Skinfaxi - 01.06.2013, Page 17
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 17
Lifandi samfélag
www.arborg.isí alfaraleiðSelfossEyrarbakkiStokkseyri
D
A
V
ID
T
H
O
R
.O
R
G
Það er okkur hjá Sveitarfélaginu Árborg sönn
ánægja að fá keppendur og gesti á Selfoss á
Landsmót ungmennafélaganna 4.–7. júlí nk.
Uppbygging íþróttamannvirkja í sveitar-
félaginu hefur verið mikil síðustu árin og má
segja að prófsteinn þeirrar uppbyggingar hafi
verið síðastliðið sumar þegar Unglingalands-
mótið var haldið hér og var af flestum talið
hafa heppnast mjög vel.
Eins og áður er getið er íþróttaaðstaðan
eins og best verður á kosið og nú nýlega tók-
um við í gagnið 6 nýja búningsklefa á Selfoss-
velli. Í Sveitarfélaginu Árborg, Selfossi, Stokks-
eyri, Eyrarbakka og í Sandvíkurhreppi eru
fjölbreyttir gististaðir í boði, frábær tjaldsvæði
og mikið úrval veitingastaða og verslana í
öllum gæða- og stærðarflokkum.
Íþróttaáhugi í sveitarfélaginu er mikill, en í
dag eru hér stundaðar um 16 íþróttagreinar
og gerir sveitarfélagið sitt besta til að skapa
sem flestum æfinga- og keppnisaðstöðu.
Hefur miklu fé verið varið til þeirrar uppbygg-
ingar síðastliðin ár og er sterk samstaða hjá
okkur að gera stórviðburð eins og Landsmót-
ið sem best úr garði. Loforðið með góða
veðrið er kannski ótryggasta loforðið en við
gerum okkar besta enda Veðurguðirnir æt-
taðir frá Selfossi. Við erum einnig svo heppin
að íþróttamannvirkin eru vel staðsett og
vegalengdir stuttar og því auðvelt að fara
allra sinna ferða gangandi. Það er einnig
mikill metnaður hjá okkur í menningu og
listum meðfram uppbyggingu íþróttaman-
nvirkja og eigum við margan augasteininn á
þeim vettvangi.
Það er því með mikilli tilhlökkun sem við
bjóðum ykkur velkomin til okkar og hlökk-
um til að sjá ykkur á Selfossi 4.-7. júlí nk.
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi:
BJÓÐUM YKKUR VELKOMIN
TIL SELFOSS
Kjartan Björnsson, formaður íþrótta- og menningarnefndar Sveitarfélagsins Árborgar: