Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2012, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.03.2012, Blaðsíða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Íþrótta- og leikjadagur Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra, FÁÍA, var haldinn í íþróttahúsinu í Austurbergi í Breiðholti á öskudaginn 22. febrúar. Sýningarflokkar frá ýmsum félögum, samtökum og félags- miðstöðvum í Reykjavík og nágrenni komu fram og sýndu dansatriði og er óhætt að segja að gleðin hafi skinið úr hverju andliti. Íþrótta- og leikjadagur FÁÍA var haldinn í fyrsta skipti að vori til 1987 og hefur verið árviss atburður allar götur síðan. Gleðin allsráðandi á íþrótta- og leikjadegi FÁÍA Íþrótta- og leikjadagurinn hófst með setningu Þóreyjar S. Guðmundsdóttur en í kjölfarið fylgdu fjölmörg sýningar- og dansatriði. Kynnir á hátíðinni var Hjörtur Þórarinsson, varaformaður FÁÍA, og stjórn- andi tónlistar Flemming Jessen. UMFÍ hef- ur verið í samstarfi við Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra síðustu ár. Félagið hefur aðstöðu í þjónustumiðstöð UMFÍ þar sem stjórn þess hittist á vikulegum fundum. Markmið félagsins er að fá aldraða til að hreyfa sig meira. KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA Velkomin á Landsmót 50+ í Mosfellsbæ 10.–12. júní

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.