Skinfaxi - 01.06.2013, Qupperneq 27
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27
leika til útivistar og afþreyingar auk þess
sem náttúrufar Austur-Skaftafellssýslu er
að öðru leyti víðfrægt fyrir ótrúlega fjöl-
breytni. Meðal náttúruperla í héraðinu er
þjóðgarðurinn í Skaftafelli, friðlýst svæði í
Lónsöræfum og hið sérstæða Jökulsárlón.
Veðurfar
Veðurfarslega hefur Suðausturland
talsverða sérstöðu m.v. aðra landshluta.
Þar er hlýrra og langtum meiri úrkoma að
meðaltali en víðast hvar í öðrum lands-
hlutum enda í nágrenni við eitt mesta úr-
komusvæði landsins sem myndað hefur
Vatnajökul. Þrátt fyrir það er Hornafjörður
líklega snjóléttasta svæði landsins að Vest-
mannaeyjum undanskildum og munar
Í ÞÍNUM
SPORUM
Stöndum saman
gegn einelti
www.gegneinelti.is
miklu á snjóalögum í Skaftafellssýslum og
norðanverðum Austfjörðum. Fjöldi daga,
þar sem er alskýjað, er svipaður á Horna-
firði og Reykjavík en Hornfirðingar hafa
vinninginn þegar heiðskírir dagar á ári eru
skoðaðir, 33 á móti 19 í Reykjavík. Ársmeðal-
hiti á Hornafirði er ívið hærri en í Reykjavík
og Akureyri.
Söfn, listir og menning
Huldusteinn – Steinasafn, Hafnarbraut
11. Opið kl. 14.00–21.00 alla daga, opnað
utan auglýsts opnunartíma ef óskað er.
Sími 478 2240, www.huldusteinn.is
Jöklasýning, Hafnarbraut 30. Jöklasýn-
ingin ÍS-land á Höfn er opin yfir sumar-
tímann en hægt er að opna fyrir hópa yfir
vetrartímann. Opið maí til september kl.
10.00–18.00. Utan þess tíma er opið eftir
umtali. Sími 478 2665, www.is-land.is
Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Öll
menningarstarfsemi sveitarfélagsins heyrir
undir Menningarmiðstöð Hornafjarðar og
fer starfsemin fram í húsum í eigu sveitar-
félagsins, s.s. Pakkhúsinu, Gömlubúð og
Nýheimum en einnig víðar; í félagsheimil-
um, kirkjum, veitingahúsum, vöruhúsinu
o.s.frv. Litlubrú 2, Nýheimum. Opið mánu-
daga – fimmtudaga kl.11.00–19.00 og
föstudaga kl. 11.00–17.00. Sími 470-8050,
www.hornafjordur.is/menningarmidstod.
Þórbergssetur á Hala í Suðursveit er
menningarsetur reist til minningar um
Þórberg Þórðarson rithöfund. Þar eru sýn-
ingar helgaðar sögu Suðursveitar og lífi
og verkum Þórbergs. Í Þórbergssetri er fjöl-
breytt menningarstarfsemi, safn, minja-
gripasala og veitingahús. Þórbergssetur
er opið 15. maí – 1. október kl. 9.00–21.00.
Vinsamlega hafið samband ef um sér-
stakar heimsóknir er að ræða. Sími
478-1078, www.thorbergssetur.is