Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 4
Útlit er fyrir að þingflokkurinn herðist í andstöðunni við ESB og verði samstilltari. Þeir þrír þing- menn sem greiddu umsókninni um aðild atkvæði hætta, Siv Friðleifs- dóttir, Birkir Jón Jónsson og Guð- mundur Steingrímsson. Á meðal nýrra andlita í framboði er Frosti Sigurjónsson, sem ekki hefur farið dult með andstöðu sína við aðild. Einnig má búast við harðari and- stöðu meðal flokksmanna. Á síð- asta flokksþingi kom fram tillaga um að draga umsóknina um aðild að ESB til baka og fullyrt er af mönnum sem til þekkja að sú tillaga hefði fengið 80% fylgi ef ekki hefði verið lögð áhersla á málamiðlun við Evr- ópusambandsarminn í flokknum. Fyrir vikið var tillagan felld með fimm atkvæðum, ályktað að Íslandi væri betur borgið utan ESB og gagnrýnt að staðið væri í umsókn- arferli á viðsjárverðum tímum. Þrátt fyrir málamiðlunina gekk harðasti kjarninn gegn aðild úr flokknum eftir þingið, að sögn mun það ekki hafa verið stór hópur en nokkuð hávær. Eftir standa and- stæðingar aðildarviðræðna. Kjördæmin Við brotthvarf Sivj- ar gerir Eygló Harðardóttir at- lögu að oddvitasæti í Suðvest- urkjördæmi. Ómar Stefánsson, bæj- arfulltrúi í Kópavogi, gerir sig líkleg- an til þess sama. Eygló er með mesta þingreynslu þingmanna Framsóknar, en hún kom á þing árið 2008. „Það er því ekki hægt að segja annað en að við höfum tekið ákallinu um endurnýjun alvarlega,“ segir þingmaður. Frosti Sigur- jónsson stefnir á fyrsta sæti í Reykja- vík, Vigdís Hauks- dóttir horfir til fyrsta sætis í Reykjavík suður og Guðlaugur Gylfi Sverrisson, fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykja- víkur, á forystusæti. Gunnar Bragi Sveinsson sækist eft- ir fyrsta sæti Norðvestur- kjördæmis, Ásmundur Einar Daða- son stefnir á annað og það sama gaf Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson vara- þingmaður til kynna á fésbók. Elín Líndal og Halla Signý Kristjánsdóttir gefa ekki kost á sér. Í Suðurkjördæmi stefnir Sigurður Ingi Jóhannsson á fyrsta sæti, en hann er sá eini sem tilkynnt hefur framboð í varaformann. Birgir Þór- arinsson varaþingmaður gefur kost á sér í annað sæti og líka Silja Dögg Gunnarsdóttir, varamaður í bæjar- stjórn í Keflavík. ANDSTAÐAN STYRKIST VIÐ ESB Enn dregur til átaka á milli SigmundarDavíðs Gunnlaugssonar og HöskuldarÞórhallssonar og nú valda þau skjálfta í Norðausturkjördæmi. Rætt var við ýmsa flokksmenn við skrif þess- arar fréttaskýringar, en Sigmundur Davíð og Höskuldur tjáðu sig ekki um deilurnar sín á milli. Ef til vill má rekja upphafið til síðustu kosn- inga, en stuðningshópur Sigmundar Davíðs fyrir austan, sem stóð að baki framboði hans til for- mennsku, óskaði eftir því að hann færi fram í kjördæminu. Þá bauðst varaformaðurinn Birkir Jón Jónsson til að gefa eftir fyrsta sætið. Sam- kvæmt heimildum velti Sigmundur Davíð þessu alvarlega fyrir sér, en bauð sig fram í Reykjavík „að sinni“, eins og hann orðaði það í viðtali á RÚV. Lagði fram símtalaskrá Í haust færðist aftur alvara í leikinn og Sigmund- ur tilkynnti framboð fyrir norðan eins og frægt er. Úr varð að hann og Birkir Jón lýstu áformum sínum samtímis á fundi þingflokks og lands- stjórnar á Sauðárkróki 22. september. En það kom þeim óþægilega á óvart í rútunni á leið norður daginn áður þegar fregnir bárust af fram- boði Höskuldar í fyrsta sæti. Hvað sem framboði Sigmundar Davíðs líður staðfesta heimildarmenn að Höskuldur hafi orðað framboð í fyrsta sæti á bæjarmálafundi á Ak- ureyri 15. september og fengið góðar undirtektir. Höskuldur segir tilkynninguna um framboðið hafa dregist vegna hörmunganna í Þingeyj- arsýslu. Sigmundur Davíð fól Hrólfi Ölvissyni, fram- kvæmdastjóra Framsóknarflokksins, að hringja í Höskuld 20. september og láta vita hvað stæði til. Hrólfur hefur lagt fram símtalaskrá því til staðfestingar hjá framkvæmdastjórn flokksins. En ekki ber þeim Höskuldi saman um hvað rætt var í þessum tveim símtölum. Höskuldur segir símtölin hafa snúist um að hann kæmist ekki með rútunni til Sauðárkróks vegna stórafmælis sem hann sótti og að hann kæmist ekki fyrr en morgni laugardags. Hrólfur stendur við frásögn sína um að hann hafi látið Höskuld vita og óskað trúnaðar. Bréf til trúnaðarmanna Í bréfi sem þingmennirnir Gunnar Bragi Sveins- son og Ásmundur Einar Daðason skrifuðu trúnaðarmönnum flokksins í vikunni kemur fram að framkvæmdastjórnin hafi hist og lýst yfir trausti á framkvæmdastjórann og þar hafi einnig verið bókað að þingflokkurinn stæði við bakið á honum, að Höskuldi undanskildum. Í bréfinu kemur einnig fram að „a.m.k. tveir aðilar, sem Höskuldur hefur sjálfur sagt frá þessu samtali sínu við framkvæmdastjórann, hafa staðfest þessa atburðarás.“ Þar eiga þeir við at- burðarásina eins og Hrólfur lýsir henni. Samkvæmt heimildum eru „aðilarnir“ tveir, Eiríkur H. Hauksson, formaður kjördæm- isráðsins, og Björn Snæbjörnsson, sem situr í stjórn Akureyrarfélagsins. Heimildir herma að á fundi Sigmundar Davíðs með stjórn Akureyrar- félagsins hafi Björn skýrt frá símtali Höskuldar til sín eftir símtal við Hrólf, síðar sama kvöld. Björn sagðist hafa ráðlagt Höskuldi að fara fram strax daginn eftir, verða fyrri til. Þegar tal náðist af Birni í gær vildi hann ekki tjá sig um þessa frásögn, en lét hafa eftir sér: „Fullyrt er að Höskuldur hafi sagt mér að ákveð- ið væri að Sigmundur Davíð ætlaði fram. Það er rangt.“ Þá herma heimildir að Eiríkur hafi innt Hösk- uld eftir samtalinu við Hrólf og Höskuldur geng- ist við því að það hafi farið fram. Eitt er ljóst. Málið er í erfiðum hnút. Á Ak- ureyri má heyra á sumum flokksmönnum að þeir hafi ekkert við „sérfræðinga að sunnan“ að gera, aðrir segja að nýr frambjóðandi hefði hvort sem er stigið fram, jafnvel þótt Höskuldur og Birkir Jón hefðu báðir verið í framboði. Harka er í um- ræðunni. Á fundinum fræga á Sauðárkróki tilkynntu Birkir Jón og Sigmundur fyrirætlan sína í lok dags. Og Sigmundur óskaði eftir fundi með Höskuldi og Eiríki. En á sama tíma „poppar fréttin upp á öllum snjallsímum á fundinum“, að sögn viðmælanda, Höskuldur fer í baklás og sumir ganga út af fundinum. „Það var stríðs- ástand á Króknum. Svo fór þessi leikur í gang.“ Sigmundur Davíð og Höskuldur hafa fundað tvisvar eftir þetta. En svo virðist sem báðir sitji við sinn keip og málið verði í fyrsta lagi útkljáð á kjördæmisþingi. Það eykur enn togstreituna að þrýstingur er á að fá konu í efstu sæti. Huld Aðalbjarnardóttir varaþingmaður hefur gefið kost á sér og vonast er eftir framboði Þórunnar Egilsdóttur bæjarfulltrúa á Vopnafirði. Þá veltir Sigfús Karlsson framboði fyrir sér. Stríðsástand á Króknum HARÐVÍTUG RIMMA Í NORÐAUSTURKJÖRDÆMI. HÖSKULDUR STEFNIR ÓTRAUÐUR Á FYRSTA SÆTI. ÓLGA Á AKUREYRI VEGNA FRAMBOÐS FORMANNSINS. VITNAÐ TIL UMMÆLA TVEGGJA ÁHRIFAMANNA Í FLOKKNUM Í BRÉFI ÞINGMANNA. Sigmundur Davíð varð formaður 2009. Báðir unnu og töpuðu formannsslag sama daginn, því fyrstu tölur voru rangar og tilkynnt að Höskuldur hefði unnið. * Það hefur oft verið skemmtilegt að takast á við Steingrímí þinginu og ég hlakka til kosningabaráttu við hann íkjördæminu. Sigmundur Davíð GunnlaugssonÞjóðmálPÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.