Skinfaxi - 01.06.2013, Blaðsíða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Þróttmikið íþróttastarf
í Rangárþingi eystra
Íþróttafélagið Dímon – Sjö deildir starfandi
Íþróttafélagið Dímon, sem starfar
í Rangárþingi eystra, hefur um
árabil haldið úti þróttmiklu
íþróttastarfi og verið á meðal
öflugustu félaga innan Héraðs-
sambandsins Skarphéðins. Innan
félagsins starfa sjö deildir, en þær
eru blakdeild, borðtennisdeild,
fimleikadeild, frjálsíþróttadeild,
glímudeild og sunddeild. Auk
þess hafa félagar lagt stund á
handbolta, badminton, boccia,
körfubolta og á tímabili júdó.
Þá hefur félagið átt keppendur á
HSK-mótum í bridge og skák.
Félagið var stofnað 13. júní 1997 og er því
á sínu sextánda starfsári. Upphaf félagsins
má rekja til þess er ungmennafélögin Baldur
á Hvolsvelli, Dagsbrún í Austur-Landeyjum,
Njáll í Vestur-Landeyjum, Trausti, Vestur-Eyja-
fjöllum, og Þórsmörk í Fljótshlíð ákváðu á sam-
eiginlegum fundi að stofna félag sem héldi
utan um íþróttastarfið. Ákveðið var að félag-
ið skyldi heita Íþróttafélagið Dímon sem m.a.
vísar í fjöllin Stóra-Dímon og Litla-Dímon í
Rangárvallasýslu. Í ársskýrslu félagsins frá
1997 kemur fram að þá voru iðkendur 214,
en í dag eru þeir vel yfir 500. Núverandi for-
maður félagsins er Benóný Jónsson.
Blakdeild var stofnuð 27. september
1997. Starf blakdeildar er í dag tvíþætt, þ.e.
annars vegar barna- og unglingastarf og hins
vegar fullorðinsstarf. Í blaki hefur Dímon unnið
marga Íslandsmeistaratitla í barna- og ungl-
ingaflokkum. Tveir titlar unnust á þessu ári. Í
fullorðinsblakinu hefur Dímon átt bæði karla-
og kvennalið í gegnum tíðina sem tekið hafa
þátt í HSK-mótum. Einnig hefur kvennalið
félagsins keppt á Íslandsmótinu í blaki ásamt
því að taka þátt í öldungamóti Blaksambands-
ins undanfarin 13 ár, nú síðast á þessu ári með
sameiginlegu liði Dímonar og Heklu. Kepptu
þær í sjöttu deild kvenna þar sem þær urðu í
öðru sæti, en alls er keppt í 14 deildum. Í vetur
hafa um 50 iðkendur æft blak hjá deildinni.
Borðtennisdeild var formlega stofn-
uð 4. febrúar 2004. Borðtennisiðkun hófst þó
á haustdögum 2001 og var æft tvisvar í viku
um veturinn. Smám saman fjölgaði iðkendum
og haustið 2002 var þátttakan orðin það mikil
á æfingum að skipta þurfti hópnum í aldurs-
flokka. Í mars 2003 var fjárfest í nýju borð-
tennisborði og í dag á félagið tíu borðtennis-
borð. Dímon hefur átt keppendur í borð-
tennis á HSK-móti síðan 1999 en þá keppti
einn keppandi. Árið 2000 tóku þrír kepp-
endur þátt og síðan hefur þeim fjölgað og
voru á mótinu síðasta haust 54 talsins í
öllum aldursflokkum.
Frá 2000 hefur Dímon átt fjölda HSK-
meistara í borðtennis í mörgum flokkum.
Fljótlega eftir stofnun deildarinnar fór Dímon
að taka þátt í mótum í Reykjavík og nágrenni,
hjá öðrum félögum og í framhaldi af því í
Íslandsmóti BTÍ í aldursflokkakeppnum og
í flokkakeppni þar sem keppt er í meistara-
flokki ásamt fyrsta og öðrum flokki karla og
kvenna ásamt tvenndar- og tvíliðaleikjum.
Einnig hefur Dímon tekið þátt í öldungamót-
um BTÍ. Eins og í blakinu hafa félagar í Dímon
unnið marga Íslandsmeistaratitla í borðtenn-
is, bæði í aldursflokkakeppnum og flokka-
keppnum. Má í því sambandi nefna þær Örnu
Þöll Bjarnadóttur, Birtu Rós Antonsdóttur og
Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur. Sú síðast-
talda náði að landa sínum 20. Íslandsmeist-
aratitli samanlagt í borðtennis á síðasta Ís-
landsmóti. Konurnar hafa verið mjög öflug-
ar á Hvolsvelli og hefur Dímon oft átt kepp-
endur í næstu sætum á eftir þeim stöllum
líka. Bergrún Linda hefur verið í unglinga-
landsliðshópi Íslands og tekið þátt í mótum
erlendis.
Nýjustu mótin eru Rangæingamótið í
borðtennis, sem Dímon stóð fyrir, ásamt
Grunnskólamóti Rangárvallasýslu, en það er
hluti af útbreiðslustarfi félagsins. Á undan-
förnum árum hefur Dímon staðið fyrir æfinga-
búðum í borðtennis þar sem félagið hefur
boðið öðrum félögum að koma með sína
iðkendur á Hvolsvöll og taka annaðhvort
einn dag eða eina helgi í að þjálfa og leika
sér með iðkendum okkar. Í þessar æfinga-
búðir hefur deildin fengið þekkta þjálfara í
greininni, þ. á m. landsliðsþjálfara og ungl-
Borðtenniskonur
úr Dímoni með
verðlaun á
Íslandsmóti.
Að ofan: Verðlauna-
hafar á Íslandsmóti.
Til hliðar: Brugðið á
leik á árshátíð borð-
tennisdeildar
Dímonar.