Skinfaxi - 01.06.2013, Side 50
50 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Hornafjörður er blómstrandi 2200 manna
samfélag. Höfn, stærsti þéttbýlisstaðurinn, er
öflugur útgerðarbær og þekktur fyrir humarinn.
Hornafjörður er eitt landmesta sveitarfélag landsins
með mörgum náttúruperlum en skriðjöklar eru áber-
andi og fegurð þeirra mikil í kvöldroðanum. Jökulsár-
lón er eitt helsta kennileiti sveitarfélagsins ásamt
Skaftafelli. Auk stórkostlegrar náttúru og útsýnis,
sem á sér vart hliðstæðu, er að finna fjölbreytta
afþreyingu, jeppaferðir, sleðaferðir, fjórhjólaferðir,
hestaferðir, gönguferðir á jökul, ísklifur, útsýnisflug
og siglingu í Hornafirði og á Jökulsárlóni.
Vatnajökulsþjóðgarður, stærsti þjóðgarður Evrópu,
teygir sig yfir stóran hluta af sveitarfélaginu.
Í sveitarfélaginu er öll almenn þjónusta og stofnanir
sem sinna menntun, menningu og velferðarþjónustu
fyrir íbúa. Fjölbreytt íþróttastarf er í sveitarfélaginu, ný
almenningssundlaug, íþróttahús, líkamsræktarstöð,
knatthús auk aðstöðu fyrir almenningsíþróttir og
hreyfingu fyrir alla aldurshópa. Á undanförnum árum
hefur verið lögð sérstök áhersla á nýsköpun og atvinnu-
þróun innan veggja þekkingarsetursins Nýheima þar
sem fjölmargar stofnanir vinna saman að auknum
lífsgæðum fyrir íbúa sveitarfélagsins.