Skinfaxi - 01.03.2014, Side 41
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 41
Nú er tíminn til að skipuleggja næsta ferðaár
Laugavegi 178. Sími 562 1000. www.utivist.is
Skrifað undir
samning vegna
Landsmóts UMFÍ 50+
á Húsavík
L
andsmót UMFÍ 50+ verður haldið á Húsa-
vík dagana 20.–22. júní í sumar en hluti
mótsins mun þó fara fram í Þingeyjar-
sveit. Þetta er fjórða Landsmót UMFÍ 50+ og
það fyrsta sem haldið er á norðausturhorn-
inu. Fyrri mót voru haldin á Hvammstanga, í
Mosfellsbæ og í Vík í Mýrdal.
Þann 11. mars sl. var haldinn kynningar-
fundur um Landsmót 50+ í íþróttahúsinu á
Húsavík og við það tækifæri var skrifað undir
samning milli UMFÍ, Norðurþings, Þingeyjar-
sveitar og HSÞ. Einnig var boðið upp á ýmsar
heilsufarsmælingar og fólk prófaði nokkrar
skemmtilegar greinar sem verða í boði á mót-
inu í sumar.
Þó nokkuð er síðan Landsmót hefur verið
haldið á Húsavík en það var árið 1987 og tókst
með eindæmum vel. Var það ekki síst veður-
guðunum að þakka. Fyrir það mót var ráðist
í miklar framkvæmdir í sveitarfélaginu og var
m.a. byggð 25 metra sundlaug til bráða-
birgða.
Unglingalandsmót var haldið að Laugum
í Reykjadal sumarið 2006. Var þar einnig ráð-
ist í miklar framkvæmdir á vegum Þingeyjar-
sveitar og unnu sjálfboðaliðar gríðarlega
mikið verk við að koma á nýjum frjálsíþrótta-
velli. Fyrir Landsmót 50+ á Húsavík verður
flikkað upp á þá aðstöðu sem er til staðar og
vonandi verður það íþróttamannlífi til góða
að Landsmóti UMFÍ 50+ loknu.
Vonir standa til að þátttaka Þingeyinga,
sem eru komnir um og yfir miðjan aldur, verði
góð á mótinu og Þingeyingar noti þetta mót
sem hvatningu til að auka hreyfingu og heil-
brigðan lífsstíl í framhaldinu. Landsmót 50+
er ekki einungis íþróttamót heldur einnig
heilsuhátíð og verður boðið upp á fyrirlestra
um heilbrigðan lífsstíl og ýmsar heilsufars-
mælingar. Fjölmargar keppnisgreinar verða
í boði á Landsmóti UMFÍ 50+ á Húsavík, en
það eru: almenningshlaup, boccia, bridds,
bogfimi, blak, frjálsar, hestaíþróttir, línudans,
golf, pútt, ringó, skák, starfsíþróttir, skotfimi,
sund, sýningar, stígvélakast og þríþraut.
Markmið mótsins er að skapa fólki 50 ára og
eldri vettvang til að koma saman og keppa
í hinum ýmsu íþróttagreinum og kynna um
leið þá möguleika sem eru í boði til þess.
Héraðssamband Þingeyinga var stofnað 31.
október árið 1914 og fagnar því aldarafmæli
sínu á þessu herrans ári 2014. Landsmót 50+
er stærsti einstaki viðburðurinn sem haldinn
verður á vegum HSÞ á þessu ári, en einnig
mun koma út afmælisrit og boðið til veislu í
kringum sjálfan afmælisdaginn. Sett verður
upp sýning í Safnahúsinu á Húsavík og mun
hún standa frá byrjun júní og fram yfir
Mærudaga. Þar verður m.a. í gangi mynd-
band af Landsmóti UMFÍ sem haldið var á
Laugum árið 1961 og myndbrot af Ásbyrgis-
móti sem haldið var 1974. Það efni sem til er
af þessum mótum verður sett yfir á DVD-disk
og verður hann til sölu í Safnahúsinu meðan
á sýningu stendur, en líka á skrifstofu HSÞ
í íþróttahúsinu á Húsavík þar sem afmælis-
treyja HSÞ er einnig til sölu.
Frá vinstri Dagbjört Jónsdóttir,
sveitarstjóri Þingeyjarsveitar,
Jóhanna S. Kristjánsdóttir,
formaður HSÞ, Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
og Bergur Elías Ágústsson,
bæjarstjóri Norðurþings.