SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Page 35
12. ágúst 2012 35
fyrir skjáinnsetninguna væru þeir ólík-
lega að gera verk fyrir tíu skjái.“ Einnig
láta listamenn Kling & Bang í té mynd-
verk sem verða hluti af blandaðri sýn-
ingu. „Þessar sýningar ganga upp af því
að listamennirnir treysta okkur fyrir
verkunum sínum. Verkin kastast frá
listamönnunum, í gegnum Kling & Bang
og speglast þaðan til áhorfenda.“
Hugstola demantur
Ingibjörg leiðir veginn frá skjáunum og
inn í sýningarsal B. Þar hanga nokkur
stór sýningartjöld niður úr loftinu í
hring. Tjöldin eru silfruð og beygluð á
bakhliðinni, minna dálítið á demant, en
framhliðin er hvít. Í miðjum hringnum er
mikið tækjaflóð; skjávarpar, hljóðkerfi og
gomma af snúrum. „Ég er svo hrifin af
græjum svo þær fengu að vera efniviður í
sýningunni. Venjulega væri búið að strípa
þetta allt í burtu,“ segir Ingibjörg og
horfir á tækjaturninn.
Á tveggja vikna fresti er breytt um
sýningu en þær eru níu í heild. „Hver
listamaður fær skjávarpa og sex hljóðrásir
til þess að vinna með. Að öðru leyti er
þetta autt blað sem þeim er frjálst að
vinna með að vild.“ Fyrsta sýningin var
opnuð 19. maí en sú síðasta verður opnuð
30. ágúst. Fyrir rúmri viku var opnuð
samsuðusýning þar sem myndverkasafn
Kling & Bang var sett upp en á fimmtu-
daginn opnar Loji Höskuldsson einka-
sýningu.
„Demented Diamond er heitið á ensku
en það þýðist illa á íslensku, kannski
besta heitið sé Hugstola demantur,“ segir
Ingibjörg og brýtur heilann um heitið.
„Orðstofn demented er dementis, sem
þýðir út úr huganum. Orðið hefur nei-
kvæða merkingu en ætti ekki endilega að
hafa það. Þeir sem fara út úr huganum
eru einhvers staðar annars staðar. Það er
upplifun sem getur verið falleg.“ Lista-
konan veltir þessu fyrir sér í smástund og
segir svo: „Þetta vísar líka í ófullkomn-
leikann sem fylgir því að taka verk frá
einhverjum öðrum og setja það í nýtt
samhengi. Það verður alltaf einhver
brenglun en við göngumst við þeim
ófullkomnleika,“ segir hún.
„Okkur er boðið hingað í Hafnarhúsið
sem listamönnum ekki sem galleríi. Kling
& Bang er skapandi afl og mynd-
bandasafnið er ágætis portrett af starf-
seminni. Það getur verið erfitt að skilja
þetta og ná utan um hvernig þessi sýning
virkar. Því er nauðsynlegt að stíga eitt
skref til baka. Kannski er þetta dálítið
hugstola en þetta kristallast allt um sam-
eiginlegan kjarna. Sem í tilfelli Kling &
Bang er óbilandi trú á listina og löngun til
þess að búa til nýjan farveg.“
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Á síðustu sýningu Demented Diamond hinn 30. ágúst afhjúpar leynigestur verk. Demented Diamond samanstendur af níu sýningum. Hver sýning stendur aðeins í tvær vikur.
’
Hægt og rólega
soguðumst við
dýpra og dýpra inn
í Kling & Bang-dýrið. Við
drógumst inn í iðrin á því
og flæktumst.“