Skinfaxi - 01.03.2012, Blaðsíða 11
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 11
„Við ætlum að vera með málþing á Lands-
móti UMFÍ 50+. Þar verða hnitmiðaðir
fyrirlestrar, u.þ.b. 10 mínútur hver. Þetta
mun rúlla yfir daginn þannig að fólk getur
komið og farið eftir áhuga hvers og eins.
Fyrirlestrarnir munu fjalla um alla þætti
heilsu, þ.e. líkamlega, andlega og félags-
lega heilsu. Raunar verða tveir þeirra haldn-
ir fyrir mótið,“ sagði Ólöf Kristín Sívertsen
sem er sérgreinastjóri fræðslu og fulltrúi
Heilsuvinjar í landsmótsnefnd og skipu-
leggur fyrirlestrana. Þess má geta að Ólöf
Kristín er formaður Félags lýðheilsufræð-
inga og er fagstjóri hjá fyrirtækinu Skólar
ehf. sem rekur 5 heilsuleikskóla.
Heilsuvin er heilsuklasi í Mosfellsbæ og
er í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsu-
tengdri þjónustu í bænum. Markmið klas-
ans er að efla og byggja upp starfsemi á
Málþing um allt sem viðkemur heilsunni
sviði lýðheilsu, heilsueflingar, endurhæf-
ingar og heilsuferðaþjónustu í Mosfellsbæ.
Hugmyndin að stofnun heilsuklasa í Mos-
fellsbæ er að hagsmunaaðilar í sveitar-
félaginu taki sig saman um að móta klasa
sem byggir á þeirri þekkingu og reynslu
sem samfélagið í Mosfellsbæ býr yfir á
sviði endurhæfingar og heilsueflingar.
„Þetta nær að sjálfsögðu einnig út fyrir
Mosfellsbæinn en markmiðið er að virkja
fólk almennt til góðra verka. Við erum vett-
vangur þar sem fólk getur hist og rætt mál-
in. Uppsprettan að stofnun þessara sam-
taka var að Sævar Kristinsson, þáverandi
varaformaður Aftureldingar, og Jón Páls-
son, þáverandi formaður félagsins, settust
niður árið 2009 og settu þessa hugsjón á
blað sem fór síðan af stað og úr varð þessi
heilsuklasi. Starfið hefur gengið ágætlega
en við þurfum að vinna betur í því að koma
okkur á kortið. Hugmyndin er sú að klas-
inn sem slíkur vinni ekki verkefnin fyrir
fólk heldur beini því í jákvæðan farveg og
tengi fólk saman. Það er frábært fyrir
okkur að fá tækifæri til að koma að Lands-
móti UMFÍ 50+ með þessum hætti. Það
er gaman að segja frá því að árið 2012 er
heilsuár í Mosfellsbæ þar sem Landsmótið
er í raun hápunkturinn. Við erum með alls
konar hugmyndir um hvernig við síðan
fylgjum þessu eftir þegar Landsmótinu
lýkur. Við verðum alla vega með fyrirlestra
út árið,“ sagði Ólöf Kristín Sívertsen.
Ólöf Kristín sagðist vona að keppendur
og aðrir, sem hafa áhuga á heilsu, verði
duglegir að koma og hlýða á áhugaverða
fyrirlestra á Landsmótinu.
Ólöf Kristín Sívert-
sen, sérgreinastjóri
fræðslu.
2. Landsmót 50+ í Mosfellsbæ:
Meðal fyrstu verka, sem ráðist var í fyrir
Landsmót UMFÍ 50+ í Mosfellsbæ, var að
finna sérgreinastjóra í þær greinar sem
keppt verður í á mótinu. Sérgreinastjórarn-
ir hafa síðan hist á reglulegum fundum og
ráðið ráðum sínum enda hafa þeir í nógu
að snúast þegar kemur að undirbúningi
fyrir mótið. Allflestir þeirra eru saman
komnir á myndinni hér fyrir ofan ásamt
Valdimar Leó Friðrikssyni, formanni UMSK
og landsmótsnefndar.
Efri röð frá vinstri: Sigurður Haraldsson,
þríþraut, Guðjón Helgason, landsmótsnefnd,
Hilmar Harðarson, golf/pútt, Hlynur Chadwick
Guðmundsson, frjálsar íþróttir, Þormar Jóns-
son, skák, Hallur Birgisson, knattspyrna,
Róbert Kjaran, kraftlyftingar, Helga Jóhannes-
dóttir, landsmótsnefnd, Ólöf Þorsteinsdóttir,
bridds, Ingi Bjarnar Guðmundsson, boccia,
Karl Þorsteinsson, boccia, Óli Geir Jóhanns-
son, línudans, Svanur M. Gestsson, starfs-
íþróttir, Stefán Alfreð Stefánsson, badminton.
Sérgreinastjórar á Landsmóti UMFÍ 50+
Neðri röð frá vinstri: Margrét Bjarnadóttir,
sýningar, Eva Magnúsdóttir, leikfimi, Valdi-
mar Leó Friðriksson, formaður landsmóts-
nefndar, Steinunn Ingimundardóttir, sýn-
ingar, Jónas Pétur Aðalsteinsson, sund.
Á myndina vantar Guðrúnu Kristínu Einars-
dóttur, blak, Ragnheiði Þorvaldsdóttur,
hestaíþróttir, Ástu Gylfadóttur, ringó, Rúnar
Braga Guðlaugsson, landsmótsnefnd,
Björgu Jakobsdóttur, landsmótsnefnd, og
Ólöfu Kristínu Sívertsen, landsmótsnefnd.