Skinfaxi - 01.06.2013, Side 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„Mótið, sem fram undan er, leggst ákaflega
vel í okkur en við búum að góðri reynslu frá
Unglingalandsmótinu í fyrrasumar. Við búum
ennfremur að frábærum aðstæðum og öll
keppnisaðstaða er tilbúin. Við getum sagt að
fyrsta flokks aðstæður séu á öllum sviðum en
sáralítið þarf að gera hvað framkvæmdir
áhrærir, ekki nema að stilla upp tækjum. Við
höfum einnig yfir að ráða reynslumiklum sjálf-
boðaliðum, starfsfólki og ekki síst góðum
stuðningi sveitarfélagsins og samfélagsins
alls. Við erum því mjög bjartsýn á gott mót,“
sagði Þórir Haraldsson, formaður landsmóts-
nefndar, í spjalli við Skinfaxa.
Stórt og spennandi
verkefni fram undan
Þórir sagði mjög gaman að standa í þess-
um undirbúningi. „Sú vinna sem við lögðum
á okkur í fyrra í að ná samfélaginu með okkur
á öllum sviðum er að skila sér margfalt til
baka.“ Hann sagði þau njóta þess í undirbún-
ingnum nú hvað vel gekk í fyrra í allri fram-
kvæmd fyrir Unglingalandsmótið.
„Við göngum til þessa verks mjög bjartsýn
og með góða reynslu sem er ómetanlegt.
Stóra Landsmótið er flaggskipið en auðvitað
er Unglingalandsmótið sterkur og skemmti-
legur viðburður. Oft hefur verið talað um
Landsmótin sem fjöregg hreyfingarinnar og
oft eru þau nefnd litlu íslensku Ólympíuleik-
arnir. Það er því óhætt að segja að hreyfingin
sé með stórt og spennandi verkefni fram
undan. Við erum stolt yfir að koma að fram-
kvæmd mótsins og ætlum að framkvæma
það með sóma fyrir hreyfinguna og lands-
menn alla,“ sagði Þórir Haraldsson.
Samfélagsviðburður
með samheldni héraða
og íþróttafólks
– Landsmót UMFÍ hafa alltaf verið stór
viðburður og verða það líklega framvegis?
„Það er ekki að ósekju sem þessi mót hafa
verið nefnd litlu Ólympíuleikarnir og fjöregg
hreyfingarinnar. Mótin hafa sýnt mátt hreyf-
ingarinnar og starfs hennar um allt land. Það
hefur því alltaf verið spennandi fyrir þátttak-
endur að koma á Landsmót til að standa sig,
sýna sína bestu framkomu og ná sem bestum
árangri. Til viðbótar er að þetta hefur verið
einstakur samfélagsviðburður með sam-
heldni héraða og íþróttafólks alls staðar að
af landinu. Gildi Landsmótanna er geysilega
mikið í gegnum tíðina. Auðvitað er það undir
hreyfingunni sjálfri komið hvernig hún vill
hafa Landsmótið til framtíðar litið en núna,
með þátttöku íþróttabandalaganna, þegar
við sjáum besta íþróttafólkið okkar taka þátt,
eiga Landsmótin bjarta framtíð fyrir sér,“
sagði Þórir.
Búum vel að aðstöð-
unni á Selfossi
– Hér er risin frábær aðstaða til íþrótta-
iðkana og mótahalds.
„Þetta er alveg hárrétt. Aðstaðan er einstök
og mikið af íþróttamannvirkjum, sem eru stað-
sett saman, sem skiptir geysilega miklu máli.
Það hefur verið baráttumál félagsins á Sel-
fossi og heimamanna í tugi ára að taka þetta
svæði frá fyrir íþróttamannvirki. Það hefur
skilað sér og er skýr birtingarmynd á mjög
öflugu og styrku starfi á Selfossi og Suður-
landi öllu. Það eru ekki mörg samfélög af
þessari stærð sem bjóða upp á jafn fjölbreytt
starf sem jafn mikill hluti barna og unglinga
tekur þátt í. Við búum ofsalega vel að þessari
aðstöðu sem styrkir um leið allt samfélagið.“
Úrslitaleikir fara fram á
laugardag og sunnudag
Þórir sagðist vera fullur tilhlökkunar. „Skrán-
ingar hafa verið að koma inn frá öllum sam-
bandsaðilum og við höfum heyrt um vax-
andi áhuga á þátttöku eftir sem nær hefur
dregið. Sjálfboðaliðar hafa jafnt og þétt verið
að tilkynna sig, við sjáum grasið grænka og
erum öll mjög spennt og hlökkum til að taka
á móti fólki með bros á vör. Ég hef keppt á
þremur Landsmótum í gegnum tíðina sem
verður mér alltaf minnisstætt. Ég hef aftur á
móti verið á öllum Landsmótum frá 1978 og
hef þá haft hlutverk sem keppandi, stjórn-
andi, stjórnarmaður í UMFÍ eða sjálfboðaliði
við einhverja þætti mótsins. Það er einstakt
tækifæri að fá að taka þátt í Landsmóti og
upplifa þá stemningu sem þar myndast.
Með mótinu á Selfossi núna erum við að
færa til áherslur í mótshaldinu þannig að
úrslitaleikir fari fremur fram á laugardeginum
og sunnudeginum. Þetta gerum við bæði
fyrir keppendur og áhorfendur þannig að
hápunktur mótsins er á þessum dögum með
úrslitum í sem flestum greinum. Við flytjum
lokaathöfn aftar á sunnudaginn. Það er til
að geta komið útslitaviðburðum betur fyrir
á sunnudeginum til að gefa fólki kost á því
að njóta hápunkta mótsins,“ sagði Þórir
Haraldsson, formaður framkvæmdanefndar
27. Landsmóts UMFÍ 2013.
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi:
VIÐ GÖNGUM BJARTSÝN TIL ÞESSA
VERKS OG MEÐ GÓÐA REYNSLU
Þórir Haraldsson, formaður framkvæmdanefndar Landsmótsins á Selfossi:
„Stóra Landsmótið er
flaggskipið en auðvitað er
Unglingalandsmótið sterkur
og skemmtilegur viðburður.“