SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Page 42
Tríó Bill Frisell leikur tónlist eftir John Lennon í Eldborgarsal Hörpu.
Ljósmynd/Jazzhátíð Reykjavíkur
Við höfum farið þá leið að verameð svolítið stóra hátíð oggert í því að finna atriði sembæði eru áhugaverð tónlist-
arlega en höfða líka til stærri hóps. Við
viljum hafa ákveðinn fjölbreytileika í
dagskránni,“ segir Pétur Grétarsson
framkvæmdastjóri og listrænn stjórnandi
Jazzhátíðar Reykjavíkur. Að sögn Péturs
er ætlunin bjóða upp á atriði sem geta
haft breiðari skírskotun en hinn allra
sérviskulegasti djass. „Stærsta nafnið er
kannski Bill Frisell sem er búinn að vera í
framvarðasveit djassgítarleikara, hann
ætlar m.a. að spila John Lennon sem er
dálítið sérstakt. Að sjálfsögðu verðum við
einnig með beitta og ögrandi tónlist, á
slíkur er enginn skortur t.d. hjá okkar
innlendu djasstónlistarmönnum.“
Eins og oft áður koma fram erlendir
gestir á hátíðinni í ár, margir frá Norð-
urlöndunum en einnig frá Frakklandi,
Bandaríkjunum og Austurríki.
Frambærilegir erlendir gestir
Í íslensku menningarlífi er ákveðinn
strúktúr í norrænu samstarfi og þar er
þáttur Norræna hússins mikilvægur.
„Okkar djasstónlistarfólk er oft á tíðum í
góðu samstarfi við listamenn á Norður-
löndunum og munu þeir margir sameina
krafta sína á hátíðinni í ár.“ Pétur segir
eitt af markmiðum hátíðarinnar að fá
hingað góða tónlistarmenn, gefa þeim
tækifæri og stuðla að auknu erlendu
samstarfi. „Það er mikið framboð af frá-
bærum tónlistarmönnum sem eru til-
tölulega óþekktir. Það er eitt af mínum
hlutverkum að fylgjast með og finna
hæfileikafólk og gefa því tækifæri,“ segir
Pétur og tekur fram að forsvarsmönnum
hátíðarinnar finnist mikilvægt að stuðla
að því að halda samskiptaleiðunum opn-
um í báða enda þó djasshátíðin sé
kannski ekki beinn gerandi í slíku sam-
starfi. Hann bætir við að algengt sé að ís-
lenskt djasstónlistarfólk spili erlendis og
góður rómur sé gerður að okkar fólki.
Erlendir djasstónlistarmenn hafa mik-
inn áhuga á því að koma á djasshátíð í
Reykjavík og segir Pétur að honum berist
ótal erindi hvaðanæva að úr heiminum.
Því má vera ljóst að töluverður metnaður
er fyrir því að gera dagskrá Jazzhátíðar í
Reykjavík sem veglegasta.
Á djasshátíðinni í ár verða gerðar
nokkrar tilraunir með tímasetningar og í
því sambandi má nefna að tvo laugardaga
verða atburðir klukkan hálftólf fyrir há-
degi. „Það er eitthvað sem við höfum
ekki gert áður. Ég fór sjálfur á tónleika á
Listahátíð á þessum tíma og fannst þetta
frábært tónleikatími, okkur langaði að
prófa eitthvað nýtt. Að öðru leyti þá
reynum við að láta atriði og viðburði
skarast aðeins svo fólk geti farið af stað
og átt dálítið magnað kvöld, kynnst lista-
mönnum úr ýmsum áttum í einni ferð.“
Mikill metnaður ríkjandi
Miðasala á hátíðina er þegar hafin á midi-
.is en þess ber að nefna að aðgangur er
ókeypis á nokkra viðburði þar á meðal þá
sem eru á Menningarnótt og sunnudag-
inn 19. ágúst. „Við reynum að koma því
þannig fyrir að ekki séu allir viðburðir á
hátíðinni á okkar könnu. Við erum t.a.m.
í samstarfi við djassklúbbinn Múlann sem
stendur fyrir ákveðnum viðburðum. Svo
eru veitingastaðir eins og Munnharpan
og fleiri með viðburði þar sem aðgangur
er ókeypis.“
Pétur vonast til þess að aðsókn verði
góð eins og undanfarin ár. „Ég hef alltaf
sagt að auðveldast sé að upplifa eitthvað
nýtt á tónleikum frekar en beint af
hljómplötum,“ segir Pétur að lokum og
hvetur fólk til að mæta á Djasshátíð
Reykjavíkur.
Fjölbreytni á Djasshátíð í Reykjavík
Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin 18. ágúst -
1. september en hátíðin er nú haldin í 23. skipti.
Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þar
sem dagskráin verður með fjölbreyttu sniði að
þessu sinni.
Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is
’
„Okkar djasstónlist-
arfólk er oft á tíðum í
góðu samstarfi við
listamenn á Norðurlönd-
unum og munu þeir margir
sameina krafta sína á há-
tíðinni í ár.“
Pétur Grétarsson, framkvæmdastjóri og listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Reykjavíkur, segir að töluverður metnaður sé fyrir því að gera dagskrá hátíðarinnar sem veglegasta
42 12. ágúst 2012
Lesbók