SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 8

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 8
Því hefur lengi verið spáð að Bo Xilai myndi komast til æðstu met- orða í kínverskum stjórnmálum en eftir morðhneykslið er ljóst að sá draumur er úti. Búið er að reka hann úr kommúnistaflokknum og hugsanlega bíður hans fangels- isvist. Böndin bárust að Bo í febr- úar þegar Wang Lijun, lög- reglustjóri í Chongqing leitaði hælis á ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Chengdu, viti sínu fjær af hræðslu eftir að hafa upp- lýst Bo um að Gu væri grunuð um morðið á Heywood. Gu Kailai nam lögfræði við Pek- ingháskóla, hóf lögmannsstörf árið 1987 og stofnaði síðar eigin lögmannsstofu. Hún naut mik- illar virðingar fyrir störf sín og varð fyrsti kínverski lögmaðurinn til að fara með sigur af hólmi í mikilvægu áfrýjunarmáli fyrir bandarískum dómstólum árið 1997 þegar hún gætti hagsmuna nokkurra kínverskra fyrirtækja. Hún hætti þó störfum og lokaði stofunni árið 2001 þegar eig- inmaður hennar var orðinn mjög valdamikill og útlit fyrir að hann yrði einn af voldugustu mönnum Kína. Leiðtoginn sem aldrei verður Bo Xilai, eiginmaður Gu, er grunaður um að hindra framgang réttvísinnar. AFP 8 12. ágúst 2012 Allt bendir nú til þess að kínverskakaupsýslukonan og lögfræðingurinnGu Kailai verði dæmd í fangelsi, líklegafyrir lífstíð, en hún neitaði ekki fyrir dómi í Hefei á fimmtudag að hafa myrt breska kaupsýslumanninn Neil Heywood með því að byrla honum eitur í nóvember síðastliðnum. Málið hefur vakið heimsathygli en Gu er eiginkona stjórnmálamannsins Bos Xilais, leiðtoga komm- únistaflokksins í Chongqing, en hann var sviptur embættum sínum meðan á rannsókn málsins stóð. Í gær var upplýst að Bo yrði sjálfur dreginn fyrir dómstóla á næstunni grunaður um að hindra framgang réttvísinnar. Þá hafa fjórir lögreglu- menn í Chongqing, þeirra á meðal sjálfur lög- reglustjórinn, verið teknir höndum grunaðir um að hylma yfir með Gu, mögulega að undirlagi Bos. Réttað verður í máli þeirra í næstu viku. Mikill sláttur hefur verið á þeim hjónum, Bo og Gu, í Kína undanfarin misseri og þeim stundum líkt við bandarísku forsetahjónin sálugu, Jackie og John F. Kennedy. Fallið er því hátt. Starfsmaður Gu, Zhang Xiaojun, viðurkenndi einnig fyrir dómi á fimmtudag að hafa verið á vettvangi, þegar Heywood lést. Bað Gu dómarann að taka tillit til þess við dómsuppkvaðningu að Zhang hefði aðeins verið sér innan handar. Ábyrgðin væri hennar. Annars eru fréttir af dómhaldinu nokkuð óljósar en erlendum fjölmiðlum var meinað að fylgjast með því og takmörkuð umfjöllun hefur verið um málið í kínverskum fjölmiðlum. Kínverska rík- issjónvarpið minntist til að mynda aðeins stuttlega á málið á vef sínum á fimmtudag. Var þar meðal annars vitnað í orð verjanda Gu sem hélt því fram að Heywood bæri að hluta ábyrgð á dauða sínum sjálfur. Ekki kom þó fram með hvaða hætti. Forsaga málsins er sú að Neil Heywood, 41 árs, fannst látinn á hótelherbergi sínu í Chongqing 14. nóvember síðastliðinn. Í fyrstu var talið að bana- mein hans hefði verið hjartaáfall í kjölfar of- drykkju en við þá niðurstöðu felldu aðstandendur Heywoods sig ekki. Sögðu hann hafa verið hóf- mann í drykkju. Hófst þá rannsókn á andlátinu og eftir dúk og disk bárust böndin að Gu en Heywood átti í viðskiptum við son þeirra Bos, Bo Guagua. Svo virðist sem þau viðskipti, þar sem 130 millj- ónir sterlingspunda eru sagðar hafa átt að skipta um hendur, hafi farið úr böndum og Heywood í kjölfarið hótað bréflega að koma Bo yngri á kné. Það mál hefur örugglega verið rætt þegar Gu fór að finna Heywood á hótelherbergi hans kvöldið örlagaríka. Fregnir úr dómsal herma að þau hafi setið að drykkju uns Heywood varð bumbult og seldi upp. Gu mun þá hafa boðist til að sækja vatn handa honum og notað tækifærið til að byrla hon- um eitur með þeim afleiðingum að hann lést. Gu var tekin höndum í apríl og formlega ákærð fyrir morðið á Heywood í lok síðasta mánaðar. Bo yngri dvelst nú í Bandaríkjunum en hann lauk námi frá Harvard fyrr á þessu ári. Í orðsend- ingu til Reuters-fréttastofunnar í vikunni hafnaði hann ekki tilvist hótunarbréfsins en sagði af og frá að 130 milljónir punda hefðu verið í spilinu. Búist er við að dómur yfir Gu Kailai verði kveð- inn upp innan hálfs mánaðar. Gu Kailai, 53 ára, við réttarhaldið þar sem hún gekkst við morðinu. AFP Syrtir í álinn hjá Gu og Bo Gu Kailai neitar ekki að hafa ráðið Neil Heywood bana Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Heildarlausnir í hreinlætisvörum Sjáum um að birgðarstaða hreinlætis- og ræstingarvara sé rétt í þínu fyrirtæki. Hagræðing og þægindi fyrir stór og lítil fyrirtæki. Við sjáum um þig! Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700 Hafðu samband og fáðu tilboð sími 520 7700 eða sendu línu á raestivorur@raestivorur.is raestivorur.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.