Skinfaxi - 01.03.2014, Page 16
16 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
FRJÁLSAR
ÍR bar sigur úr býtum í jafnri og spennandi 8. bikarkeppni FRÍ innanhúss, sem fram fór í Laugardalshöll 15.–16. febrúar sl., með 145 stig. Í öðru sæti
varð lið Norðurlands (UMSS, UMSE, UFA og HSÞ) með 141 stig og FH-ingar urðu
í þriðja sæti með 132 stig. ÍR-ingar sigruðu jafnframt í karlakeppninni með 75
stig og kvennakeppninni með 70 stig. Kvennasveit Norðurlands náði einnig
70 stigum en ÍR-ingum var dæmdur sigurinn vegna þess að þær sigruðu í fleiri
greinum en þær norðlensku. Kvennasveit FH hafnaði í þriðja sæti með 64 stig.
Í öðru sæti í karlaflokki höfnuðu Norðlendingar með 71 stig og FH-ingar í því
þriðja með 68 stig.
Óðinn Björn og Hafdís með bestu árangra mótsins
Bestan árangur í kúluvarpi átti Óðinn Björn Þorsteinsson, Ármanni, en þetta
var fyrsta mót hans í vetur. Óðinn varpaði kúlunni 18,81 m og hlaut fyrir það
1050 stig samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu IAAF. Hafdís Sigurðardóttir, Norður-
landi, átti bestan árangur kvenna en hún stökk 6,26 m í langstökki. Fyrir afrekið
hlaut hún 1043 stig. Hafdís sigraði einnig í 60 m hlaupi og var í sigursveit norð-
lensku kvennanna í 4×400 m boðhlaupi.
Æsispennandi langstökkskeppni
Kristinn Torfason, FH, sigraði í æsispennandi langstökkskeppni en hann stökk
1 sm lengra en næsti maður, Þorsteinn Ingvarsson, ÍR. Stukku þeir 7,43 m og 7,42 m.
Arna Stefanía Guðmundsdóttir, ÍR, sigraði í 400 m hlaupi á tímanum 56,41 sek.
sem er fjórði besti tími hennar frá upphafi innanhúss og sá besti í þrjú ár.
Jóhann Björn Sigurbjörnsson úr bikarliði Norðurlands sigraði í 60 m hlaupi á
tímanum 6,95 mín. sem var enn ein bætingin hans í vetur. Jóhann var einnig
í sigursveit Norðurlands í 4×400 m boðhlaupi. Kolbeinn Höður Gunnarsson í
bikarliði Norðurlands sigraði í 200 m hlaupi og 400 m hlaupi. Hann kom í mark á
tímanum 22,01 sek. í 200 m hlaupinu og á 48,97 sek. í 400 m hlaupinu.
Þórdís Eva (14 ára) vann 800 m og 1.500 m hlaup
Þórdís Eva Steinsdóttir, 14 ára stúlka í FH, kom sá og sigraði bæði í 800 m
hlaupi og í 1.500 m hlaupi. Tímar hennar voru 2:18,32 mín. og 4:51,00 mín. Eru
þetta jafnframt næstbestu tímar allra kvenna innanhúss í vetur í þessum greinum.
Það skal einnig tekið fram að Þórdís er nú einnig komin í 9. sæti kvenna í 1.500 m
hlaupi frá upphafi innanhúss, og það einungis 14 ára gömul.
Lið Norðurlands í 2. sæti
í bikarkeppni FRÍ