Skinfaxi - 01.06.2013, Blaðsíða 26
26 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Náttúra og saga
Austur-Skaftafellssýsla er skýrlega
afmarkað landsvæði frá náttúrunnar hendi.
Sýslumörkin liggja annars vegar við fall-
vötn vestan til á Skeiðarársandi, hins vegar
við Eystrahorn, tígulegt fjall við austanvert
Lón. Fjallasýn er afar tilkomumikil hvar sem
er í sýslunni. Hvassa tinda ber við jökulinn,
þeir speglast í lónum og fjörðum og ljá
þannig sveitarfélaginu nafnið sem svæðið
gengur undir í daglegu tali – Hornafjörður.
Segja má að í sýslunni séu sex byggðar-
lög. Frá austri talið eru það Lón sem að
sunnan afmarkast af Vestrahorni, Nes sem
eru sveitin og þéttbýliskjarninn milli Vestra-
horns og Hornafjarðarfljóta, Höfn sem er
þéttbýliskjarninn á nesi milli Hornafjarðar
og Skarðsfjarðar, Mýrar sem eru sveitin milli
Hornafjarðarfljóta og jökulárinnar Kolgrímu,
Suðursveit sem er sveitin frá Kolgrímu vest-
ur á Breiðamerkursand og hin fornfrægu
Öræfi sem eru sveitin við rætur Öræfajökuls.
Höfn í Hornafirði er ungt byggðarlag.
Fyrstu íbúarnir, kaupmannshjónin Ottó og
Valgerður Tulinius, settust að á Höfn árið
1897 og byggðu þar verslunar- og íbúðar-
hús sem enn standa. Byggðin óx hægt
framan af og allt fram á miðja þessa öld var
atvinnulíf heldur fábreytt á Höfn. Höfðu
flest heimili lífsbjörg af smábúskap og veið-
um úr firðinum. Eftir 1950 lifnaði heldur
yfir athafnalífi á staðnum og síðan hefur
Höfn vaxið óðfluga úr litlu sjávarþorpi í
myndarlegan bæ með nútíma fyrirtækjum,
verslunum, heilsugæslu og fjölbreyttri
þjónustu.
Atvinnuvegir
Á Hornafirði eru starfrækt öflug sjávar-
útvegsfyrirtæki sem skapa undirstöðu
þeirrar velmegunar sem almennt ríkir á
staðnum. Nýtísku fiskiskip færa verðmæt-
an afla að landi allan ársins hring og er Höfn
meðal annars þekkt sem verstöð fyrir humar-
vertíð að vori og síldarvertíð að hausti.
Fullkomin fiskiðjuver vinna aflann og selja
innanlands og utan og hefur hróður horn-
firskra sjávarafurða borist víða. Fiskiskipa-
höfnin iðar af lífi frá morgni til kvölds og
gestir verða gagnteknir af þeirri stemn-
ingu sem þar ríkir.
Í Sveitarfélaginu Hornafirði er stundað-
ur öflugur landbúnaður og eru aðalfram-
leiðsluvörur bænda mjólk og kindakjöt
auk nauta- og svínakjöts. Afurðastöð
þeirra, sláturhúsið, er fullkomið og hrein-
legt og hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenn-
ingar.
Ferðaþjónusta
Á Hornafirði og í nágrenni er rekin
öflug þjónusta við ferðamenn. Gisting
býðst á hótelum, sveitabæjum og á vel
búnum tjaldsvæðum, matreiðslumenn
bera fram rétti úr fersku og fjölbreyttu hrá-
efni og nálægð stærsta jökuls Evrópu,
Vatnajökuls, býður upp á óþrjótandi mögu-
WWW. KAFFIHORN.IS