Skinfaxi - 01.06.2013, Blaðsíða 23
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23
Höfn í Hornafirði er líflegt, 1700 íbúa
sjávarpláss á suðausturströnd landsins.
Sterk staða sjávarútgerðar eftir miðja 20.
öld treysti grundvöll atvinnulífsins á Höfn,
en mestur uppgangur varð á Höfn á 8. ára-
tugnum þegar íbúum þar fjölgaði um 500
manns. Það má rekja til bættra samgangna
með tengingu hringvegarins og eflingu
sjávarútvegsins á svæðinu. Hann efldist til
muna á 7. áratugnum þegar humarveiðar
hófust af miklum krafti og hefur Höfn verið
meðal helstu útgerðarstaða landsins síðan.
Höfnin í bænum er talin ein sú besta
á Íslandi þegar inn í hana er komið, en að
henni er erfið innsigling. Fara þarf inn um
Hornafjarðarósinn þar sem eru þröngir og
straumharðir álar og úti fyrir innsiglingunni
eru grynningar sem verða ófærar í vondum
veðrum. Innsiglingin hefur þó verið bætt á
undanförnum árum með byggingu brim-
varnargarða. Skemmtilegt er að fylgjast
með bátum fara í gegn um ósinn frá Ós-
landi sem er friðlýst svæði innan bæjarins.
Byggðarlagið er ungt, en fyrstu íbú-
arnir settust þar að árið 1897. Það voru
kaupmannshjónin Ottó og Valgerður
Tulinius en þau fluttust þangað með versl-
un sína úr Papósi í Lóni. Þar með varð Höfn
verslunarstaður og jafnframt eini þéttbýlis-
staður sýslunnar. Bærinn er miðstöð versl-
unar í Sveitarfélaginu Hornafirði og þar er
öll almenn þjónusta í boði. Vegna þess hve
langt er til næstu þéttbýliskjarna er þjón-
ustustig bæjarins hátt miðað við stærð
hans. Þar eru til að mynda lággjaldaversl-
un, sundlaug, framhaldsskóli með heima-
vist, háskólasetur o.fl.
Nýheimar voru vígðir haustið 2002 en
þar er lögð áhersla á að styrkja atvinnulíf
bæjarins með þróunarstarfi og aukinni
menntun. Í Nýheimum eru til húsa Fram-
haldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, bóka-
safn, háskólasetur, frumkvöðlasetur og
upplýsingamiðstöð ferðamanna. Menn-
ingarmiðstöð Hornafjarðar hefur einnig
aðsetur í Nýheimum á Höfn og hefur hún
fjölþættu hlutverki að gegna. Stofnunin
starfrækir m.a. listasafn, jöklasýningu, nátt-
úrugripasafn, bókasafn, skjalasafn og
byggðasafn bæjarins.
Höfn er í Ríki Vatnajökuls og skiptir
það miklu máli fyrir atvinnu- og mannlíf
á svæðinu. Síðustu ár hefur þáttur ferða-
þjónustu vaxið á Höfn og er þar margvís-
leg afþreying í boði fyrir ferðamenn. Allir
ættu að finna gistingu við sitt hæfi, en í
bænum eru tjaldsvæði, farfuglaheimili,
gistiheimili og hótel. Í næsta nágrenni
bjóða fjölmörg býli upp á bændagistingu.
Höfn í Hornafirði
Í sveitarfélaginu eru fjölmargar perlur sem
hafa aðdráttarafl fyrir ferðamenn og
vísindamenn og þá hefur kvikmyndataka
verið vinsæl í sýslunni vegna fjölbreytts
jökullandslags. Samgöngur til og frá Höfn
eru góðar og þá sérstaklega ef komið er
úr suðri. Malbikaður vegur er alla leið á
milli Hafnar og Reykjavíkur og er hann fær
flesta daga ársins. Flug- og rútuáætlun er
allt árið milli Hafnar og Reykjavíkur og
þangað er flogið tvisvar á dag yfir sumar-
tímann.