SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 16

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 16
16 12. ágúst 2012 eins og það væri orðið að sviðsmynd lífs sem ég tilheyrði ekki lengur,“ segir Phoebe. Sigrún var flutt yfir á Great Ormond Street-spítalann í London til meðferðar og var í það mikilli hættu við komuna á spítalann að krabbameinsmeðferð var hafin þá þegar. Einnig voru Sigrúnu gefnir sterar til að þrýstingurinn af æxl- inu ylli ekki lömun. „Læknarnir sem þustu um í kringum okkur þurftu að taka margar mikilvægar ákvarðanir og björguðu lífi Sigrúnar oftar en einu sinni,“ segir Phoebe. Börnin gáfu styrk Krabbameinið hafði náð að dreifa sér í fætur, brjósthol og höfuðkúpu Sigrúnar. Phoebe segir meðhöndlunina enn meiri hjá svo ungum börnum en fullorðnum þar sem þau höndli hana betur og séu jafnvel sterkari en fullorðnir. Phoebe segir það hafa verið ótrúlegt að fylgjast með því sem dóttir þeirra gekk í gegnum. Á köflum hafi henni liðið mjög vel, verið hress og brosandi og virst ekkert skilja í áhyggjufullum foreldrum sínum. „Hún gaf okkur styrk og Jóhann Kári líka, með lítil börn verður maður að halda áfram skipta á bleium og gera allt sem þarf. Það er ekki hægt að leggjast í þunglyndi,“ segir Phoebe. Meðferðinni lauk í desember síðastliðnum en þá tóku við tveir mánuðir heima við þar sem lyfj- um var dælt í líkama Sigrúnar með lyfja- brunni og hún höfð undir eftirliti og í rannsóknum. Meðferðin fól í sér sex um- ferðir af lyfjameðferð þar sem Sigrún dvaldi í nokkra daga á spítalanum en fékk að fara heim á milli. Þá þurfti hún að gangast undir skurðaðgerð þar sem rif- bein sem æxlið hafði átt upptök sín í var tekið í burtu. Í lokin tók við átta vikna háskammtameðferð sem Phoebe segir að hafi reynst þeim einna þungbærust. Meðferðin hafi öll verið mjög ágeng fyrir líkama Sigrúnar og gengið nærri henni en hún þurfti að leggjast nokkrum sinnum inn á spítala vegna aukaverkana. Í gegn- um alla meðferðina gaf Phoebe dóttur sinni brjóst og segist vonast til að það hafi skilað einhverju. Í það minnsta hafi það verið fastur póll í tilverunni og aukið á nánd þeirra meðan á meðferðinni stóð. Mannfólkið sér eina heild „Sigrún svaraði meðferðinni vel og lækn- arnir voru ánægðir. Hún er kröftug og ákveðin í dag og líður vel. En sem mamma þá er gott og vont spurning um líf eða dauða. Ef einhver segir: „Þetta er slæmt en …“ þá dugar það ekki. Bilið milli lífs og dauða er svo stutt að frétt- irnar verða að vera bara góðar. Það er erfitt núna að vita ekki hvort meðferðin leiðir af sér afleiðingar í framtíðinni. Það gæti verið að tennurnar yxu ekki eðli- lega, hjartavandamál kæmu upp eða hún yxi ekki beint út af rifbeinunum. Síðan er það hættan á öðru krabbameini eða að krabbameinið komi aftur. Því finnst mér ekki raunhæft að taka einn dag í einu. Lífið okkar er fortíð, nútíð og framtíð og sem mannfólk sjáum við þetta sem heild. Hvernig getum við líka átt von ef við hugsum ekki um framtíðina? Því ergir mig dálítið þegar fólk segir að maður verði að taka einn dag í einu. Ég segi frekar að maður þurfi að sætta sig við að þetta gerðist og lifa með því. Reyna að vera góð mamma og njóta lífsins til að Sigrún verði ánægð og styðja hana vel til- finningalega svo hún geti tekist á við líf- ið,“ segir Phoebe. Til góðs fyrir marga Þar sem Ewing-sarkmein í börnum undir eins árs er afar sjaldgæft hefur það lítt verið rannsakað. En markmiðið með rannsókn, sem Phoebe vill nú leggja sitt af mörkum við að styrkja, er að auka batatíðni beinkrabbameins. Sú tegund krabbameins sem Sigrún fékk hefur al- mennt aðeins 27% batatíðni en hjá ung- börnum veit í raun enginn hver bata- tíðnin er. Það eina sem læknarnir gátu sagt þeim Phoebe og Kjartani var að börnin brygðust ýmist mjög vel eða mjög illa við meðferðinni. Phoebe leggur nú sitt af mörkum til að hægt verði að auka rannsóknir og safnar áheitum. Þau Kjart- an gengu fyrr í sumar á Lónsöræfum og í framhaldinu ætlar Phoebe að ganga í Kína og klífa Kilimanjaro, hæsta tind Afríku. „Ég vildi gera eitthvað sem gæfi mér andlega næringu en hjálpaði um leið við að rannsaka þetta krabbamein. Þetta er mín leið til að byggja mig upp og gefa til baka, líta framtíðina björtum augum og aðstoða við rannsóknir. Á Lónsöræfum gengum við um 40 km á fjórum dögum en leiðin var valin af handahófi og fengum við góð ráð frá fólkinu í kringum okkur. Aðstæður voru þannig að við þurftum að einbeita okkur mikið, sem var gott. Mér fannst þetta töluvert erfitt og hugsa að þessi ferð verði jafnvel erfiðari en sú í Kína í haust. Ég hef gengið á Indlandi, í Mar- okkó og víðar en hér eru aðstæður al- veg sérstakar þar sem veður getur breytt svo miklu. Í Kína geng ég í sex daga í skipulagðri ferð við Kínamúrinn og álíka í Tansaníu. Ferðirnar eru skipulagðar af JustGiving, rannsókn- arsjóði til styrktar beinkrabbameins- rannsóknum, sem ég er að safna pen- ingum fyrir. Innan þeirra samtaka eru ferðir einstaklinga sem vilja safna áheitum fyrir góð málefni á þennan hátt skipulagðar. Fólk hér á landi hugsar ef til vill að slík rannsókn hafi lítið með Íslendinga að gera en þegar sjúkdómar eru jafn- sjaldgæfir og þessi er öllum rannsóknum deilt á milli og mikilvægt að vera í sam- starfi. Ég skuldbind mig til að safna ákveðinni upphæð og þarf að safna nógu miklu til að standa straum af kostnaði við ferðina og styrkja málefnið um leið. Öll áheit af Íslandsferðinni renna þó beint til samtakanna. Nú þarf ég að fara að ganga og hjóla í Bretlandi til að æfa mig fyrir framhaldið. Ég vil með þessu reyna að gera gott fyrir alla og það skili sér til Sigrúnar, fjölskyldunnar okkar, barna í sömu sporum og framtíðarrann- sókna,“ segir Phoebe. Hægt er að heita á Phoebe á vefsíðunni www.justgiving.com/Phoebe-Jenkins. Þá er söfnunarreikningur á nafni Sigrúnar Láru Kjartansdóttur 0301-13-110380 kt. 0910102830 Phoebe á göngu á Lónsöræfum. „Aðstæður voru þannig að við þurftum að einbeita okkur mikið, sem var gott,“ segir Phoebe sem fannst gott að sækja andlega næringu í útiveruna. Mæðgur á spítalnum þar sem Sigrún gekkst undir sex umferðir af lyfjamðeferð.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.