Morgunblaðið - 15.09.2012, Síða 56
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 259. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Myndir birtar af Katrínu berbrjósta
2. Étin lifandi af tófum
3. Vilhjálmur Bretaprins ævareiður
4. Rothögg fyrir bílaleigur
Sigurvegarar Busoni-píanókeppn-
innar á Ítalíu, Antonii Baryschevskyi,
Anna Bukina og Tatiana Chernichka,
koma fram á tónleikum í Norðurljós-
um í Hörpu 22. október nk. kl. 20.
Sérstakur gestur á tónleikunum
verður Víkingur Heiðar Ólafsson. Á
efnisskrá eru verk eftir Bach, Beet-
hoven, Schumann og Mussorgsky.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurvegarar píanó-
keppni leika í Hörpu
Benedikt Kristjánsson tenór og
Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari
halda tónleika í Selinu á Stokkalæk á
morgun kl. 16. Á tónleikunum munu
þeir flytja lög
eftir Hugo
Wolf og
Franz Schu-
bert auk ís-
lenskra söng-
laga.
Veitingar
verða í
boði.
Benedikt og Kristinn
í Selinu á Stokkalæk
ASA-tríó kemur
fram í dag á sjö-
undu tónleikum
djasstónleikarað-
ar veitingastað-
arins Munnhörp-
unnar í Hörpu og
hefjast þeir kl. 15.
Tríóið er skipað
gítarleikaranum
Andrési Þór Gunnlaugssyni, org-
elleikaranum Agnari Má Magnússyni
og trommuleikaranum Scott McLe-
more. Tríóið mun m.a. flytja eigin út-
setningar á lögum eftir Thelonious
Monk. Aðgangur er ókeypis.
ASA-tríó leikur
á Munnhörpunni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í norðan 3-8, fyrst norðantil. Dálítil rigning eða slydda, en
styttir upp á sunnanverðu landinu eftir hádegi. Hiti 1 til 10 stig, mildast S-lands.
Á sunnudag Norðan og norðvestan 8-13 m/s. Rigning eða slydda n-til á landinu, einkum
við ströndina, en léttir til S-lands. Hiti 1 til 10 stig að deginum, mildast syðst.
Á mánudag Norðvestan 10-15 m/s, en hægari vestast. Bjartviðri S- og V-lands, en rign-
ing á NA-verðu landinu og slydda eða snjókoma í innsveitum. Hiti breytist lítið.
Haukar unnu HC Mojkovac, 32:12, í
fyrri leik liðanna í 1. umferð EHF-
keppninnar í handbolta á Ásvöllum í
gærkvöldi en svartfellska liðið var
eitt það slakasta sem hingað hefur
komið til lands. Það er aðeins forms-
atriði fyrir Hauka að klára einvígið í
dag og koma sér í 2. umferð keppn-
innar. Stefán Rafn Sigurmannsson
skoraði 13 mörk fyrir Hauka. »2
Seinni leikurinn forms-
atriði fyrir Haukana
„Ég er svona hægt og
bítandi að átta mig á
þessu,“ sagði kylfing-
urinn Ragnar Már Garð-
arsson úr Golfklúbbnum
GKG við Morgunblaðið í
gær en hann gerði sér lít-
ið fyrir og sigraði á Duke
of York-golfmótinu sem
lauk í Skotlandi í fyrra-
dag. Mótið er eitt allra
sterkasta unglingamót í
heimi. »1
Hægt og bítandi
að átta mig
„Þetta er búið að vera eitt allsherjar-
leiðindasumar uppi í stúku, að sitja
þar og horfa á Selfossliðið spila eftir
að hafa hjálpað því upp í Pepsi-
deildina í fyrra,“ segir Jóhann Ólafur
Sigurðsson, markvörður knatt-
spyrnuliðs Selfyssinga undanfarin ár.
Hann hefur misst af öllu tímabilinu
vegna meiðsla, sem virtust smávægi-
leg, en hann er nýbúinn að fá rétta
greiningu og stefnir nú fullum fetum
á næsta sumar. »3
Allsherjarleiðinda-
sumar í stúkunni
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
„Ég hef aðgang að góðri ráðgjöf og
mörgum eyrum sem eru tilbúin að
hlusta. Það er enginn skortur á
fólki sem er tilbúið að vera mér
innan handar,“ segir Sunna Dóra
Möller sem á morgun verður vígð
til prests í Akureyrarkirkju. Þar
með verða fimm þjónandi prestar
innan fjölskyldunnar.
Bolli Pétur Bollason, eiginmaður
hennar, er sóknarprestur í Lauf-
ási, mágkonur Sunnu, þær Hildur
Eir og Jóna Hrönn, starfa einnig
sem prestar og þá er svili Sunnu,
Bjarni Karlsson, einnig prestur. Þá
var tengdafaðir Sunnu, Bolli Gúst-
avsson heitinn, prestur í Laufási
og síðar vígslubiskup á Hólum.
Sunna neitar því ekki að mikið
sé rætt um guðfræði og málefni
kirkjunnar í fjölskylduboðum.
„Fjölskyldan liggur ekkert á skoð-
unum sínum enda oft verið áber-
andi í umræðunni þegar kirkjumál
ber á góma. Þau eru lifandi og
skemmtileg og mér finnst ég lán-
söm að vera hluti af þessari fjöl-
skyldu,“ segir Sunna.
Kyndir undir áhuganum
Hún segist þó ekki rekja áhuga
sinn á guðfræði alfarið til Bolla og
fjölskyldu hans, sjálf hafi hún allt-
af verið trúuð og sótt kirkju frá
unga aldri. Hún hafi fengið trúar-
legt uppeldi og nefnir afabróður
sinn, Stefán Snævarr, sem
hafi verið sóknarprestur á
Dalvík, og föður hans,
Valdimar Snævarr, mikið
sálmaskáld. Leiðir Bolla
og Sunnu lágu saman í
guðfræðideild háskólans en
hún segist þó ekki hafa
verið ákveðin í að verða
prestur þá heldur hafi
frekar haft áhuga á
fræðistörfum. Sunna
viðurkennir að preststörf Bolla og
tengdafjölskyldu hennar hafi kynt
undir áhuga hennar. „Ég get ekki
neitað því að áhuginn kemur heil-
mikið úr þessari átt, það er í raun
og veru ákveðinn lífsstíll að vera í
kirkjunni.“
Sunna og Bolli eiga tvær dætur,
tíu og tólf ára, og átján ára strák.
Aðspurð hvort þrýstingur sé á þau
að halda í hefðina og gerast prest-
ar svarar Sunna því neitandi. „Þau
hafa sitt val, það er alls engin
pressa. Sigrún dóttir mín sagði
mér reyndar í vetur að hún vildi
verða prestur. En ég held að ekk-
ert barn verði ósnortið af því að
alast upp í slíku umhverfi og þeim
lífsstíl sem fylgir því að búa á
prestsheimili,“ segir Sunna að lok-
um.
Lífsstíll að vera í kirkjunni
Fimm þjónandi
prestar í sömu
fjölskyldunni
Samtaka Sunna Dóra verður vígð til prests á morgun en eiginmaður hennar, Bolli Pétur, er sóknarprestur í Laufási.
Vígsla Sunnu Dóru er fyrsta prest-
vígsla nýkjörins vígslubiskups á
Hólum, sr. Solveigar Láru Guð-
mundsdóttur. Vígslan er öllum
opin og fer fram kl. 16 á morgun
í Hóladómkirkju.
Vígsluvottar verða eigin-
maður og mágkonur Sunnu,
þau sr. Bolli Pétur Bolla-
son, sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir og sr. Hild-
ur Eir Bolladóttir, svili
hennar, sr. Bjarni Karlsson, og
Svavar Alfreð Jónsson, sóknar-
prestur í Akureyrarkirkju.
„Prestvígsla er almennt mjög
hátíðleg athöfn. Þetta er líka mín
fyrsta prestvígsla og það er mjög
ánægjulegt að fá að taka þátt í
þessari athöfn þegar svona stór
hluti þessarar stórkostlegu fjöl-
skyldu er samankominn sem
vígsluvottar,“ segir Solveig Lára
Guðmundsdóttir vígslubiskup.
Fjölskyldan tekur þátt í vígslu
PRESTVÍGSLA Í HÓLADÓMKIRKJU Á MORGUN
Solveig Lára
Guðmundsdóttir.