Skinfaxi - 01.06.2013, Side 8
8 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á
Akureyri árið 1909 og það 27. verður
haldið í sumar á Selfossi. Síðasta
Landsmót var haldið árið 2009 á
Akureyri en þá voru liðin100 ár frá
því að þar var fyrst haldið Landsmót.
Landsmót hefur aðeins einu sinni áður
verið haldið á Selfossi en það var árið
1978. Landsmótin eru jafnan stærstu
og glæsilegustu íþróttamót sem hal-
din eru á landinu hverju sinni.
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi:
Metnaðarfull uppbygging á Selfossi
Landsmótið á Selfossi
Mikill undirbúningur hefur verið vegna
mótsins. Mikil og metnaðarfull uppbygging
íþróttamannvirkja hefur orðið á Selfossi og
það er óhætt að segja að sú aðstaða sem
keppendum verður boðið upp á á þessu móti
sé ein sú allra besta á landinu. Sveitarfélagið
Árborg hefur unnið ötullega að þessari upp-
byggingu og lagt sitt á vogarskálarnar til að
gera mótið sem allra glæsilegast.
Mótshaldari
Héraðssambandið Skarphéðinn, HSK, var
stofnað í Hjálmholti 14. maí 1910 en innan
þess voru þá 19 ungmennafélög með 810
félagsmönnum. HSK hélt fyrsta héraðsmót sitt
í Þjórsártúni 9. júlí 1910 og þar var m.a. keppt
um veglegan silfurskjöld, Skarphéðinsskjöld-
inn, sem sigurvegarinn í glímu hlaut og enn
er keppt um. Þetta var upphafið að farsælu
mótahaldi HSK sem hefur staðið óslitið síðan.
Í dag eru haldin um 60 héraðsmót í 17 mis-
munandi íþróttagreinum og þá hefur HSK
tekið að sér framkvæmd ýmissa stórmóta,
nú síðast 15. Unglingalandsmót UMFÍ sem
haldið var á Selfossi um síðustu verslunar-
mannahelgi.
Landsmót ungmennafélaganna hafa sex
sinnum verið haldin á sambandssvæðinu, í
Haukadal 1940, í Hveragerði 1949, á Þingvöll-
um 1957, á Laugarvatni 1965, á Selfossi 1978
og á Laugarvatni 1994. Þá hafa tvö Unglinga-
landsmót UMFÍ verið haldin á vegum HSK, í
Þorlákshöfn 2008 og á Selfossi 2012.
Undir merkjum HSK og félaganna hafa
þúsundir sunnlenskra ungmennafélaga
stundað íþróttir, skógrækt, leiklist og sam-
komuhald svo að eitthvað sé nefnt. Óhætt er
að telja HSK með sína fjölbreyttu æskulýðs-
og íþróttastarfsemi einn af hornsteinum
mannlífs á Suðurlandi. Í dag eru 59 aðildar-
félög innan HSK. Um er að ræða 24 ung-
mennafélög, 13 golfklúbba, 7 hestamanna-
félög, 6 íþróttafélög, 3 knattspyrnufélög,
2 akstursíþróttafélög, 2 skotíþróttafélög,
1 karatefélag og 1 körfuknattleiksfélag.
Félagsmenn eru samtals 17 þúsund og
íþróttaiðkendur rúmlega 15 þúsund. Flestir
iðkendur eru í golfi og þar á eftir koma hesta-
íþróttir og knattspyrna. Hjá sambandinu eru
27 nefndir, stjórnir og ráð starfandi sem
m.a. vinna að íþróttum, félagsmálum og
útbreiðslustörfum.
Keppendur
Á Landsmót UMFÍ koma saman félagar úr
ungmennafélags- og íþróttahreyfingunni og
reyna með sér í fjölbreyttum íþróttagreinum
sem og svokölluðum starfsíþróttum. Aðeins
er keppt í einum aldursflokki á mótinu og
þar takast þeir bestu á í mörgum greinum.
Hver keppnisaðili hefur heimild til að senda
ákveðinn fjölda keppnisliða og einstaklinga
til keppni samkvæmt reglugerð.
Á síðasta Landsmóti, sem var haldið 2009,
voru keppendur um 2.000 talsins. Búist er
við álíka þátttöku á mótinu á Selfossi.
Keppnisgreinar
Alls verða keppnisgreinar á Landsmótinu
á Selfossi 25 talsins. Keppt er í einum aldurs-
flokki en bæði í karla- og kvennagreinum.
Keppnisgreinarnar eru mjög fjölbreyttar og
keppnin verður án efa mjög skemmtileg í
alla staði. Keppnisgreinarnar eru:
Badminton, blak, boccia, borðtennis, bridds,
dans, fimleikar, frjálsíþróttir, glíma, golf, götu-
hlaup 10 km, handknattleikur, hestaíþróttir,
íþróttir fatlaðra, júdó, knattspyrna, kraftlyft-
ingar, körfuknattleikur, mótocross, pútt, skák,
skotfimi, starfsíþróttir, sund og taekwondo.
Það héraðssamband eða íþróttabandalag
sem fær samanlagðan mestan stigafjölda er
sigurvegari mótsins og hlýtur nafnbótina
landsmótsmeistari.
Keppnissvæði
Öll keppnissvæðin eru á Selfossi eða í
allra næsta nágrenni. Aðalkeppnissvæðið er
í hjarta Selfoss en þar eru frjálsíþróttavöllur,
knattspyrnuvellir, íþróttahús og sundlaug
ásamt skólahúsnæði.
Dagskrá mótsins
Landsmótið hefst fimmtudaginn 4. júlí n.k.
með keppni í nokkrum íþróttagreinum.
Íþróttakeppnin, sem er uppistaða mótsins,
heldur síðan áfram á föstudegi en aðalþungi
keppninnar verður á laugardag og sunnudag.
Mótssetning verður á Selfossvelli, föstudags-
kvöldið 5. júlí og hefst kl. 21. Mótsslit verða
upp úr miðjum sunnudegi. Ýmsir viðburðir
fyrir utan sjálfa íþróttakeppnina verða á
Selfossi þessa daga, jafnt fyrir börn sem
fullorðna.
Gisting keppenda og gesta
Búið er að útbúa 12 hektara tjaldsvæði í
útjaðri Selfoss. Tjaldsvæðið er mjög vel úr
garði gert, með rennandi vatni og snyrting-
um og eins hafa allir gestir aðgang að raf-
magni. Öllum keppnisliðum er jafnframt
boðið upp á gistingu í skólastofum sem eru
við aðalkeppnissvæðið.
Sjálfboðaliðar
Nánast allur undirbúningur við mótið og
framkvæmd þess er unninn af sjálfboðalið-
um. Áætlaður fjöldi þeirra er um 600 talsins.