Skinfaxi - 01.06.2013, Side 36
36 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Göngum um Ísland
Fjölskyldan á fjallið
1997, færðust æfingar alfarið á Hvolsvöll. Þá
þegar höfðu iðkendur glímunnar í héraðinu
gert víðreist um landið og tekið þátt í hinum
ýmsu mótum, þ. á m. grunnskólamótum,
Íslandsmótum, sveitarglímu, bikarglímu og
HSK-mótum. Þetta starf Ólafs varð grunnur-
inn að því starfi sem unnið er í dag hjá glímu-
deild Dímonar.
Glímudeild Dímonar var formlega stofnuð
23. nóv. 1999. Frá því að deildin var stofnuð
hefur glíman eflst til muna í sveitarfélaginu
og nú er félagið í hópi þeirra félaga sem eru
með flesta iðkendur á sínum snærum. Áhug-
inn og metnaðurinn er mikill hjá iðkendum,
sem sést best á þeim fjölda titla sem krakk-
arnir hafa komið með heim af glímumótum.
Þekktasti glímumaður Dímonar er án efa
Elísabeth Patriarca, en hún varð m.a. marg-
faldur HSK-meistari og Íslandsmeistari ásamt
því að verða heimsmeistari í glímu.
Sunddeild. Í byrjun var sundíþróttin
starfrækt undir frjálsíþróttadeild Dímonar.
Á aðalfundi félagsins 2003 var sú ákvörðun
tekin að skipta upp frjálsum og sundi og
stofna sunddeild til að halda utan um sund-
íþróttina. Kosin var stjórn og tók hún til starfa
í mars 2004. Hefur deildin starfað síðan og
eru iðkendur nú 65 talsins. Dímon hefur tekið
þátt í HSK-mótum í sundi og náð góðum
árangri þar.
Fjöldi viðurkenninga. Íþrótta-
félagið Dímon og félagar innan þess hafa
unnið til fjölda viðurkenninga á undanförn-
um árum. Má í því sambandi nefna að félagið
náði þeim einstæða árangri að verða sigur-
vegari í heildarstigakeppni HSK 9 ár í röð,
árin 1998–2006. Félagið hefur einnig fengið
nokkrum sinnum unglingabikar HSK og for-
eldrastarfsbikar HSK. Þá voru hjónin Ólafur
Elí Magnússon og Ásta Laufey Sigurðardóttir
sæmd starfsmerki UMFÍ 2011 og silfurmerki
ÍSÍ 2013. Einnig má geta þess að Ólafur Elí var
sæmdur bronsmerki Glímusambands Íslands.
Íþróttafélaginu Dímoni var veitt viðurkenn-
ing vegna mikillar þátttöku í World Harmony
Run (Friðarhlaupinu). Sömuleiðis hlotnaðist
Ólafi Elí sá heiður að vera sæmdur World
Harmony Run Avard-medalíunni fyrir þátt-
töku og skipulagningu á hlaupinu hér heima
í héraði, en hann hefur verið duglegur að
skipuleggja og raða niður þeim hlaupurum
sem hafa viljað taka þátt í hlaupinu í Rangár-
þingi eystra á vegum Dímonar.
Samfélagsverkefni. Félagar í
Dímon hafa í maí ár hvert séð um ruslhreins-
un með fram þjóðveginum frá Eystri-Rangá
í vestri að Markarfljóti í austri. Er þetta gert
í samstarfi við Sveitarfélagið Rangárþing
eystra og er hluti af fjárhagslegum samningi
við sveitarfélagið. Einnig hefur félagið séð
um 17. júní-hátíðarhöldin á Hvolsvelli og
fengið greitt fyrir það í formi styrks.
Örn Guðnason, Benoní Jónsson og Ásta
Laufey Sigurðardóttir tóku saman.
Efri mynd: Þrír hressir sundstrákar.
Neðri mynd: Frá sundmóti í sundlauginni á
Hvolsvelli.
Þjálfarar fimleikadeildar Dímonar með nýtt
trampólín.
Efri mynd: Frá borðtennismóti á Hvolsvelli.
Neðri mynd: Hjónin Ólafur Elí og Ásta Laufey,
ásamt stjórnarmönnum UMFÍ, en þau fengu
starfsmerki UMFÍ 2011.
Íþróttafélagið Dímon náði þeim
einstæða árangri að sigra í
heildarstigakeppni HSK 9 ár í röð,
árin 1998–2006.