Skinfaxi - 01.03.2014, Qupperneq 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 1. tbl. 2014
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Sigurður Guðmundsson o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar
Bender.
Ritnefnd:
Örn Guðnason formaður,
Gunnar Gunnarsson,
Berglind Ósk Agnarsdóttir,
Pétur Arason og
Jóhanna Hreiðarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa og kynningarfulltrúi,
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi,
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Haukur Valtýsson, varaformaður,
Örn Guðnason, ritari,
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri,
Hrönn Jónsdóttir, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi.
Varastjórn UMFÍ:
Ragnheiður Högnadóttir,
Baldur Daníelsson,
Kristinn Óskar Grétuson,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir.
Forsíðumynd:
Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona
í Ungmennafélagi Akureyrar, hefur náð
frábærum árangri undanfarin misseri.
Hefur hún skipað sér á bekk á meðal
fremstu íþróttamanna landsins. Hafdís
hefur sýnt miklar framfarir og fyrir
skemmstu bætti hún Íslandsmetið í
langstökki innanhúss.
Það er alveg ljóst að uppbygging
íþróttamannvirkja hér á landi á síð-
ustu 10–15 árum er farin að skila sér
í bættum árangri sem sannarlega
vekur mikla eftirtekt svo að ekki sé
dýpra í árinni tekið. Margir tala um
vor í frjálsum íþróttum sem er ekkert
skrítið því að margir efnilegir og upp-
rennandi einstaklingar hafa verið að
koma fram í sviðsljósið. Ein í þessum
hópi er þó komin lengra og hefur
nú þegar, þrátt fyrir ungan aldur,
komið sér fyrir í hópi þeirra fremstu
í íþróttagrein sinni. Hér er á ferð
engin önnur en Aníta Hinriksdóttir
sem á svo sannarlega glæsta fram-
tíð fyrir höndum ef ekkert óvænt
kemur upp á. Aníta er eitt mesta
efnið sem fram hefur komið í íþrótt-
um á Íslandi um langt skeið. Það eru
ekki bara landar hennar sem eru
spenntir að sjá framhaldið heldur
fylgist hinn stóri frjálsíþróttaheimur
líka með.
Fjölmargir aðrir hafa sýnt miklar
framfarir og í því sambandi má
benda á Hafdísi Sigurðardóttur lang-
stökkvara. Hún hefur náð frábærum
árangri í vetur og verður fróðlegt að
fylgjast með henni þegar tímabilið
hefst fyrir alvöru á vordögum. Þrot-
lausar æfingar og markmið hafa
þokað Hafdísi hærra og hærra og
hún gæti hæglega bætt sig enn
frekar. Verður af þeim sökum fróð-
legt að sjá hvað hún gerir í sumar.
Frjálsíþróttavellir með gerviefnum
á hlaupa- og stökkbrautum hafa ver-
ið gerðir víðs vegar um landið á síð-
ustu árum og það eitt á eflaust stór-
an þátt í bættum árangri. Æ fleiri
leggja stund á frjálsar íþróttir. Það
eru ekkert annað en spennandi tím-
ar fram undan, sjón verður sögu rík-
ari. Það hefur varla farið fram hjá
nokkrum manni hvað landslið okkar í
knattspyrnu hafa verið að gera góða
hluti. Mörg þeirra hafa farið alla leið
í úrslitakeppnum í sínum aldurs-
flokkum í karla- og kvennaflokkum
og staðið sig með prýði. Hverju er
að þakka þessa góðu þróun? Svo
spyrja eflaust margir en það sem
kemur fyrst upp í hugann er bætt
aðstaða og að þjálfarar sækja sér æ
betri þekkingu sem skilar sér síðan í
betra knattspyrnufólki og betri lands-
liðum. Straumhvörf urðu í aðstöðu
þegar hér fóru að rísa knattspyrnu-
hús sem varð til þess að hægt var
að stunda knattspyrnu allt árið um
kring. Þetta skilar sér alla leið eins
og allir hafa orðið vitni að. Í mörg ár
voru margir búnir að benda á að yfir-
byggð knattspyrnuhús væri það
sem koma skyldi og að þau myndu
með tímanum bæta getu okkar í
knattspyrnu. Þetta er einmitt að
koma á daginn. Svo er að sjá að fleiri
yfirbyggð knattspyrnuhús rísi á
næstu misserum og þá ekki síst úti
á landsbyggðinni sem er gleðilegt.
Sund- og fimleikaaðstaða hefur
einnig verið bætt og svona mætti
lengi telja. Árangur þar hefur heldur
ekki látið á sér standa eins og dæm-
in sanna.
Uppbygging íþróttaaðstöðu er
góð fjárfesting og gerir okkur betri
og um leið samkeppnishæfari. Hinu
má ekki heldur gleyma og það hef-
ur sýnt sig, að fleiri börn og ungl-
ingar fara að æfa og njóta þeirrar
aðstöðu sem búið er að byggja upp.
Þetta hefur ennfremur í för með sér
að við byggjum upp sterkari ein-
staklinga sem skilar sér enn betur
þegar lengra út í lífið er komið.
Þátttaka í íþróttum hefur ótvírætt
forvarnagildi eins og rannsóknir
hver af annarri hafa sýnt.
Uppbygging íþróttamannvirkja
skilar sér í bættum árangri
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:
Aðalfundur Æskulýðsvettvangsins fór
fram 6. febrúar sl. í þjónustumiðstöð
UMFÍ. Dagskrá fundarins var samkvæmt
lögum félagsins. Starfsskýrsla og árs-
reikningur ársins 2013 sem og fjárhags-
Frá vinstri: Hermann Sigurðsson, framkvæmdastjóri BÍS, Gyða Karlsdóttir, framkvæmdastjóri KFUM og K, Ragnheiður Sig-
urðardóttir, verkefnastjóri ÆV, Erlendur Kristjánsson, deildastjóri MMR, og Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Aðalfundur Æskulýðsvettvangsins
áætlun ársins 2014 voru samþykkt.
Góður andi ríkti á fundinum og mikill
samhljómur um að halda áfram því góða
og öfluga starfi sem Æskulýðsvettvangur-
inn hefur unnið síðastliðin ár.