Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.2014, Page 4

Skinfaxi - 01.03.2014, Page 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands S tarfsfólk sambandsaðila UMFÍ átti vinnufund með starfsfólki UMFÍ í þjónustumiðstöð félagsins í Reykja- vík 7. febrúar sl. Í upphafi fundar- ins fóru landsfulltrúar UMFÍ yfir verkefni hreyfingarinnar. Að því loknu fór fram hópavinna og voru niðurstöður hennar ræddar fyrir hádegi. Eftir hádegi fór fram kynning frá Evrópu unga fólksins, um möguleika og tækifæri sem þar eru í boði, sem Helga Dagný Árnadóttir hafði umsjón með. Jón Páll Hreinsson, formaður HSV, hélt kynningu á íþróttaskóla héraðssambandsins sem hefur gengið einstaklega vel. Síðan var Pálmi Blængsson, framkvæmdastjóri UMSB, með kynningu á samstarfinu við Vinnufundur starfsfólks sambandsaðila og starfsfólks UMFÍ Frá vinstri: Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ, Halldór Lárusson, Umf. Kjalnesinga, Einar Haraldsson, Keflavík, og Elín Sigurborg Harðardóttir, HSÞ. Frá vinstri: Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ, Pétur Markan, HSV, Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi UMFÍ, og Birgir Örn Sigurðsson, USVS. sveitarfélagið. Fundinum lauk síðan með opnum umræðum og samantekt. Það var mál manna að vel hefði tekist til og var ákveðið að halda slíkan fund aftur. einstakling og eru allar ferðir, uppihald og ráðstefnugögn innifalin. Endanleg dagskrá og frekari upplýsingar varðandi skráningu hafa verið sendar út en einnig er hægt að fá upplýsingar hjá UMFÍ í síma 568 2929 eða senda fyrirspurn á sabina@umfi.is. Ráðstefnan „Ungt fólk og lýðræði“ verður haldin dagana 9.–11. apríl nk. á Hótel Ísafirði. Aðalþema ráðstefnunnar að þessu sinni verður Stjórnsýslan og við. Þemað endurspeglar vel þarfir ungs fólks og ungmenna sem vinna í ungmenna- ráðum í sveitarfélagi sínu. Þátttakendur fá tækifæri til að ræða og meta stöðu sína í eigin samfélagi og grundvöll til að ræða við aðila sem koma að stjórnsýslunni. Ungmennafélag Íslands hefur ávallt lagt áherslu á lýðræðislega þátttöku ungs fólks og vandað hefur verið til dagskrár ráðstefnunnar. Kvöldvökur verða bæði kvöldin og ættu allir að hafa bæði gagn og gaman af. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16–25 ára. Fjöldi þátttak- enda verður takmarkaður við 60 manns. Þátttökugjald er kr. 12.000.- fyrir hvern Ráðstefnan „Ungt fólk og lýð ræði“

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.