Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„ÉG ætla að bíða ...
vegna þess að árin
fram að tvítugu er
maður í bakaraofninum
og eins gott að taka
ekki sénsinn á að opna
of snemma því þá
gæti allt farið í klessu!“
Svona tekur 15 ára drengur til orða um
ástæðu þess að hann ætlar sér aldrei að
prófa vímuefni. Ekkert er eðlilegra fyrir
þennan pilt en að vilja forðast allt sem get-
ur eyðilagt framtíðaráætlanir hans þótt
þrautinni þyngri sé að vita hvað það er
sem þurfi að forðast og hvað ekki. Hvar
liggja hætturnar og hvenær á að hrökkva
en ekki stökkva?
Þrátt fyrir allar bollaleggingar um
hvenær sé í lagi að taka áhættu án mikilla
fórna er neysla vímuefna á unga aldri
langmesta áhættan sem við tökum. Vímu-
efnaneysla unglinga reynist hafa mesta
forspárgildi um framtíðina, hversu vel
þeim vegnar í lífinu síðar meir. Því yngri
sem þeir eru því meiri áhættu taka þeir
í því að lenda í ógæfu vegna vímuefna.
Engin önnur hegðun ungs fólks í okkar
heimshluta er jafn afdrifarík og neysla
áfengis, tóbaks eða annarra fíkniefna.
Þrátt fyrir þekkingu okkar á afleiðingum
vímuefnaneyslu reynist mörgum erfitt að
bíða með þessa ákvörðun nægilega lengi
til að vera orðin sannfærð um samband
neyslu vímuefnis og áhættu. Ýmislegt er
freistandi og í neyslusamfélagi nútímans
verður oft fátt til varnar aðgengi ung-
Samtakamáttur og forvarnir
menna að vímuefnum enda er sá hópur
nú skilgreindur sem markhópur fjölmargra
vörumerkja í samkeppninni um peninga-
legan ofurhagnað. Söluherferðinni er oft
beint að þessum hópi eins og öðrum og
hagsmunir fjár og fyrirtækis eru teknir
fram yfir hagsmuni heildarinnar, hags-
muni heilsu og hamingju unga fólksins.
Þín er völin – og kvölin, eru einkunnarorð
frjáls markaðar. Neysla vímuefna er sveip-
uð ljóma sem ungt fólk stenst oft ekki frek-
ar en fullorðnir, og jafnvel síður.
Við sem eldri erum reynum mörg hver
að hafa áhrif á þetta neysluumhverfi barna
okkar með því að styrkja þau til jákvæðra
hluta. Tómstundir hvers konar og íþrótta-
starf eru leið til að draga úr áhuga barna
fyrir áhættuhegðun og samvera með fjöl-
skyldunni styrkir velferð barnsins. En aðrir
eru ekki eins hugsandi um heildarmynd-
ina og því verða mörg ungmenni fíkni-
efnum að bráð þrátt fyrir vilja meiri hluta
fólks til annars. Fórnarkostnaðurinn er hár
og ennþá eru engin betri ráð í forvörnum
en samtakamáttur allra þeirra sem með
málefni barna og ungmenni fara; aðeins
með samstilltum hug þeirra og samráði
stjórnvalda og grasrótarsamtaka getum
við komið í veg fyrir skaðann eða a.m.k.
dregið úr honum.
Guðni R. Björnsson, foreldri og verkefna-
stjóri FRÆ
Samningur um 17. Unglingalandsmót
UMFÍ var undirritaður í
Húsi frítímans á Sauð-
árkróki þann 22. janúar
sl., en mótið verður
haldið á Sauðárkróki
um verslunarmannahelgina, dagana 1.–4.
ágúst nk. Þetta er í þriðja sinn sem mótið
er haldið í Sauðárkróki en mótin fóru þar
áður fram árin 2004 og 2009.
Við undirskriftina sagði Helga G. Guð-
jónsdóttir, formaður UMFÍ, að níu byggð-
arlög hefðu sótt um að halda mótið en
Sauðárkrókur varð fyrir valinu m.a. vegna
frábærrar íþróttaaðstöðu og þess ómælda
kosts að hafa allt á sama stað, þ.e. tjald-
svæði, keppni- og afþreyingarsvæði o.fl.
Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus
íþrótta- og fjölskylduhátíð. Gert er ráð
fyrir um 2000 keppendum á mótið en það
er ætlað ungmennum á aldrinum 11–18
ára. Mótsgjaldið er 6000 kr. á keppanda
og er það eina gjaldið sem rukkað er fyrir
utan lítið gjald fyrir rafmagnsnotkun á
tjaldsvæðinu.
Fjölmargir sjálfboðaliðar koma að mót-
inu en mótshaldið er í höndum Ung-
mennasambands Skagafjarðar, með
stuðningi Sveitarfélagsins Skagafjarðar
sem og UMFÍ. Formaður unglingalands-
mótsnefndar er Halldór Halldórsson.
Samningur um Unglingalandsmót UMFÍ 2014 á Sauðárkróki undirritaður
Jón Daníel Jónsson, formaður UMSS, Helga G. Guðjónsdóttir, for-
maður UMFÍ, Ásta B. Pálmadóttir, sveitarstjóri Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, og Gunnar Þór Gestsson, sem sæti á í unglingalands-
mótsnefnd. Ljósmynd Feykir.
Guðni R. Björnsson,
foreldri og verk-
efnastjóri FRÆ.