Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.03.2014, Qupperneq 27

Skinfaxi - 01.03.2014, Qupperneq 27
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27 Í þrótta- og leikjadagur Félags áhuga- fólks um íþróttir eldri borgara, FÁÍA, var haldinn í íþróttahúsinu við Austur- berg í Breiðholti 3. mars sl. Var þetta í 29. sinn sem þessi dagur er haldinn og mikil og góð stemning var á hátíðinni. Vel var mætt og skein gleði og ánægja úr hverju andliti. Fram komu nokkrir hópar af Stór- Reykjavíkursvæðinu og úr Reykjanesbæ og sýndu atriði við góðar undirtektir áhorfenda. Þess má geta að fyrsti íþróttadagur aldraðra var haldinn árið 1987 en fyrstu sex árin komu eldri borgarar saman og gerðu sér glaðan dag á gervigrasvellinum í Laugar- dal. Mikil vakning hefur orðið í íþróttum og hreyfingu almennt meðal eldri borgara hin síðustu ár og er ljóst að hún mun vaxa enn frekar á næstu árum. Íþrótta- og leikjadagur Félags áhugafólks um íþróttir eldri borgara: Þessi dagur skiptir miklu máli fyrir félagið Stór viðburður „Þessi dagur skiptir miklu máli fyrir félag- ið. Þetta er stór viðburður fyrir þá sem eru að æfa að fá að koma og sýna atriði sín. Það er líka mikls virði að vera saman og sjá aðra. Starfið innan Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra stendur með blóma og við erum þakklát fyrir samstarfið með UMFÍ. Með þeim höfum við verið að gera hluti sem okkur dreymdi um og var ekki hægt að gera áður. Við erum með á döf- inni að standa fyrir námskeiðum sem verður farið með út á land. Þetta starf á bjarta framtíð fyrir sér,“ sagði Þórey S. Guðmundsdóttir, formaður FÁÍA.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.