Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2012, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.03.2012, Blaðsíða 3
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3 Þorrinn er liðinn og góan er tekin við. Á þess- um árstíma standa ungmennafélög vítt og breitt um landið fyrir þorra- og góublótum. Skemmtilegum samkomum sem aldagömul hefð er fyrir og skipa stóran sess í samkomu- haldi Íslendinga. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að taka þátt í að undirbúa og framkvæma mörg þorrablót með félögum mínum í ungmenna- félaginu Geisla í Súðavík fyrir nokkuð mörg- um árum. Í minningunni er þetta óborgan- legur tími sem kemur reglulega upp í hugann þegar þessi árstími nálgast. Undirbúningur- inn fyrir blótið var jafnvel enn skemmtilegri en blótið sjálft. Skemmtinefndin hafði það hlutverk að sjá alfarið um þorrablótið en í því fólst að undir- búa dagskrána, semja skemmtiatriði, taka þátt í skemmtiatriðunum, undirbúa félags- heimilið fyrir stóra kvöldið, panta hljómsveit fyrir ballið, semja auglýsingar, selja aðgöngu- miða og ganga síðan frá daginn eftir. Skemmtiatriðin samanstóðu af leikþáttum og söngatriðum úr þorpslífinu sem skemmti- nefndin lagði mikinn metnað í að gera sem best úr garði. Það var mikið hlegið og fólk skemmti sér vel meðan á þessu undirbúnings- ferli stóð. Æft var í margar vikur og þeir sem ekki tóku þátt í að leika eða syngja bjuggu til leikmyndir og gerðu búninga eða sinntu ein- hverju af þeim störfum sem til féllu. Mikil spenna myndaðist meðal þorpsbúa vegna þess hvað skyldi nú verða tekið fyrir og hverjir yrðu teknir fyrir í skemmtidagskrá blótsins. Það þótti nefnilega mikil upphefð að vera tekinn fyrir á þorrablóti. Fastir liðir voru sveitarstjórnin, slysavarnafélagið, kven- félagið, stærsti atvinnurekandinn á staðnum og litríkir persónuleikar meðal þorpsbúa. Þess var gætt að enginn yrði sár eða reiður yfir því að hafa verið „tekinn fyrir“. Marga daga á eftir var fólk síðan að skemmta sér yfir atriðunum sem voru á dag- skrá þorrablótsins og tala um þau. Þannig hafði þessi eina samkoma heilmikið að segja í lífi fólks í þorpinu, bæði fyrir þá sem tóku þátt í að undirbúa hana og hjá þeim sem svo eingöngu nutu hennar. Það sem eftir stóð var að það höfðu allir gaman saman. Það var heilmikil lífsreynsla fyrir mig að taka þátt í að undirbúa svona samkomu. Að fá tækifæri til að taka þátt í að frumsemja leikþætti og söngtexta, að leika og syngja á sviði er eitthvað sem maður gleymir aldrei og býr að enn þann dag í dag þótt á öðru sviði sé. Það eru liðin tuttugu ár frá því að ég flutti úr Súðavík en þegar ég fer á þorrablótin þar, sem ungmennafélagið sér enn um að halda, þá upplifi ég þorpslífið og mannlífið þar með því að horfa á skemmtidagskrána, allt heima- tilbúin atriði. Þátttakan gefur lífi nu lit Ég veit að þeir eru margir sem hafa svip- aða sögu að segja og ég. Það að taka þátt í að undirbúa menningarsamkomu eins og þorrablót tilheyrir því að vera félagi í ung- mennafélaginu ásamt öllu hinu sem verið er að gera frá degi til dags og gerir þennan félagsskap svo eftirsóknarverðan. En góan verður búin áður en við vitum af og komið vor. Þá lifnar náttúran við og undir- búningur fyrir störf sumarsins verður í fullum gangi hjá ungmennafélögum. Fram undan eru mörg spennandi verkefni hjá hreyfing- unni. Haldið verður Unglingalandsmót á Selfossi um verslunarmannahelgina og dag- ana 8.–10. júní verður annað Landsmót UMFÍ 50+ haldið í Mosfellsbæ. Hluti af vorinu og sumrinu hjá mörgum er að taka þátt í almenn- ingsíþróttaverkefnum UMFÍ. Allt eru þetta góð verkefni sem ég hvet þig, ágæti lesandi, til að taka þátt í ef þú hefur ekki þegar ákveð- ið að gera það. Æskulýðs- og íþróttastarf er göfugt starf og hefur aldrei verið mikilvægara en nú. Ágætu félagar og vinir, ég óska ykkur alls hins besta í störfum ykkar fram undan og hlakka til að hitta sem flest ykkar á vettvangi ungmennafélagshreyfingarinnar við leik og störf. Íslandi allt! Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ: Undirbúningi miðar vel 15. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi um verslunarmannahelgina. Að sögn Þóris Haraldssonar, formanns unglingalandsmótsnefndar, miðar undir- búningi vel áfram, en öll keppnisaðstaða er í raun tilbúin. Mannvirkin eru klár en unnið verður að þökulagningu og öðrum frágangi í kringum nýju vellina í vor. Þess er nú beðið að vellirnir komi undan vetri. „Við erum búnir að fá alla sérgreinastjóra til starfa. Keppnisreglur eru á lokastigi og verða sendar út og gerðar aðgengilegar á vefnum fyrir páska. Þá getur fólk séð allan rammann um mótið og keppendur geta far- ið að skoða betur hvernig þessu öllu verður háttað. Öllum þáttum, sem viðkoma mótinu, miðar vel áfram. Það er verið að loka samn- ingum við styrktaraðila og við erum nýbúnir að gefa út kynningarbækling sem farið er í dreifingu. Kynningarstarf hefur verið í fullum gangi og mótið kynnt innan héraðssam- banda og í hreyfingunni allri,“ sagði Þórir. Með bros á vör – Eigið þið ekki von á góðri aðsókn á mótið? „Við eigum von á góðri aðsókn og eftir því sem við höfum heyrt úr einstökum greinum getur stefnt í mjög góða aðsókn. Við búumst Þórir Haraldsson, formaður unglingalandsmótsnefndar á Selfossi: Viðbúnir því að taka á móti miklum fjölda keppenda við að þetta mót verði það fjölmennasta sem haldið hefur verið. Við verðum að vera viðbúin því að taka á móti mikl- um fjölda keppenda og gesta. Aðstæður og allt skipulag okkar miðast við að geta tekið á móti tvöföldum keppenda- fjölda, miðað við það sem var á síðasta móti, og jafnvel fleirum. Þetta er mjög spennandi verkefni og það er kominn andi í samfélagið að taka vel á móti fólki og gera þetta með bros á vör og það ætlum við okkur að gera. Við ætlum að sýna góðum gestum Selfoss og nágrenni í sparifötunum.“ Reiðhjólið með í för – Þið hafið margt með ykkur í þessum efnum, góða aðstöðu og fleira. Ykkur er líklega ekkert að vanbúnaði að halda svona mót? „Það er alveg rétt. Það er full ástæða til að benda fólki á að það gæti verið valkostur að taka með sér reiðhjól á mótið. Það eru innan við tveir km á milli vallarsvæðanna og tjald- svæða og marflatt með malbikuðum göngu- stígum. Hvar eiga reiðhjól betur heima en einmitt við slíkar aðstæður?“ sagði Þórir Haraldsson, formaður unglingalandsmóts- nefndar, í samtali við Skinfaxa. Þórir Haraldsson kynnti Unglinga- landsmótið á héraðsþingi HSK.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.