SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Blaðsíða 41
12. ágúst 2012 41
LÁRÉTT
1. Ekki gott er fyrir kind að vera fánýt. (8)
4. Rusl sem kemur af því að sigla á fullri á ferð verður
hluti af erfiðri viðureign. (9)
8. Skógardýr tapa ró út af móðu. (7)
9. Húsdýr skeri fyrir námsmann. (7)
12. Nemandi sem er frekur í kennslustund? (10)
14. Skipi upp á fætur. (9)
15. Sú sem er hrædd við yfirnáttúrulegar verur er sú
sem vaknar oft. (8)
16. Þjóta með sorg. (4)
17. Iðgjaldahækkanir eru á mörkum þess. (7)
18. Að horfa á Norðurland aftur og einu sinni enn. (9)
21. Bragur á námsstofnun byggir á rituðu máli. (10)
26. Færar í suðri út af klaka. (8)
27. Yfirlýsing um skilning á sögupersónu er bil á
blaði. (8)
28. Tómhentur er þó nokkuð auk álfta. (8)
30. Þokkalegast ryk leggst einfalt á línu. (8)
31. Logi sem er líkamshluti dreka? (8)
32. Kólni skítur og samansaumaðar sem eru erlend-
ar. (13)
34. Sjá lasna með þrælasölu sem er ekki rétt. (6)
35. Með N1 ýlið að byrjenda. (6)
36. Kostnaðarsama upplýsi með vísindagrein. (9)
LÓÐRÉTT
1. Erlend ungfrú hjarir hjá þeim sem eru ekki eins. (9)
2. Létum ref í efni. (6)
3. Rugla egg ískyggilegar. (8)
5. Dyr sem skapar gróða í bókhaldi. (9)
6. Minnast bolla sem er gerður úr grjótinu. (12)
7. Er Bítill í að finna goð? (7)
10. Kný bát með sögupersónu og orðagjálfrinu. (5)
11. Tunga Unnar Bjarklind er hefur falda merkingu. (8)
13. Með ekkann og ópi heyrist í leikfangi. (7)
19. Planta heldur á djöflinum. (9)
20. Smágallar finnast einhvern veginn hjá ungum. (9)
21. Undarlegir skurðir með fyrsta flokks grasi valda
geðræna vandanum. (9)
22. Handverksmenn í viðhaldi eru höfundar. (10)
23. Drepur ábreiðan með andlega háskanum. (10)
24. Les að óhræsi meiddi afrískar. (10)
25. Fljóthuga verður sterkari við að þreytast mikið. (9)
29. Áritast einhvern veginn fyrir ánægðari. (7)
33. Snudda í lækningaaðferð. (4)
Verðlaun eru veitt fyrir kross-
gátu vikunnar. Senda skal
þátttökuseðilinn í umslagi
merktu: Krossgáta Morgun-
blaðsins, Hádegismóum 2,
110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 12.
ágúst rennur út á hádegi 17.
ágúst. Nafn vinningshafans
birtist í Sunnudagsmogganum 19. ágúst. Vinn-
ingshafi krossgátunnar 5. ágúst er Brynjólfur
Magnússon, Lynghaga 2, Reykjavík. Hann hlýtur
í verðlaun bókina Konan við 1000° eftir Hallgrím
Helgason. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Um þessar mundir eru 25 ár lið-
in frá sigri Jóhanns Hjartarsonar
á millisvæðamótinu í Szirak í
Ungverjalandi sem margir telja
mesta mótasigur íslensks skák-
manns. Samanburður við afrek
Friðriks Ólafssonar frá milli-
svæðamótinu í Portoroz 1958 er
ekki einfaldur vegna þess að ár-
ið 1987 fóru fram þrjú milli-
svæðamót í stað eins. Tafl-
mennska Friðriks var glæsileg
og greinarhöfundur hefur lengi
verið á þeirri skoðun að hann
hafi teflt best allra keppendaog
að einungis klaufaskapur gegn
minni spámönnunum og tíma-
skortur í unnu hróksendatafli
gegn sigurvegaranum Tal hafi
komið í veg fyrir hærra sæti. Jó-
hann varð efstur ásamt Valeri
Salov en neðar á töflunum komu
nafntogaðir meistarar á borð við
Beljavskí, Portisch, Ljubojevic
og Nunn. Hann tapaði einni
skák í 17 umferðum og hlaut 12
½ vinning. Engin ástæða til að
hafa önnur orð um taflmennsku
hans en þau sem Tal lét falla í
samtali við undirritaðan, að hún
hafi verið frábær. Það var eins
og reynsla liðinna missera gagn-
aðist honum í hvívetna; t.d.
vann hann auðveldan sigur gegn
Englendingnum Flear og gat þar
nýtt sér reynslu af móti í
Moskvu nokkrum vikum fyrr,
stutt skák gegn Karli Þorsteins í
Skákkeppni stofnana veturinn
199́87 virtist hafa veitt honum
þann innblástur sem dugði þeg-
ar hann atti kappi við Larry
Christiansen. Þá var sigur Jó-
hanns yfir Ljubojevic í 12. um-
ferð afar mikilvægur. Júgóslav-
inn hafði verið með á
millisvæðamótum allar götur
síðan í Petropolis árið 1973. Aft-
ur biðu hans vonbrigði í Szirak:
Lubomir Ljubojevic – Jóhann
Hjartarson
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7.
Bb3 d6 8. c3 O-O 9. a4
Óvenjulegur leikur á þessum
tíma en Ljubojevic fór yfirleitt
sínar eigin leiðir í byrjunum.
Leikurinn hafði dugað honum
til sigurs gegn Karpov á Ólymp-
íumótinu í Dubai 1986.
9. … Bd7
Karpov lék 9. … Bg4 í fyrr-
nefndri skák en Jóhann velur
sömu leið og Beljavskí hafði gert
gegn Ljubojevic fyrr í mótinu.
10. d4 h6 11. Rbd2 He8 12. d5
Eðlilegara er 12. Rf1 o.s.frv.
12. … Ra5 13. Bc2 c6! 14. b4
Rc4 15. Rxc4 bxc4 16. dxc6 Bxc6
17. De2 Hc8 18. Bd2 Bf8 19. Had1
Bb7 20. Rh4 g6 21. a5 Bg7 22. Rf3
Dc7 23. Be3 d5!
Með þessum leik hrifsar
svartur til sín frumkvæðið enda
hefur taflmennska hvíts, t.a.m.
Rh4 og aftur – Rf3 verið ómark-
viss.
24. Bb6 Dc6 25. Rd2 d4! 26.
cxd4 exd4 27. Bxd4 c3 28. Rf1
Rxe4 29. Df3
Betra var 29. Bxg7 en Ljuboj-
evic gast ekki að 29. … Rg3! sem
þó er hægt að svara með 30 Df3.
29. … Rd2!
Kraftmikill leikur sem gerir
stöðu svarts afar erfiða.
30. Hxe8 Hxe8 31. Dxc6 Bxc6
32. Bxg7 Kxg7 33. Re3 Hb8!
Eftir þennan leik verður stöðu
hvíts ekki bjargað.
34. Hc1 Hxb4 35. Rd1 Hg4 36.
g3 Rf3 37. Kf1 Bb5 38. Kg2 Re1
39. Kg1 Rxc2 40. Hxc2 Ba4 41.
Hc1 Bxd1 42. Hxd1 c2 43. Hc1
Hc4 44. Kf1 Kf6
Að lokum er það betri kóngs-
staða sem gerir útslagið.
45. Ke2 Ke5 46. Kd2 Kd4 47.
h4 h5 48. f3 f6 49. Hxc2 Hxc2
50. Kxc2 Kc4 51. g4 f5 52. gxh5
gxh5 53. Kd2 f4 54. Kc2 Kb4 55.
Kd3 Kxa5 56. Ke4 Kb4 57. Kxf4
- og Ljubojevic gafst upp um
leið. Framhaldið gæti orðið 57.
… a5 58. Ke3 Kc3! 59. f4 a4 60.
f5 a3 61. f6 a2 62. f7 a1(D) 63.
f8(D) De1+ ásamt Df1+ og hvíta
drottningin fellur.
25 ár frá afreki Jóhanns í Szirak
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta
Helgi Ólafsson helol@simnet.is