SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Blaðsíða 10
Sunddans er með þokkafyllstu íþróttum sem keppt er í á Ólympíuleikum. Hér má sjá áströlsku sveitina gera æfingar sínar í keppni með frjálsu lagi í lauginni í Lundúnum síðastliðinn föstudag. Veröld AFP Fljúgðu hærra, hærra! 10 12. ágúst 2012 Sumarið hefur verið einstakt. Við höfum notið blíð-unnar, fegurðarinnar og frídaganna. Safnað kröftumfyrir veturinn. Eins og til undirbúnings því hafa fréttiraf pólitískum átökum vikið fyrir gleðifréttum af sumri og sól. En líkt og börnin vita að þeirra bíða námsannir og nýjar ákvarðanir vitum við hin að okkar bíður kosningavetur og loks vor þegar þjóðin kveður upp sinn dóm um hvert stefna skuli næstu fjögur árin. „Ég mun ekki kjósa næst nema ég sé sannfærð um að stjórn- málin hafi breyst,“ sagði vinkona mín sem hefur verið með annan fótinn erlendis en dvaldi heima í sumar. Hún hafði beðið mig og aðra að hitta sig yfir kaffibolla. Með miklum þunga sagði hún að í fyrsta sinn á sínum fullorðinsárum vildi hún hvorki taka þátt í né hafa afskipti af íslenskum stjórnmálum. Stjórnmálaflokkarnir geta ekki hundsað þessar raddir eða hallað sér aftur til vors. Þeir þurfa að nýta tímann vel, eigi fólk að fá trú á að markmið þeirra sé það eitt að standa vörð um hagsmuni þeirra. Trú sem ekki verður endurvakin nema hin pólitísku öfl séu reiðubúin að endurskoða áherslur og takast á við nýja tíma. Að gera breytingar þýðir ekki að flokkarnir víki frá hug- sjónum sínum. Öðru nær, þurfa þeir að vinna betur með eigin hug- sjónir og framgang þeirra í breyttu samfélagi. Í því felst hvorki uppgjöf né ógn, heldur tækifæri til að gera betur og veita kjósendum vissu fyrir því að stjórnmálin og stjórn- málamenn geti lært af reynslunni. Sjálfstæðisflokkurinn á að hafa forystu í þessu sem öðru. Tækifær- in eru hugsjónir hans og það brýna erindi sem þær eiga við þjóðina ná- kvæmlega núna. Sjaldan hefur verið mikilvægara að frelsi með ábyrgð ráði för; að ólíkir hópar og stéttir vinni saman; að ráðdeild sé fylgt í ríkisrekstri og að grunnstefið sé tækifæri allra og að fólki sé almennt treyst fyrir eigin ákvörðunum, lífi og framtíð. En þessar klassísku hugsjónir eru ekki svo íhaldssamar að þær þurfi alltaf sömu leiðir eða lausnir. Líkt og segir í riti um sjálf- stæðisstefnuna er hún „ekki nákvæm forskrift að fullkomnu ríki“ heldur leiðsögn um „mikilvæg atriði sem nauðsynlegt er að taka mið af, vilji menn tryggja frelsi og framþróun í þjóð- félaginu“. Sjálfstæðisflokkurinn hefur því alltaf nálgast markmið sín með ólíkum hætti á ólíkum tímum. Viðeyjarstjórnin leysti verkefni ekki með sama hætti og Viðreisnarstjórnin og Sjálf- stæðisflokkur eftir bankahrun á ekki og mun ekki leysa öll verkefni með sama hætti og gert var fyrir bankahrun. Reynslan á að hafa kennt honum, líkt og þjóðinni allri, að fara varlega, gæta þess að frelsi þeirra sem mikið eiga bitni ekki á frelsi þeirra sem minna eiga og að ábyrgð og umfang hins opinbera sé aldrei meira en almenningur ræður við. Nái Sjálfstæðisflokkurinn árangri í vor bíða hans brýn verk- efni. Í fyrsta lagi að lækka álögur á almenning svo lífsgæði aukist og helsta kjarabótin sé ekki afsláttur olíufélaganna vegna Euro- vision eða handbolta. Í öðru lagi að tryggja að atvinnulífið fái notið sín og sé ekki háð ríkisvaldi sem varla hefur lokið árás sinni á eina atvinnugrein þegar gengið er að þeirri næstu. Í þriðja lagi þarf að endurskoða opinberan rekstur og minnka miðstýringu, svo fólkið sjálft njóti aukins vals og valds. Ekkert stjórnmálaafl getur tekist á við þessi verkefni betur en Sjálfstæðisflokkurinn. En til þess þarf hann afgerandi umboð þjóðarinnar. Það umboð fæst ekki aðeins vegna þess að núver- andi ríkisstjórn mun ekki leysa verkefnið vel, heldur verður fólk að vera sannfært um að Sjálfstæðisflokkurinn muni gera það best. Þess vegna verður Sjálfstæðisflokkurinn að nýta veturinn og vorið vel. Og það mun hann gera með því að halda hugsjónum sínum hátt á lofti; boða lausnir í stað stöðugs ráðaleysis núver- andi stjórnvalda; gera eigið flokksstarf enn lýðræðislegra og gefa sem flestum tækifæri til að hafa áhrif á framboðslista og -áherslur flokksins; en umfram allt með því að gefa aldrei eftir í baráttunni fyrir hagsmunum fólksins í landinu. Þá sannfærast kjósendur, þar með talin vinkonan sem ekki veit hvort hún ætl- ar að kjósa í vor, um að nauðsynleg breyting í stjórnmálum verði aðeins þegar slíkar áherslur og hugsjónir ráða för. Vetur og vor ’ Að gera breytingar þýðir ekki að flokkarnir víki frá hugsjónum sínum. Öðru nær, þurfa þeir að vinna betur með eigin hugsjónir og framgang þeirra í breyttu samfélagi Úr ólíkum áttum Hanna Birna Kristjánsdóttir hanna.birna.kristjansdottir- @reykjavik.is–– Meira fyrir lesendur : Meðal efnis verður: Endurmenntun Símenntun Iðnnám Tómstundarnám- skeið Tölvunám Háskólanám Framhalds- skólanám Tónlistarnám Skólavörur Skólatölvur Ásamt full af spennandi efni Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 13. ágúst Þann 17. ágúst kemur út glæsilegt sérblað um skóla og námskeið sem mun fylgja Morgunblaðinu þann dag SÉRBLAÐ Skól ar & náms keið Skólar & námskeið

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.