Skinfaxi - 01.03.2014, Qupperneq 26
26 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Fjölnir fær
aðstöðu í nýju
fimleikahúsi
R eykjavíkurborg og Umf. Fjölnir í Grafar-vogi undirrituðu nýjan samning í Ráð-
húsi Reykjavíkur í byrjun mars. Samkvæmt
honum fær Fjölnir aðstöðu í nýju fimleikahúsi
sem fasteignafélagið Reginn mun byggja við
Egilshöll. Þá mun Fjölnir reka áfram íþrótta-
hús og íþróttavelli við Dalhús í Grafarvogi.
Mikill uppgangur hefur verið í íþróttastarfi
Fjölnis síðustu árin, segir í tilkynningu frá
borginni. Fjölnir hefur verið með íþrótta-
aðstöðu við Dalhús og í Egilshöll. Þar hefur
félagið verið með knattspyrnuæfingar á
inni- og útivöllum, frjálsíþróttaæfingar inni,
bardagaíþróttir, fimleikaæfingar í tveimur
bráðabirgðasölum auk skrifstofu. Þar að auki
er félagið með eitt stórt íþróttahús í Grafar-
vogi til æfinga og keppni í handknattleik og
körfuknattleik og annað minna íþróttahús í
Rimaskóla til æfinga.
Mestu tíðindin í samkomulaginu eru þau
að Reginn hyggst byggja nýtt fimleikahús
við hlið Egilshallar fyrir fimleikadeild Fjölnis.
Reykjavíkurborg mun taka húsið á leigu til
afnota fyrir Fjölni en jafnframt láta af hendi
núverandi aðstöðu fyrir fimleika í Egilshöll.
Árlegt leigugjald vegna nýrrar aðstöðu verð-
ur rúmlega 50 milljónir kr. til viðbótar við nú-
verandi leigusamning við Regin vegna íþrótta-
aðstöðu í Egilshöll. Áætlað er að fimleikahús-
ið verði tekið í notkun veturinn 2015 en það
verður 2.250 m2 að stærð og tengist núver-
andi húsnæði.
Þá verða teknar upp viðræður við Borgar-
holtsskóla um nýtingu íþróttamannvirkja í
Grafarvogi fyrir nemendur skólans og fyrir
afreksíþróttasvið skólans.
Undirskrift samnings við Umf. Fjölni. Frá
vinstri: Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, Ómar Einarsson, sviðsstjóri ÍTR,
Guðmundur L. Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Fjölnis, Jón Gnarr, borgarstjóri, Jón Karl
Ólafsson, formaður Fjölnis, og Eva Einars-
dóttir, formaður íþrótta- og tómstundasviðs
Reykjavíkurborgar.
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannam ót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T