Morgunblaðið - 14.08.2012, Síða 32

Morgunblaðið - 14.08.2012, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012 Nýlega gaf hljómsveitin Contalgen Funeral út sína fyrstu breiðskífu og ber gripurinn nafnið Pretty Red Dress. „Hljómsveitin hefur verið starfandi í þessari mynd í rúmlega eitt ár en áður höfðum við Kristján verið að gutla í bílskúrnum og hangsa,“ útskýrir Andri Már, söngv- ari og gítar- og banjóleikari sveit- arinnar. „Eftir að Gísli gekk í bandið fóru hlutirnir loksins að gerast,“ segir hann og á við Kristján gít- arleikara og Gísla kontrabassaleik- ara Contalgen Funeral. „Gísli var reyndar trúbador þegar við fundum hann í leikhúsinu en ákvað engu að síður að taka að sér hlutverk kontra- bassaleikara hljómsveitarinnar,“ bætir Andri við. Í minningu vinar Aðspurður um sérkennilegt nafn hljómsveitarinnar segir Andri það hafa legið beint við á þeim tíma sem hún var stofnuð. „Ég fór í meðferð fyrir þremur árum og eignaðist þar ágætis félaga sem var sprautufíkill. Svo fyrir einhverjum árum þegar við vorum að spila á Gærunni sé ég minningargrein um hann í blaðinu,“ segir Andri. „Það eina sem komst fyrir í höfðinu á mér eftir það var Contalgen Funeral og því fannst mér mjög viðeigandi að gefa hljóm- sveitinni þetta nafn.“ Tónlist Contalgen Funeral er hrá og kántrískotin en Andri segir erfitt að skilgreina eigin tónlist. „Ég myndi segja að þetta væri blanda af blús, kántrí, rokki, swing og ýmsu öðru en reyndar er mjög erfitt að skilgreina þetta sjálfur,“ bendir hann á en við fyrstu hlustun má einnig heyra skýr áhrif töffarans Tom Waits í söng og lagasmíðum Andra. „Það er engin tilviljun því Tom Waits er minn uppáhalds- tónlistarmaður,“ segir Andri og bætir við að söngurinn sé eitthvað sem hann hafi aldrei ætlað að leggja fyrir sig. „Ég kann ekkert að syngja en læt bara vaða.“ sigyn@mbl.is „Læt bara vaða“  Contalgen Funeral gefur út sína fyrstu breiðskífu  Blanda af blús, kántrí, rokki, swing og ýmsu öðru Ljósmynd/Davíð Már Sigurðsson Hljómsveitin Nafn hljómsveitarinnar á sér merkilega sögu. Loks kom að því að rafdúett-inn Human Woman gæfiút breiðskífu og góðuheilli stendur hún undir vonum og væntingum allra heið- arlegra tölvu- poppara. Raf- popp er nefnilega vara- samt í um- gengni og minni spámenn renna oft á rassinn með það. En tvíeykið, skipað þeim Jóni Atla, áður Hairdoctor og nú Sexy Lazer, og Gísla Galdri, hefur fanta- tök á músíkinni og engum sem hlust- ar þarf að leiðast. Sjálfsagt er fljótlegast að lýsa sjarma plötunnar sem svo að henni tekst að feta einstigið milli tilrauna- mennsku og hreinræktaðs skemmti- gildis. Ólíklegt að þeir Sexy og Gald- ur hafi lagt sérstaklega upp með það; líkast til hentu þeir í tólf lög sem þeim þóttu skemmtileg í þeirri von að fleiri kynnu að meta. Og það hefði ég nú aldeilis haldið. Bestu lög- unum – að mati undirritaðs alltént – er dreift ákaflega smekklega um plötuna svo reglulega koma ómót- stæðilegir toppar sem fanga óskipta athygli og gleðja refjalaust í fram- haldinu. Þar má nefna „Delusional“ sem margir ættu að þekkja núorðið, „DDDI“, „Dike Bike“ og svo rús- ínurnar tvær í plötuendanum, „Lazer & Magic“ og svo „Sleepy“. Bæði þessi tvö eru einfaldlega með bestu lögum ársins það sem af er hér á landi, algerlega frábært efni. Fyrir Depeche Mode-nördana er gaman að geta þess að hljóðheimur loka- lagsins minnir sumpart á lagið „It Doesn’t Matter“ af hinni frábæru skífu Some Great Reward, alltént framan af. Ekki leiðu lagi að líkjast. Þá er vert að hrósa bandinu fyrir reglulega flott plötualbúm. Frum- legt og töff. Allt í allt er samnefnd breiðskífa Human Woman hörkufín og er klár- lega kandidat á uppgjörslista þá er settir verða saman samkvæmt venju í lok ársins. Sjáumst þá. Hörkufínt Dúettinn Human Woman, þeir Gísli Galdur og Jón Atli. Töfrandi tölvupopp Geisladiskur Human Woman - Human Woman bbbbn Jón Atli og Gísli Galdur skipa rafdúett- inn Human Woman sem gefur hér út sína fyrstu breiðskífu sem hefur að geyma 15 frumsamin lög. HFN-Music gefur út. JÓN AGNAR ÓLASON TÓNLIST TOTAL RECALL Sýnd kl. 8 - 10:20 BRAVE:HINHUGRAKKA 3D Sýnd kl. 4 - 6 KILLER JOE Sýnd kl. 8 - 10:20 INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 6 - 8 - 10:20 ÍSÖLD4HEIMSHÁLFUHOPP3D Sýnd kl. 4 - 6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 49.000 MANNS! Frá höfundum Toy Story 3, Leitin að Nemó og UPP Stórkostleg teiknimynd fyrir alla fjölskyldunaÞriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð HHHHH-MIAMI HERALD HHHH- ROLLING STONES HHHH- GUARDIAN HHHH- TIME ENTERTAINMENTÞriðjudagstilboð -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is ÍSL TEXTI ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR ÍSL TAL 12 16 12 L L HHH HHHH VJV - SVARTHÖFÐI Íslenskt tal Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is MEÐ ÍSLENSKU TALI TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS TOTAL RECALL KL. 8 - 10.15 12 TO ROME WITH LOVE KL. 5.50 - 8 L KILLER JOE KL. 10.15 16 INTOUCHABLES KL. 5.50 12 TO ROME WITH LOVE KL. 5.30 - 8 - 10.30 L TOTAL RECALL KL. 6 - 9 12 KILLER JOE KL. 8 - 10.20 16 ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL.5.50 L INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 L BRAVE:HINHUGRAKKA 2D KL. 3.30 - 5.45 L BRAVE:HINHUGRAKKA 3D KL. 3.30 - 5.45 L TOTAL RECALL KL. 6 - 8 - 9 - 10.35 12 TOTAL RECALL LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.35 12 ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.3.40 - 5.50 L ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L TED KL. 8 - 10.20 12 SPIDER-MAN 3D KL. 8 - 10.50 10 - V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS - H.S.S., MBLBREYTTU ÖRLÖGUM ÞÍNUM!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.