Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.2013, Side 15

Skinfaxi - 01.06.2013, Side 15
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15 Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona úr Ungmennafélagi Akureyrar, hefur náð frábærum árangri í sumar. Hafdís setti nýtt Íslandsmet í 300 m hlaupi á júní- móti á Akureyri þegar hún kom í mark á tímanum 38,59 sek. Gamla metið, 38,72 sek., átti Sunna Gestsdóttir frá árinu 2004. Á sama móti reyndi Hafdís við met í 60 m hlaupi og kom í mark á 7,67 sek. Vindur mældist rétt yfir viðmiðun- armörkum og var tími hennar því ekki viðurkenndur sem Íslandsmet. Metið, 7,80 sek., sem er í eigu Sunnu, stendur því enn um sinn. Hafdís bætti síðan Íslandsmetið í langstökki á móti á Akureyri undir lok maí, er hún stökk 6,36 m. Hafdís stökk 6,17 m í fyrsta stökki sínu, 6,01 m í annarri tilraun og 6,31 m í þriðja stökkinu, sem er einum sm lengra en metið. Hún stökk síðan 6,03 m í fimmtu tilraun eftir að hafa gert fjórðu tilraun ógilda en lauk síðan keppni með 6,36 m stökki sem er nýtt met. Fyrra metið, 6,30 m, átti Sunna Gestsdóttir sem keppti þá undir merkjum UMSS, sett fyrir 10 árum á Smáþjóðaleikunum á Möltu. Stefnir á að setja met „Ég ætla að taka þátt í Landsmóti UMFÍ á Selfossi og hlakka til. Þetta verður fjórða stóra landsmótið sem ég tek þátt í en þar fyrir utan hef ég keppt á þremur Unglingalandsmótum. Landsmótin eru sérstök mót í mínum huga og sumir hafa litið á þau sem eins konar Ólympíuleika Íslendinga. Maður stefnir alltaf að því að slá met og það mun ég einnig gera á Landsmótinu á Selfossi,“ sagði Hafdís Sigurðardóttir í spjalli við Skinfaxa. Margt af okkar besta fólki verður á Selfossi Hafdís segir að miklar æfingar síðustu misseri séu að skila sér og hún hafi sjaldan verið í eins góðu formi. Hún segist vera að uppskera núna og linnulausar æfingar séu svo sannarlega að skila árangri. 27. Landsmót UMFÍ á Selfossi: Á leiðinni á sitt fjórða Landsmót Hafdís Sigurðardóttir, UFA, ein besta frjálsíþróttakona landsins: „Landsmót UMFÍ eru sérstök mót í mínum huga og sumir hafa litið á þau sem eins konar Ólympíuleika Íslendinga.“ „Ég er að uppskera laun erfiðisins. Bætt aðstaða til æfinga og keppni fyrir norðan hefur líka haft mikið að segja. Við notum völlinn mikið á Akureyri og fram á haustið þangað til hann fer á kaf í snjó. Í sumar ein- beiti ég mér alfarið að íþróttinni og það er greinilega að skila sér,“ sagði Hafdís. Hafdís á von á því að margt af okkar besta fólki í frjálsum íþróttum stefni að því að taka þátt í Landsmótinu á Selfossi. Sjálf á hún von á því að keppa í 4–5 greinum auk boðhlaupa. „Við erum mjög bjartsýn á gott Landsmót. Undirbúningur hefur staðið yfir í nokkurn tíma og verið í mörg horn að líta í þeim efn- um. Það er ekki bara nóg að huga að sjálfri íþróttakeppninni, það þarf einnig að hafa afþreyingu fyrir þá sem sækja Selfoss heim þessa mótshelgi. Það er mikill og góður skóli að standa að undirbúningi og fram- kvæmd tveggja stórra móta tvö ár í röð. Þetta er heilmikil reynsla og það reynir auð- vitað á mannskapinn. Það gekk vel á Ungl- ingalandsmótinu í fyrra og við búum að því fyrir Landsmótið. Við vorum með frá- bæran mannskap að störfum í fyrra, sér- greinastjóra og sjálfboðaliða, sem eru lang- flestir að störfum með okkur fyrir Lands- mótið. Nýir hafa líka bæst við sem eru líka mjög öflugir. Samskiptin við sveitarfélagið hafa verið einstök og það auðveldar vinn- una á allan hátt. Það er svo mikil jákvæðni Einstök samskipti við sveitarfélagið Guðríður Aadnegard, formaður HSK: á öllum sviðum enda er bærinn mikill íþróttabær í huga bæjaryfirvalda. Gríðar- leg uppbygging hefur átt sér stað og öll aðstaða gerist ekki betri,“ sagði Guðríður Aadnegard, formaður HSK, í samtali við Skinfaxa. Guðríður sagði mikla tilhlökkun innan raða HSK fyrir mótinu og afskaplega gaman að takast á við verkefnið. Það yrði tekið á móti öllum með bros á vör. Það verður létt yfir þessu móti og notalegur andi ræður ríkjum. „Við ætlum að njóta þessara daga og bindum vonir við að margir heimsæki okk- ur. Það eru bara skemmtilegir dagar sem bíða okkar. Forystusveit og fólk í HSK hefur ávallt nálgast verkefni sín með það að leiðarljósi að við erum að veita samfélags- þjónustu. Í gegnum tíðina hefur verið hér að störfum öflugt fólk, rödd þess hefur hljómað vítt og breitt um landið og eftir því hefur verið tekið. Þess vegna er því treyst til verkefna á borð við þau sem við höfum haldið síðustu misseri. Sagan sýn- ir líka að okkur er treystandi að halda mót sem þessi,“ sagði Guðríður Aadnegard, formaður HSK, í spjallinu við Skinfaxa.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.