinn hentar vel til að huga að breytingum í vinnunni og á stefnu þinni í lífinu. Pældu í hæfileikum sem þú ert gæddur! 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Með hjálp góðs vinar muntu finna réttu leiðina til að tjá skoðanir þínar. Fólk kann að meta það hvað þú gerir hlutina af mikilli vandvirkni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú verður þú að hrökkva eða stökkva því ekkert annað getur þokað málum þínum áfram. Dagurinn í dag er ekki góður til þess að versla heldur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Skapandi hugmyndir þínar um úr- bætur á vinnustað eru eftirtektarverðar. Vilji er allt sem þarf og hálfnað er verk, þá hafið er. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hraðinn í daglega lífinu magnast hjá þér næstu sex vikur. En varastu að gera vandamál annarra að þínum. Árni Jónsson hélt með fjölskyld-unni að hinu forna býli Bauga- seli innarlega í Barkárdal, hvar þau síðan eyddu helginni: Fornan haug og töðutótt tímans flaug þó méli, ég með draugum dimmri nótt deildi í Baugaseli. Ég við skarkið lengi lá, lítt að marki galinn. Síðan arka sá ég þá suður Barkárdalinn. Pétur Stefánsson þarf ekki að fara lengra en í Elliðaárdalinn til þess að andinn komi yfir hann: Ég er ljúfur og laglegur talinn, og langt frá því vitlaus og galinn. Ég yrki mín ljóð bæði alslæm og góð er ég arka um Elliðaárdalinn. Þórir Jónsson skrifar eftir ófrið- lega verslunarmannahelgi: „Þá er liðin sú helgi sem landinn tekur æði líkt og læmingjar og flóðbylgjur fólks flæða yfir landið. Bylgjurnar stöðvast svo um stund á vissum stöð- um þar sem haldnar eru svokallaðar hátíðir. Sums staðar rísa samkund- urnar kannski undir nafni en annars staðar ekki þótt umsagnir aðstand- enda og lögreglu í fréttum séu á einn veg: „Hátíðin fór vel fram.“ Ég kem því ekki heim og saman að samkoma hafi farið vel fram ef fólk drekkur sér til vansa, menn limlestir og konum nauðgað. Því aðeins fer samkoma vel fram að all- ir – og þá meina ég allir – komi heim glaðari en þeir fóru og minn- ingunni ríkari. Að beita konu hvílubrögðum án hennar upplýsts samþykkis þykir mér sá glæpur vera sem næst kemst mannsmorði – og er vissu- lega morð, sálarmorð. Þeim sem siðunum góðu gleyma og geta ekki hamið tittlinginn væri sæmast að vera heima á vitlausramannafrídaginn.“ Sigrún Haraldsdóttir þakkaði honum pistilinn, en sagði að því miður hefðu ekki allir sömu sýn á nauðganir: Þótt grátandi sé hún og marin og meidd og mörkuð af tjóni stóru, sé kona til maka af níðingi neydd menn nefńana vísast hóru. Teitur Harmann var annarrar gerðar eins og ráða má af vísunni: Allra kvenna ertu mest, allra kvenna blíðust, allra kvenna ertu best, allra kvenna fríðust. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af draugum í Barkárdal og vitlausramannahelgi G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð il e g i Fe rd in a n d G æ sa m a m m a o g G rí m u r ÞAÐ ÆTTI EINHVER AÐ SEMJA UM ÞIG LJÓÐ, LÍSA. KANNSKI ÞÚ, JÓN? ÉG? JA ... ÉG ER EKKI MJÖG GÓÐUR ... HVAÐ RÍMAR VIÐ „MJÁ“? ANSANS! ENN EIN GLENNAN! HVAR ER BÁTURINN OKKAR?! ÉG TRÚI ÞESSU EKKI! MAÐUR MISSIR AF TVEIMUR AFBORGUNUM ... ... OG ÞEIR LÆÐAST AFTAN AÐ MANNI OG TAKA BÁTINN MEÐ VÖRSLUSVIPTINGU! NEI SKO, BÓK! MAÐUR Á EKKI AÐDÆMA RAFBÓK EFTIR KÁPUNNI ... Erindrekar RÚV á Ólympíu-leikunum í Lundúnum, Adolf Ingi Erlingsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, áttu stórleik við lokaathöfn leikanna sl. sunnudag. Lýstu samviskusamlega öllu sem fram fór, svo sem þeim hefur örugg- lega verið uppálagt að gera, og létu það ekki á nokkurn hátt slá sig út af laginu að dagskráin samanstóð að langmestu leyti af rokktónlist sem flutt var af mörgum helstu tónlist- armönnum Breta undanfarna ára- tugi. Áttu Kryddpíurnar, Madness, Jessie J, The Who og fleiri snillingar í mesta basli með að komast að fyrir þeim tvímenningum. Skilst Víkverja að þjóðin hafi upp til hópa engst í sófum sínum af þessu tilefni, alltént ef marka má samskiptasíður. Besti sprettur þeirra félaga, af mörgum góðum, kom í kjölfar þess að Freddie gamli Mercury stjórnaði fjöldasöng á sviðinu – í formi heil- myndar. Strax að því búnu hleypti hans gamli vopnabróðir, Brian May, á æðisgengið skeið með gítarinn, maður og hljóðfæri urðu eitt. Nema hvað sjónvarpsáhorfendur hér heima á Fróni urðu að mestu af dýrðinni fyrir þær sakir að Adolf Ingi þurfti að benda þeim í all- mörgum orðum á það að Freddie Mercury væri í raun og veru látinn. Mergjað stöff! x x x Við lok útsendingar beit tvíeykiðsvo höfuðið af skömminni með því að tala nær sleitulaust yfir loka- lagi athafnarinnar, My Generation með The Who. Fyrst eyddi það um- talsverðu púðri í að tilkynna lýðnum að um lokalag hátíðarinnar og þar með Ólympíuleikanna væri að ræða. Síðan kvaddi Þorkell Gunnar og þakkaði hálfri þjóðinni fyrir aðstoð við útsendingarnar og svo fram- vegis. Þegar hann loksins lauk sér af hélt Víkverji í sakleysi sínu að Roger Daltrey kæmist loksins að – enda lagið ríflega hálfnað. Ekki aldeilis! Þá tók Adolf Ingi við keflinu og þakkaði öðrum eins fjölda manna fyrir sig og sína. Er ekki mál til komið að RÚV endurskoði reglur sínar um íslenskt tal á erlendum viðburðum, alltént rokktónleikum? víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.