SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Blaðsíða 13

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Blaðsíða 13
Nú hafa íþróttamenn ífremstu röð margirhverjir ekki fariðvarhluta af þróun þekkingar og tækni sem orðið hefur í heiminum á und- anförnum áratugum. Léttari skór, sérhannaðir búningar, fæðubótarefni, aukin þekking og stórbætt umgjörð hefur í mörgum tilfellum gert íþrótta- mönnum kleift að ná betri ár- angri en áður hefur þekkst. En þar með er björninn ekki unn- inn, í mörgum tilfellum hafa heims- og ólympíumet staðið árum saman þrátt fyrir fram- farir á hinum ýmsu sviðum. Ofurmannlegur Beamon Eitt elsta núverandi ólympíu- met var sett á Ólympíu- leikunum 1968 þegar Bob Bea- mon stökk 8,90 metra sem jafnframt var heimsmet. Bea- mon bætti þáverandi heimsmet um hvorki meira né minna heldur en 55 cm. Til marks um aldur metsins má geta þess að Kristján Eldjárn var kjörinn í embætti forseta Íslands um svipað leyti og Beamon stökk lengra en menn höfðu áður gert. Það tók langstökkvara 23 ár að bæta met Beamon en það gerði Mike Powell á heims- meistaramóti í Tókýó 1991, met sem enn stendur. Florence Griffith-Joyner setti heimsmet í 100 m hlaupi kvenna árið 1988 þegar hún hljóp vegalengdina á 10,49 sek- úndum. Seinna sama ár setti hún ólympíumet í Seoul þegar hún hljóp á 10,62. Það sem meira er þá setti hún einnig heimsmet í 200 m hlaupi við sama tækifæri sem enn stendur. Spretthlaupskonur veraldar berjast því enn við að spretta hraðar úr spori en hin sáluga Florence Griffith-Joyner gerði. Sigrar Griffith-Joyner eru ekki óumdeildir og allar götur síðan hafa sögusagnir verið á kreiki um ólöglega lyfjanotkun henn- ar. Í aðdraganda Ólympíu- leikanna 1988 þótti vöxtur hennar hafa tekið meiri breyt- ingum en góðu hófi gegnir. Fyrir 1988 var besti tími Grif- fith-Joyner í 100 m hlaupi 10,96 og því bætti hún sinn besta tíma um 35 hundraðs- hluta úr sekúndu. Til að setja þann árangur í samhengi má nefna að heims- met karla í 100 m hlaupi hefur verið bætt um samtals 35 sek- úndubrot á heilum 25 árum. Núverandi heimsmet Usain Bolt frá 2009 er 9,58 sekúndur sem er 35 sekúndubrotum betra en 9,93 sekúndur Carl Lewis frá 1987. Því má segja að framfarir Griffith-Joyner á árinu 1988 með eða án stera séu ævintýra- legar svo ekki sé meira sagt. Griffith-Joyner gekkst undir lyfjapróf í Seoul ’88 og stóðst það með glans en hætti hins- vegar keppni í kjölfar leikanna. Hún byrjaði aftur að keppa um miðjan níunda áratuginn en lést skyndilega árið 1998. Dán- arorsökin er talin flogaveiki en þessi sprettharða hlaupakona lést í svefni. Mágkona Griffith-Joyner, Jackie Joyner-Kersee setti heimsmet á Ólympíuleikunum 1988 sem enn stendur. Metið setti hún í sjöþraut þar sem hún náði í 7.291 stig, engin frjáls- íþróttakona hefur síðar leikið það eftir. Ef frekar á að ræða stöðnun eða jafnvel afturför í frjálsum íþróttum má nefna að ólympíu- meistari kvenna í kúluvarp frá því í Peking, Valerie Vili, hefði ekki náð verðlaunasæti með vinningskastinu á Ólympíu- leikunum í Montreal 1976. Því má ljóst vera að framþróun í þjálfun, aðbúnaði og annarri umgjörð hefur ekki úrslitaáhrif í öllum tilfellum. Hraðari þróun í sundgreinum Samanburður á framþróun í sundi við framþróun í frjálsum íþróttum er forvitnilegur. Á ÓL í Peking setti sundfólk 25 heimsmet í aðeins 34 greinum. Langlífasta heimsmetið í sund- greinum er met Grant Hackett í 1.500 m sundi sem sett var árið 2000 á ÓL í Sydney. Framþróun í sundgreinum hefur verið mun hraðari en t.d. í margskonar hlaupagreinum ef tekið er mið af tímum sigurvegara í þessum greinum á Ólympíuleikum frá 1968. En af hverju þessi munur? Sumir vilja meina að sundmenn hagnist meira á þróun sem hef- ur orðið á búnaði og umgjörð. Í því sambandi nefna menn atriði eins og háþróaða sundbúninga sem kljúfa vatnið til dýpri lauga sem gera sundmönnum kleift að ná betri tíma en áður hefur þekkst. Sömu aðilar segja að t.d. spretthlauparar geti vart notast við fatnað til að auka spretthörku þó að auglýsingar stórfyrirtækjanna gætu bent til hins gagnstæða. Ná ekki í skottið á gömlum meisturum Ólympíuleikarnir í London eru í há- marki og ekki er úr vegi að líta yfir farinn veg og skoða gömul afrek sem mörg hafa ekki verið leikin eftir. Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Bob Beamon var nálægt því að detta út í undanúrslitum á ÓL 1968, gerði ógilt í fyrstu tveimur stökkunum en setti að lokum glæsilegt heimsmet. Heimsmetum Florence Griffith -Joyner í 100- og 200m hlaupi hefur ekki verið ógnað að ráði síðan þau voru sett á ÓL í Seoul 1988. ’ Bob Beamon stökk 8,90 metra sem jafnframt var heimsmet. Beamon bætti þáverandi heimsmet um hvorki meira né minna heldur en 55 cm. 12. ágúst 2012 13 Kerfisveggir frá Deco Felliveggir Stofnanahurðir Skrifstofuhúsgögn Alhliða sérsmíði • • • • • VIÐ BJÓÐUM UPP Á ALHLIÐA LAUSNIR FYRIR FYRIRTÆKI Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.