Skinfaxi - 01.03.2014, Síða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Landsmót UMFÍ 50 +
verður haldið á Húsavík 20.-22. júní 2014.
Ætlar þú ekki að mæta?
90. ársþing UMSK var haldið í Laugardalshöll-
inni 27. febrúar sl. Valdimar Leó Friðriksson
var endurkjörinn formaður sambandsins.
Tveir stjórnarmenn, þau Ester Jónsdóttir og
Albert Valdimarsson, gengu úr stjórn eftir
meira en tuttugu ára setu. Alda Kolbrún
Helgadóttir gaf heldur ekki kost á sér en hún
hefur setið í stjórn UMSK frá 2008.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
sátu ársþingið. Helga Guðrún sæmdi þau
Albert Valdimarsson, Ester Jónsdóttur og
Svan M. Gestsson gullmerki UMFÍ fyrir ára-
tuga starf í hreyfingunni en öll þrjú hafa í
gegnum tíðina m.a. verið drifkrafturinn í þátt-
töku UMSK í Landsmótum UMFÍ.
Ný stjórn er skipuð eftirfarandi fólki:
Valdimar Leó Friðriksson, Aftureldingu, for-
maður, Guðmundur Sigurbergsson, Breiða-
bliki, Magnús Gíslason, HK, Margrét Björns-
dóttir, Ými, Lárus B. Lárusson, Gróttu. Í vara-
stjórn sitja Sólveig Jónsdóttir, Gerplu, Þor-
steinn Þorbergsson, Stjörnunni, og Helga
Jóhannesdóttir, Aftureldingu.
Í lok þingsins afhenti formaður sambands-
ins þeim Ester, Albert og Svani, sem gekk úr
stjórn í fyrra, sérstaka viðurkenningu en öll
höfðu þau setið yfir tuttugu ár í stjórn UMSK.
Auðunn Jónson var valinn afreksmaður
UMSK 2013. Þetta er annað árið í röð sem
Auðunn verður fyrir valinu en 2013 var gott
ár hjá honum þar sem Evrópumeistaratitil
í réttstöðulyftu bar hæst. Blaklið HK-karla
Ársþing Ungmennasambands Kjalarnesþings:
Þrír einstaklingar sæmdir gullmerki UMFÍ
hlaut UMFÍ-bikarinn en þann bikar hlýtur
það lið innan UMSK sem hefur skarað fram
úr á árinu. Liðið náði þeim einstaka árangri
að vinna alla titla sem í boði eru á Íslandi í
blaki karla.
Frá vinstri: Björg Jakobsdóttir, stjórnarmaður UMFÍ, Svanur M. Gestsson, Ester
Jónsdóttir, Albert Valdimarsson og Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.