Skinfaxi - 01.06.2013, Side 41
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 41
Auka-aðalfundur Ungmennafélagsins
Þróttar í Vogum var haldinn í félagsmið-
stöðinni í Vogunum 8. maí sl. Á fundinum
var aðeins eitt mál á dagskrá, ársreikning-
urinn. Þar sem hann var ekki samþykktur
á aðalfundinum sem haldinn var 18. apríl
en þar var skýrsla stjórnar og ársreikning-
ar lagðir fram sem og kosið í nýja stjórn.
Nýr formaður var kjörinn, Svava Arnardótt-
ir, en hún var stjórnarmeðlimur í fyrri
stjórn. Miklar breytingar urðu á aðalstjórn
félagsins. Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, var gestur á fundin-
um. Fundurinn var ágætlega sóttur og
voru umræður málefnalegar.
Mikið og gott barna- og unglingastarf
er hjá félaginu þar sem markmiðið er að
hafa gaman saman ásamt því að stunda
heilbrigt líferni. Metnaðarfullt starf er unnið
í öllum deildum og fjöldi barna og ungl-
inga leggur stund á íþróttir, eina eða fleiri
greinar. Að hvetja börn og unglinga til að
stunda íþróttir og hlúa að þeim svo að
þeim sé það mögulegt er ekki bara ein-
hver besta uppeldisaðferð sem til er held-
ur hefur það einnig mikið forvarnagildi.
Hjá félaginu voru þrír viðburðir sem stóðu
sérstaklega upp úr á árinu 2012. Það voru
80 ára afmælishátíðin, vígsla á nýjum og
glæsilegum knattspyrnuvöllum og haust-
mót JSÍ sem haldið var í október síðast
liðnum.
Aðalfundur Umf. Þróttar í Vogum:
Metnaðarfullt starf er unnið í öllum deildum
Svava Arnardóttir, nýkjörin formaður
Ungmennafélagsins Þróttar.
34. héraðsþing Héraðssambandsins
Hrafna-Flóka, HHF, var haldið í Skrímsla-
setrinu á Bíldudal 15. apríl sl. Þingið var
starfsamt og mæting góð. Ýmis mál voru
tekin fyrir og lög sambandsins uppfærð.
Mótaskrá sumarsins var samþykkt auk
þess sem starf komandi árs var rætt. Mikill
uppgangur hefur verið innan HHF sein-
ustu ár og framtíðin er björt.
Engar breytingar urðu á stjórn en hana
skipa Lilja Sigurðardóttir, formaður, Sædís
Eiríksdóttir, meðstjórnandi, og Birna Frið-
björt Hannesdóttir, meðstjórnandi. Í vara-
stjórn sitja Guðný Sigurðardóttir, Kristrún
Héraðsþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka:
Mikill uppgangur hefur átt sér stað
A. Guðjónsdóttir og Heiðar I.
Jóhannsson.
Íþróttamenn, sem þóttu hafa
skarað fram úr á árinu 2012, fengu
viðurkenningar í sínum flokkum.
Körfuknattleiksmaður HHF var Edda
Sól Ólafsdóttur, Íþróttafélaginu
Herði, frjálsíþróttamaður HHF var
Saga Ólafsdóttir, Íþróttafélaginu
Herði, og knattspyrnumaður HHF
var Tómas Erich Steinarsson, Ung-
mennafélagi Tálknafjarðar. Tómas
Erich var einnig valinn íþrótta-
maður HHF árið 2012.
72. héraðsþing Ungmennasambands
Vestur-Húnvetninga, USVH, var haldið í
félagsheimilinu á Hvammstanga 20. mars
sl. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, ávarpaði þingið og fór yfir það helsta
sem er að gerast í ungmennafélagshreyf-
ingunni. Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, sat einnig héraðs-
þingið.
Við þetta tækifæri sæmdi Helga Guðrún
Elínu Jónu Rósinberg starfsmerki UMFÍ
fyrir vel unnin störf innan ungmennasam-
bandsins en hún hafði sinnt starfi gjald-
kera í 12 ár með miklum sóma.
Pétur Þröstur Baldursson lét af varafor-
mennsku og við starfi hans tók Reimar
Ársþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga:
Lögum USVH komið í nýjan búning
Marteinsson. Pétur hafði gegnt varafor-
mennsku í 14 ár. Vigdís Gunnarsdóttir kom
ný inn í stjórnina. Í varastjórn voru kjörin
Halldór Sigfússon, Hörður Gylfason og
Anna María Elíasdóttir. Þá ákvað Anna
María Elíasdóttir að láta af störfum sem
framkvæmdastjóri en því starfi hafði hún
gegnt í sex ár. Nýr framkvæmdastjóri
USVH er Þorsteinn Guðmundsson sem
áður sat í varastjórn.
Þingið var starfsamt og var nokkrum
tillögum beint til stjórnar USVH. Að auki
komu þingfulltrúar með ábendingar til
stjórnar. Meðal þess sem ákveðið var er að
fara í endurskoðun á lögum sambandsins
og koma þeim í nýjan búning.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, ásamt Elínu Jónu Rósinberg sem
hlaut starfsmerki UMFÍ á héraðsþingi USVH.
Frá héraðsþingi Hrafna-Flóka
sem haldið var á Bíldudal.