SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Blaðsíða 31
12. ágúst 2012 31
Bjarni Snæbjörnsson leikari og söngvari opnarmyndaalbúmið að þessu sinni. Bjarni fæddist 7.júlí árið 1978 í Reykjavík en ólst upp á Tálknafirði.Hann fór í framhaldsskólann í Garðabæ og út-
skrifaðist þaðan árið 1998. Eftir útskrift ferðaðist Bjarni
töluvert þangað til hann fór í Leiklistarskólann þaðan sem
hann útskrifaðist árið 2007. Bjarni er einnig með BA-gráðu
í ensku og hefur þess utan lokið söngnámi.
Bjarni er annar helmingur dúettsins Viggós og Víólettu
sem voru einmitt kynnar á opnunarhátíð Hinsegin daga á
fimmtudaginn. Dúettinn mun einnig koma fram á Hinsegin
hátíð á Arnarhóli á laugardaginn. Dúettinn á fjögurra ára
starfsafmæli um þessar mundir en hann hóf einmitt göngu
sína á Hinsegin dögum fyrir fjórum árum.
Bjarni hefur komið fram í fjölda leik- og dansverka.
Sinnt leikstjórn, leiklistarkennslu, talsetningu ásamt því að
leika í fjölda auglýsinga. Bjarni er giftur Frímanni Sigurðs-
syni.
Bjarni pattaralegur í smekkbuxum.
Viggó og Víóletta á stóra sviði Borgarleik-
hússins með dönsurum frá Birnu Björns.
Glaður drengur sem fékk fyrsta hjólið sitt í afmælisgjöf sex ára gamall.
Fjölskyldan um jól. Bjarni ásamt bræðrum sínum Steinari og Jónasi og
foreldrunum Snæbirni Geir Viggóssyni og Helgu Jónasdóttur.
Frændsystkini, f.v. Klara Margrét, Karlotta Lind og Kristján Sveinsbörn
en Karlotta er guðdóttir Bjarna og Frímanns Sigurðssonar.
Með leiðbeinendum í sumarbúðum í Wisconsin þar sem Bjarni starfaði
sem einskonar strandvörður á sumrin á árunum 1999-2003.
Leiklist
og söngur
Spéfuglinn hæfileikaríki Bjarni
Snæbjörnsson hefur komið víða
við þrátt fyrir ungan aldur.
Viggó og Víóletta, dúettinn óborganlegi.
Bjarni og Frímann eiginmaður hans á fjögurra ára
brúðkaupsafmælinu þann 16. júní síðastliðinn.
Bjanir hleypur mikið og á myndinni hefur
hann nýlokið við hálft maraþon.
Stúdent frá FG, jólin 1998.
Sarínó sirkusstjóri á flugi í söngleiknum „Sarínó sirkusinn.“