SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 45
12. ágúst 2012 45
Í nýlegri skáldsögu sem óþarft er að nefna ber svo við að ungkona snýr aftur heim á æskuslóðir í smábæ í miðvesturríkjumBandaríkjanna. Þar kemst hún að því sér til mæðu að æskuásthennar féll í bardögum í Írak nokkrum árum áður. Ekki verður
framvinda sögunnar rakin frekar en allmargir lesendur höfðu orð á
því í umsögnum um bókina að ótrúverðugt væri að slíkt og þvílíkt
hefði dulist fyrir söguhetjunni á okkar dögum þar sem Facebook sér
til þess að við vitum alltaf allt um alla.
Í umsögn um skáldsöguna Skios eftir Michael Frayn í New York
Times Book Review fyrir stuttu spyr gagnrýnandin Alex Witchel
hvort ekki sé úr sögunni að menn geti villt á sér heimildir þegar hægt
er að fletta þeim upp í myndaleit
Google.
Á vefsetri The Millions segir
Allison K. Gibson frá því að við
lestur Let the Northern Lights
Erase Your Name eftir Vendela
Vida hafi hún velt því fyrir sér
hvers vegna söguhetjunni hafi
ekki hugkvæmst að leita að föð-
ur sínum á Google áður en hún
lagði upp í svaðilför norður að
heimskautsbaug í leit að honum.
Það er eðli ritstarfa að menn
iðja einir, sitja jafnvel árum
saman í einsemdinni að miðla söguheimi úr kollinum á sér á pappír
eða tölvuskjá. Dæmisaga er af þekktum bandarískum rithöfundi sem
smyr lími í Ethernet-tengi fartölvu sinnar til að tryggja að ekki sé
hægt að tengja hana netinu, en ef saga hans gerist á okkar tímum
kemst hann ekki undan því að geta um SMS, Facebook, Twitter, Go-
ogle, Yahoo og svo má lengi telja. Ekki þurfa þessi fyrirbæri beinlínis
að koma fyrir í sögunni, en þeir sem nota þau vita hversu hjákátlegt
það er þegar einhverjum dettur ekki í hug að nota Google til að leita
sér upplýsinga um fyrirtæki þrjótanna sem hann glímir við, draga
upp farsímann þegar illmennin nálgast í rökkrinu til að hringja á
hjálp eða nota símann sem vasaljós eða skanna leyndarskjalið og
senda í tölvupósti í stað þess að fela það í skónum eða geyma í munni
sér.
Hængurinn er að sá sem situr og rýnir í texta allan daginn skilur
iðulega lítt hvað það er sem aðrir iðja hversdags - hann er að
skyggnast í hjörtu mannanna, en ekki endilega samtímann. Nú
finnst þér kannski að þetta sé vandi lesandans en ekki höfundarins,
en þegar lesandinn skilur ekki minni sögunnar eða finnst þau ótrú-
verðug vegna þess að þau stangast á við tímasvið hennar dregur
óneitanlega úr ánægju af lestrinum.
Orð á netöld
’
Þegar lesandinn
skilur ekki
minni sögunnar
eða finnst þau ótrú-
verðug vegna þess að
þau stangast á við
tímasvið hennar dreg-
ur óneitanlega úr
ánægju af lestrinum.
Orðanna
hljóðan
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
Listasafn Reykjanesbæjar
MILLILANDAMYNDIR
45 verk eftir ýmsa listamenn
2. júní – 19. ágúst
Bátasafn Gríms Karlssonar
100 bátalíkön og ýmsar sjóminjar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
VERTÍÐIN - Ný sýning
um sögu svæðisins til 1940
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Kvikmyndasýning sunnudaginn 12. ágúst kl. 15:
Björgunarafrekið við Látrabjarg
Fjölbreyttar sýningar:
TÍZKA - kjólar og korselett
Björgunarafrekið við Látrabjarg - ljósmyndir Óskars Gíslasonar
Aðventa á Fjöllum - ljósmyndir Sigurjóns Péturssonar
Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur
Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár
Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky - 40 ár
Damaskushnífar og dálkar
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga kl. 10-17.
Síðasta abstraktsjónin
Eiríkur Smith 1964 - 1968
Sunnudaginn 12. ágúst kl. 15
- Leiðsögn
Heiðar Kári Rannversson
Hús
Hreinn Friðfinnsson
Sýningarnar standa til 19. ágúst
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
Húsið á Eyrarbakka í borðstofu:
Sunnlendingar á Ólympíuleikum
sumarsýning Byggðasafns
Árnesinga
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka
Draumur um bát
sýning í forsal
Opið alla daga kl. 11-18
Sími 483 1504
www.husid.com
SAGA TIL NÆSTA BÆJAR
Úrval íslenskrar vöruhönnunar
Opið alla daga
nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
NAUTN OG
NOTAGILDI
myndlist og hönnun
á Íslandi
Kaffistofa – Leskró – Barnakró
Opið alla daga kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
ÖLVUÐ AF ÍSLANDI 19.5. - 4.11. 2012
DÁLEIDD AF ÍSLANDI 19.5. - 4.11. 2012
HÆTTUMÖRK 19.5. - 31.12. 2012
„SJÁLFSTÆTT FÓLK“ 19.5. - 2.9. 2012
HÁDEGISLEIÐSÖGN ÞRIÐJUDAGA OG FÖSTUDAGA KL. 12:10-12:40
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
BERGSTAÐASTRÆTI 74
FORNMENN
UMHVERFIS LANDIÐ Á FÁEINUM ÁRATUGUM
OPIÐ 10-14 ALLA VIRKA DAGA TIL 1. SEPTEMBER
SAFNBÚÐ, listaverkabækur og gjafavara.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600,
OPIÐ daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
Allir velkomnir! www.listasafn.is
E
itt af bestu skáldum okkar Íslendinga hefur
sagt að margir íslenskir rithöfundar kunni ekki
að skrifa samtöl. Þessi gagnrýni á ekki við um
Rúnar Helga Vignisson sem hefur nú sent frá
sér bókina Ást í meinum, fimmtán smásögur sem eiga
það sameiginlegt að fjalla um náin samskipti. Bókin er
sérlega vel skrifuð og vert er að mæla með henni við fólk
sem vill lesa áhugaverðar sögur um samskipti manna,
m.a. ástina í öllum sínum furðulegu myndum.
Samtölin í bókinni eru trúverðug og eðlileg. Þau lýsa
vel tilfinningum persónanna þegar það á við, varpa
stundum ljósi á persónuleika þeirra, auk þess að mjatla
upplýsingum til lesandans og fleyta sögunum fram.
Samtölin eru blessunarlega laus við tilgerðarlegar slett-
ur.
Höfundurinn kann líka að búa til áhugaverðar per-
sónur. Sumum höfundum hættir til að gera persónurnar
svo heimskar – hugsanlega til að upphefja sjálfa sig – að
lesandinn kærir sig kollóttan um þær og frásögnin miss-
ir marks. Rúnar Helgi er alveg laus við yfirlæti í per-
sónusköpun sinni.
Sögurnar eru fjölbreytilegar, stíllinn látlaus og fág-
aður og útkoman er læsileg bók sem vekur mann til um-
hugsunar. Stíllinn er stundum gáskafullur en undir-
tónninn oft alvarlegur og dregin er upp raunsönn mynd
af brölti okkar mannanna á lífsleiðinni. Sögurnar eru um
lífið í öllum sínum fjölbreytilegu myndum, allt frá getn-
aði til grafar. Til að mynda er fjallað af næmu innsæi um
togstreitu í samlífi hjóna, barneignir, ást og ástleysi.
Kynhvötin flækir oft samskipti sögupersóna, ýmist er í
ökkla eða eyra eins og gengur. Vegir ástarinnar eru ekki
alltaf fyrirsjáanlegir, til að mynda þegar ungur og fjall-
myndarlegur maður fellur fyrir ellihrumri konu.
Ein af áhrifaríkustu sögunum fjallar um innri baráttu
konu sem reynir að sætta sig við það að eiginmaður
hennar er hommi og vill skilnað. Í annarri sögu ferðast
áhyggjufullur eiginmaður með konu sinni í huganum
um Hornstrandir og óttast að hún komi aldrei aftur
vegna þess að hún hefur fengið nóg af kvíða hans,
óánægju, þreytu og kvörtunum. Lesendur fá sinn
skammt af „rauðum slettum upp um alla veggi“ vegna
þess að eiginmaðurinn snappaði.
Þetta er samt alls ekki enn einn blóðugi reyfarinn.
Þvert á móti. Höfundinum þykir vænt um fólkið sem
hann skapar og vill því vel, þótt það sé breyskt. Hann
hefði til að mynda hæglega getað látið litla stúlku
drukkna í einni sögunni, en af gæsku sinni lætur hann
það ógert. Og þegar litið er yfir allt það sem höfundur-
inn hefur gert má sjá að verk hans er harla gott.
Áhugaverðar sögur um samskipti
Bækur
Ást í meinum
bbbbm
Smásögur eftir Rúnar Helga Vignisson. Uppheimar, 2012. Kilja,
194 bls.
Bogi Þór Arason
Í nýrri bók Rúnars Helga Vignissonar, Ást í meinum, eru
fimmtán smásögur sem fjalla um náin samskipti.